Ölfus
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 19 ›
Að búa við öryggi Það eru allt of margir íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi sem hafa þurft að flytjast ótímabærum hreppaflutningum í önnur sveitarfélög síðustu árin, sumir alla leið á Kirkjubæjarklaustur. Það er þyngra en tárum taki fyrir aðstandendur að þurfa að taka þátt í þessum brottflutning sem í einhverjum tilfellum hefur ekki verið nauðsynlegur. Skoðun 22.3.2022 11:32
Væntanlegur ráðherra ósáttur við ráðherra vegna Garðyrkjuskólans Guðrún Hafsteinsdóttir, verðandi ráðherra er mjög ósátt við Ásmund Einar Daðason, ráðherra menntamála því hann hefur tilkynnt að eini Garðyrkjuskóli landsins verði fluttur frá Landbúnaðarháskóla Íslands undir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Guðrún vill að skólinn verði sjálfstæður og áfram á Reykjum í Ölfusi. Innlent 20.3.2022 21:04
Kílómetra löng aparóla úr Kömbum fyrir spennufíkla Spennufíklar geta nú heldur betur farið að láta sig hlakka til því nú á að setja kílómetra langa aparólu frá Kömbum yfir á planið við þjónustuhúsið í Reykjadal. Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar er ekki viss um að hún þori að verða fyrsti gesturinn. Innlent 20.3.2022 14:02
Ása Berglind leiðir Íbúalistann í Ölfusi Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 37 ára menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari, mun leiða Íbúalistann í Ölfusi sem býður fram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 14.3.2022 14:55
Körfuboltakvöld: Nýtt félagsmet Íslandsmeistaranna Þór frá Þorlákshöfn er ríkjandi Íslandsmeistari í körfubolta og verða að teljast líklegir til að verja titilinn. Körfubolti 13.3.2022 23:31
Nemendur Garðyrkjuskólans biðja um hjálp Nemendur eina Garðyrkjuskóla landsins hafa verulegar áhyggjur af framtíð skólans og vilja að hann verði gerður sjálfstæður skóli að ný en í dag er hann hluti af Landbúnaðarháskóla Íslands. Í haust stendur til að færa skólann undir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Innlent 13.3.2022 13:03
Leggur til að sumarbústaðir verði nýttir sem húsnæði fyrir flóttamenn Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss hvetur verkalýðsfélög landsins til að lána sumarbústaði sína undir flóttafólk frá Úkraínu. Hann nefnir Ölfusborgir til dæmis í því sambandi en þar er um fjörutíu hús, sem gætu rúmað tæplega 200 manns frá Úkraínu. Innlent 8.3.2022 21:36
Búið að opna vegina um Hellisheiði og Þrengsli Vegirnir um Hellisheiði og Þrengslin hafa nú opnað aftur en þeim var lokað í morgun sökum ófærðar. Hálka er þó á svæðinu. Innlent 1.3.2022 12:18
Vegir um Hellisheiði og Þrengsli lokaðir Vegurinn um Hellisheiði er lokaður enn eina ferðina sökum ófærðar og sömu sögu er að segja um Þrengslin. Innlent 1.3.2022 06:52
Hellisheiðinni lokað á nýjan leik og fjöldi bíla fastur Lokað var fyrir umferð um Hellisheiðina klukkan 9:40 í morgun. Nokkur fjöldi bíla er fastur í Hveradalabrekku. Opið er fyrir umferð um Sandskeið og Þrengsli. Innlent 23.2.2022 10:32
Gestur Þór leiðir lista Sjálfstæðismanna í Ölfusi og Elliði bæjarstjóraefnið Gestur Þór Kristjánsson húsasmíðameistari og forseti bæjarstjórnar í Ölfusi mun leiða lista Sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Elliði Vignisson, núverandi sveitarstjóri, er bæjarstjóraefni flokksins. Innlent 23.2.2022 09:42
Búið að losa flesta bílana sem festust á heiðinni Vel hefur gengið að moka snjó frá þeim bílum sem festust í Þrengslunum og á Hellisheiði í gær. Björgunarsveitir unnu að því í dag og í kvöld að losa fjölda bifreiða sem setið hafa fastar. Innlent 22.2.2022 22:44
Hafa setið föst á Hellisheiði í rúma sex tíma: „Við sitjum bara hérna og bíðum“ Hjón frá Selfossi eru meðal þeirra sem hafa setið föst í bílaröð á Hellisheiði frá því síðdegis. Björgunarsveitir vinna nú að því að ferja fólk úr bílunum en röðin hefur ekki haggast frá því að veginum var lokað. Hjónin segja fólk þó lítið kippa sér upp við stöðuna og eru þau sjálf í góðu atlæti í bílnum sínum. Innlent 21.2.2022 23:01
Gera ráð fyrir að allt að hundrað manns sitji fastir í Þrengslunum Margir sitja enn fastir í bílum sínum á Þrengslaveginum en fjöldahjálparstöð hefur nú verið opnuð í Grunnskólanum í Þorlákshöfn og verður fólk flutt þangað. Fyrr í dag voru farþegar í 70 manna rútu fluttir í fjöldahjálparstöð í Hellisheiðavirkjun. Innlent 21.2.2022 20:48
Tilboð í Hornafjarðarfljót hátt yfir kostnaðaráætlun Lægsta tilboð í gerð nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót ásamt fjármögnun verksins hljóðar upp á átta og hálfan milljarð króna og reyndist einum og hálfum milljarði króna yfir kostnaðaráætlun. Þetta er fyrsta útboðið á grundvelli nýlegra laga um einkafjármögnun í vegagerð. Innlent 17.2.2022 21:33
Stefnt að opnun Hellisheiðar um hádegi Vegurinn um Hellisheiði er enn lokaður vegna snjóa og er stefnt að opnun um hádegisbil. Búið er að opna veginn um Þrengsli. Innlent 15.2.2022 08:29
Ölfusárbrú og Axarvegur á leið í einkaframkvæmd Smíði nýrrar Ölfusárbrúar og lagning Axarvegar eru að fara í útboðsferli sem einkaframkvæmd og mun Vegagerðin í þessum og næsta mánuði óska eftir áhugasömum bjóðendum. Ný brú á Hornafjarðarfljót er þó komin lengst slíkra verkefna en tilboð verða opnuð síðar í þessari viku. Innlent 14.2.2022 22:05
Skjálfti af stærðinni 3,1 á Hellisheiði Skjálfti af stærðinni 3,1 varð skömmu fyrir miðnætti skammt frá Skálafelli á Hellisheiði. Innlent 14.2.2022 00:32
Kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum Eldur kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum austan Hellisheiðar á fimmta tímanum í dag. Ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið á fólki. Innlent 11.2.2022 16:49
Vörubíll fór út af veginum í Þrengslum í gær Vörubíll á vegum Lýsis fór út af Þrengslavegi í gær. Bíllinn blasir nú við vegfarendum á þessum slóðum og er unnið að því að ná bílnum af slysstaðnum. Innlent 9.2.2022 12:00
Vegfarendur á Suðurlandi beðnir um að leita skjóls Flestar ökuleiðir á Suðurlandi eru lokaðar eða erfiðar yfirferðar. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að bíða í öruggu skjóli til hádegis. Innlent 5.2.2022 10:31
Skör í Hvammi mjólkaði um fjórtán þúsund lítra 2021 Kýrin Skör á bænum Hvammi í Ölfusi er engin venjuleg kýr því hún mjólkar mest allra kúa á Íslandi, eða tæplega 14 þúsund lítra á nýliðinu ári. Skör er gæf og góð kýr, sem á von á sínum fjórða kálfi í vor. Innlent 29.1.2022 20:03
Dansandi 16 ára snillingur í Þorlákshöfn Dugnaður og þrautsegja einkennir Auði Helgu Halldórsdóttur í Þorlákshöfn, sem er ekki nema 16 ára gömul en samt búin að afreka svo margt í lífinu. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í frjálsíþróttum og fimleikum, spilar fótbolta, leikur á þverflautu og dansar ballett og samkvæmisdansa svo eitthvað sé nefnt. Innlent 16.1.2022 21:00
Vatnsverksmiðja Jóns Ólafssonar tapaði yfir tveimur milljörðum Þrátt fyrir áskoranir vegna kórónuveirufaraldursins þá jukust tekjur Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi sem var reist af Jóni Ólafssyni árið 2004, um átta prósent á árinu 2020 og námu samtals tæplega 27 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 3,5 milljarða króna á gengi dagsins í dag. Innherji 10.1.2022 17:47
Ítrekað kallaðir út vegna sinuelda í Árnessýslu sem raktir voru til óleyfisbrenna Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu þurftu að sinna alls 54 útköllum, meðal annars vegna gróðurelda sem blossuðu upp víða í umdæminu, í gærkvöldi og í nótt. Innlent 1.1.2022 13:54
Nautin í Hvammi svolgra í sig bjór alla daga Nautin á bænum Hvammi í Ölfusi njóta lífsins á hverjum degi því þau eru alin upp á bjór og hrati af bjór, sem þau eru sólgin í. Eftir að þeim er slátrað verður til kjöt með bjórkeim, sem margir kunna vel að meta. Innlent 31.12.2021 07:35
Skjálfti við Ingólfsfjall í nótt Jarðskjálfti upp á 3 stig reið yfir í nótt, klukkan sextán mínútur yfir fjögur. Í þetta skiptið skalf jörð þó ekki í grennd við Fagradalsfjall, heldur átti skjálftinn upptök sín um átta kílómetra austur af Hveragerði, í Ingólfsfjalli. Innlent 30.12.2021 06:53
Loftorka átti lægsta boð í Ölfusi og Mosfellsbæ Annir gætu orðið hjá fyrirtækinu Loftorku Reykjavík ehf. við vegagerð næsta árið. Verktakinn átti lægsta boð í tveimur stórum útboðsverkum sem Vegagerðin opnaði fyrir jól. Viðskipti innlent 29.12.2021 14:22
Ice Fish Farm kaupir allt hlutafé í Löxum Meirihlutaeigendur ICE Fish Farm og Laxa skrifuðu undir samkomulag um mögulega sameiningu félaganna eftir lokun markaða í dag. ICE Fish Farm mun kaupa öll hlutabréf í Löxum og borga fyrir með hlutabréfum í ICE Fish Farm í kjölfar samþykkis aðalfunda félaganna. Viðskipti innlent 13.12.2021 20:40
Loka leikskólanum eftir að barn og starfsmaður greindust Barn og starfsmaður á leikskólanum Bergheimum í Ölfusi hafa greinst með Covid-19. Verður leikskólinn lokaður næstu tvo daga á meðan reynt er að ná utan um tilfellin. Innlent 12.12.2021 19:23