Vill 700 milljónir fyrir höllina Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. febrúar 2026 10:05 Húsið er við Skeljatanga í Skerjafirðinum. Betri stofan Margrét Ásgeirsdóttir, læknir og fjárfestir, er enn að reyna að selja höll sína við Skeljatanga 9 í Reykjavík. Húsið er 550 fermetrar, fasteignamatið 317 milljónir en ásett verð 700 milljónir.
Húsið, sem var hannað af arkitektinum Hjörleifi Stefánssyni og reist árið 2008, stendur á sjávarlóð innst í rólegri botnlangagötu með 1.258 fermetra eignarlóð sem liggur að sjó með skjólgóðu útisvæði og einstöku óhindruðu útsýni út á sjó. Heildarskráning eignarinnar er 508 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands og óskráð rými fjörutíu fermetrar. Stofan er ansi flott. Aðalrýmið er hið glæsilegasta. Í lýsingu segir að í húsinu sé að finna fjölmörg herbergi, gufubað, vínherbergi, líkamsrækt og hjónasvítu sem spanni alla efri hæðina en þar er einnig að finna bæði bað- og fataherbergi. Á neðri hæð er spa með niðurgröfnum heitum potti og fjölnota rými sem er sagt geta nýst sem sjónvarpsstofa eða tómstundaherbergi. Á fasteignavef Vísis kemur fram að eignin sé aðeins sýnd samkvæmt samkomulagi í einkaskoðun. Þrívíddarmyndataka er aðgengileg fyrir áhugasama. Líkamsrækt, spa og vínherbergi Eldhúsið er opið og stílhreint með sérsmíðuðum hvítum innréttingum og eldhúseyju með nýlegri marmaraplötu frá október 2024. Eldhúsið er búið tvöföldum ísskáp frá Liebherr, gaseldavél frá Smeg og uppþvottavél frá Miele. Hægra megin við eldhúsið er rúmgóð borðstofa þaðan sem er útgengt á viðarpall með grillaðstöðu og borðaðstöðu. Eldhúsið og stofan liggja saman. Auk eldhússins er kaffistofa sem snýr út að sjó með bogalaga glugga sem nær frá gólfi upp í loft, aðalstofa með útsýni yfir sjóinn, tvöfalda lofthæð og glugga frá gólfi að lofti sem gefur mikla birtu og aukastofa. Á neðstu hæðinni er spa-rými með niðurgröfnum sérhönnuðum heitum potti og setusvæði sem er sagt nýtast sem „lounge-rými“. Gólf og hluti veggja eru lögð norskum náttúrusteini og pottur er flísalagður. Þar er einnig líkamsræktarsalur með aðstöðu fyrir æfingatæki og innbyggt hljóðkerfi frá Bose, gufubað klætt norskum náttúrusteini og flísum og vínherbergi er með innréttingum úr eik og gólfi úr norskum náttúrusteini. Spa-rýmið er huggulegt. Líkamsræktarsalurinn á neðstu hæðinni. Vínherbergið rúmir fjölmargar flöskur, þar á meðal þrjár flöskur af Grand Marnier. Við austurhlið hússins er pallur með heitum potti í skjóli og með útsýni til suðurs og útisturtu. Vestan megin við húsið er stór viðarpallur með grillaðstöðu, útiborði og útihúsgögnum. Ofan á bílskúrnum er þakverönd sem býður upp á aukið útisvæði sem er aðgengileg út frá fataherbergi í hjónasvítu. Á baklóðinni er stór grasflötur, steypt eldstæði og viðarstígur sem gengur í átt að sjó. Tveir pallar eru við húsið. Lóðin er einkar stór og útsýnið út á sjó fallegt. Höllin er tilkomumikil.
Fasteignamarkaður Reykjavík Hús og heimili Tengdar fréttir Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Margrét Ásgeirsdóttir læknir og fjárfestir er að selja glæsilega eign við Skeljatanga í Reykjavík. Arkitekt hússins er Hjörleifur Stefánsson og var húsið reist árið 2008. Heildarskráning eignarinnar er 508 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Fasteignamat er 289 milljónir. 9. apríl 2025 22:31 Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira
Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Margrét Ásgeirsdóttir læknir og fjárfestir er að selja glæsilega eign við Skeljatanga í Reykjavík. Arkitekt hússins er Hjörleifur Stefánsson og var húsið reist árið 2008. Heildarskráning eignarinnar er 508 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Fasteignamat er 289 milljónir. 9. apríl 2025 22:31