Lífeyrissjóðir
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 19 ›
Innlán lífeyrissjóða minnka ört eftir miklar fjárfestingar erlendis Innlán lífeyrissjóða hafa dregist hratt saman á einu ári eða um 26 prósent. Sérfræðingar segja að hluti skýringarinnar felist í að lífeyrissjóðir hafi fjárfest í erlendum hlutabréfum fyrir um 150 milljarða. Eðlilegt sé að innlán dragist saman í ljósi þess að vænt ávöxtun annarra eignaflokka sé hærri. Vísbendingar séu um að botninum sé náð og að kauptækifæri hafi skapast til dæmis á hlutabréfamarkaði. Innherji 18.11.2022 07:01
Lífeyrissjóðir fá Arctica Finance sem fjármálaráðgjafa Verðbréfafyrirtækið Arctica Finance verður sérstakur fjárhagslegur ráðgjafi helstu lífeyrissjóðanna sem hafa nú flestir hverjir myndað með sér sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs. Í þeim hópi er hins vegar ekki Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins. Innherji 17.11.2022 11:52
Gjaldeyriseignir Gildis jukust um nærri tíu prósent á þriðja fjórðungi Eftir að hafa dregist stöðugt saman í um tvö ár þá jókst verulega vægi erlendra fjárfestinga í eignasafni Gildis á liðnum ársfjórðungi þegar gjaldeyriseignir lífeyrissjóðsins hækkuðu um liðlega 24 milljarða. Hlutfall erlendra eigna annarra stærstu lífeyrissjóða landsins jukust sömuleiðis, samt mun minna en í tilfelli Gildis, samhliða því að gengi krónunnar fór lækkandi. Innherji 14.11.2022 14:01
Ríkið væri ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð með því að slíta ÍL-sjóði Ein ástæða þess að stjórnvöld hafa nú boðað aðgerðir til að leysa upp ÍL-sjóð er að hann stenst ekki skilyrði um að vera sjálfstæð stofnun, samkvæmt Evrópsku hagstofunni, en við það færast skuldbindingar sjóðsins undir ríkisreikning frá og með 2022 sem gæti aukið skuldir ríkissjóðs um 650 milljarða, að mati dósents í fjármálum. Hann telur farsællegast að ná samkomulagi við kröfuhafa um uppgjör ÍL-sjóðs en verði farin sú leið að slíta sjóðnum með sérstakri lagasetningu, sem hann efast um að fjármálaráðherra vilji í raun gera, þá væri ríkið ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð á skuldum hans. Innherji 9.11.2022 18:01
Bláa lónið setur stefnuna á Kauphöllina í byrjun næsta árs Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, vinnur nú að undirbúningi að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað sem það áformar að geti orðið að veruleika á fyrri hluta næsta árs. Tvö innlend fjármálafyrirtæki hafa verið fengin sem ráðgjafar Bláa lónsins við skráningarferlið þar sem til stendur að bjóða hluti í félaginu til sölu. Fyrirtækið var verðmetið á um 60 milljarða í síðustu stóru viðskiptum með bréf í félaginu fyrir meira en ári. Innherji 8.11.2022 13:37
Merki um að heimilin séu að snúa aftur í verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóða Ný verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna voru nánast jafn mikil og upp- og umframgreiðslur þeirra í september en sjóðsfélagar höfðu áður greitt upp slík lán samfellt frá því á vormánuðum ársins 2020. Er þessi viðsnúningur í samræmi við þá útlánaþróun sem hefur sést hjá bönkunum á allra síðustu mánuðum samtímis hækkandi vaxtastigi en Seðlabankastjóri hefur sagst hafa áhyggjur af því að heimilin færi sig aftur yfir í verðtryggð lán. Innherji 7.11.2022 09:00
Birta gæti þurft að taka á sig sex milljarða högg við virðislækkun íbúðabréfa Birta gæti orðið fyrir um sex milljarða króna tapi að núvirði ef lífeyrissjóðurinn þarf að færa niður verðmæti íbúðabréfa við tryggingafræðilegt endurmat á eignum sínum vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa um uppgreiðslu bréfanna. Innherji 6.11.2022 15:11
Gildi færir niður íbúðabréfin um fimmtán milljarða Gildi lífeyrissjóður hefur fært niður virði skuldabréfa, útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, um samtals 14,7 milljarða króna vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulagi við kröfuhafa. Niðurfærslan hefur þegar haft áhrif á greiðslur úr séreignardeild Gildis. Innherji 2.11.2022 13:00
Yfirmaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis segja upp störfum Forstöðumaður og sjóðstjórar framtakssjóða Stefnis, dótturfélags Arion banka, hafa allir sagt upp störfum. Brotthvarf þeirra kemur í kjölfar þess að til skoðunar hafði verið að koma á fót nýju sjálfstæðu félagi, sem myndi annast rekstur sérhæfðu sjóðanna og yrði meðal annars að hluta í eigu sömu starfsmanna, en slíkar hugmyndir fengu ekki brautargengi hjá lífeyrissjóðum, helstu eigendum framtakssjóðanna. Innherji 2.11.2022 10:48
Skúli hættir hjá Kviku eignastýringu og fer yfir til LSR Skúli Hrafn Harðarson, sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Kviku eignastýringu síðustu ár, hefur sagt upp störfum hjá félaginu. Mun Skúli Hrafn í kjölfarið hefja störf hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, síðar á árinu, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 2.11.2022 05:31
Stál í stál: Fáir að biðja um að allir borgi segir Bjarni um lífeyrissjóðina Það kemur ekki til greina að lífeyrissjóðirnir slái af kröfum sínum á ÍL-sjóð, segir framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða. Á sama tíma segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lífeyrissjóðina ekki munu komast upp með það að stilla ríkissjóði upp við vegg. Innlent 27.10.2022 14:37
Blaðamannafundurinn sem þurrkaði upp milljarða Eftir lokun markaða á fimmtudag hélt fjármálaráðherra blaðamannafund þar sem hann kynnti að Íbúðalánasjóður færi að óbreyttu í þrot eftir 12 ár og að þá myndi reyna á ríkisábyrgð. Samkvæmt þessari sviðsmynd liggur líka fyrir að næstu 12 árin á sjóðurinn fyrir skuldbindingum sínum. Skoðun 27.10.2022 09:30
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. Innlent 26.10.2022 19:20
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. Innherji 26.10.2022 08:15
Alltof stór orð notuð og hafa verði í huga hver láti þau falla Fjármálaráðherra segir mikilvægt að halda því til haga að þeir sem hafi gagnrýnt fyrirhuguð skipti á ÍL-sjóðinum séu aðeins þeir sem hafi beina hagsmuni í málinu - lífeyrissjóðirnir. Stór orð þeirra um greiðslufall ríkissjóðs og laskað lánstraust minnir hann á umræðuna í uppgjörinu við föllnu bankana. Viðskipti innlent 25.10.2022 14:01
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. Innherji 25.10.2022 08:36
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna. Innherji 24.10.2022 11:49
„Hæpið“ að eignaréttindi kröfuhafa séu skert verði ÍL-sjóður settur í þrot Sérstök lög sem hefðu það að markmiði að knýja fram skiptameðferð á ÍL-sjóði, þar sem í engu væri samt haggað ríkisábyrgð á eftirstöðvum skulda sjóðsins, er mun „vægari“ aðgerð en það svigrúm sem löggjafanum hefur verið heimilað af dómstólum til að setja notkun og ráðstöfun eiga skorður vegna almannahagsmuna. Innherji 24.10.2022 06:00
Fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði fara með rangt mál Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga. Innlent 23.10.2022 10:53
Fjármálaráðherra hafi „kallað fram óþarfa óvissu á markaði“ Framkvæmdastjóri eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, sem eru langsamlega stærstu eigendur krafna á hendur ÍL-sjóði, gagnrýnir harðlega tímasetningu Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti tillögur sínar um hvernig gera megi upp eignir og skuldir sjóðsins eftir lokun markaða í gær. Ávinningur ríkissjóðs af aðgerðunum muni jafnframt á móti þýða tap fyrir lífeyrissjóði. Innherji 21.10.2022 16:04
Óvissa um uppgjör ÍL-sjóðs setur „allan skuldabréfamarkaðinn í uppnám“ Tillögur fjármálaráðherra um hvernig leysa megi upp ÍL-sjóð voru „nokkuð óvænt útspil“ en verði það gert á grundvelli svonefndrar einfaldrar ábyrgðar ríkissjóðs, þar sem tæknilega er hægt að greiða upp skuldabréf sjóðs á pari í dag frekar en yfir líftíma þeirra allt til ársins 2044, mun það þýða „umtalsvert“ tap fyrir þá sem halda á bréfunum, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði. Langsamlega stærstu eigendur skuldabréfanna eru lífeyrissjóðir. Innherji 21.10.2022 13:31
Lífeyrissjóðir þurfa að „taka á sig högg“ vegna slita á ÍL-sjóði Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Innherji 21.10.2022 12:04
Ný stjórn Mílu tekur á sig mynd eftir kaup Ardian Stjórnarmönnum í Mílu hefur fjölgað úr þremur í fimm eftir að eignarhaldið á félaginu færðist í hendur franska sjóðastýringarfélagsins Ardian en á meðal þeirra sem koma inn í stjórn innviðafyrirtækisins er fyrrverandi forstjóri stærsta farsímaturnafélags Ítalíu. Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa yfir að ráða einum stjórnarmanni í krafti samtals tíu prósenta eignarhlutar í félaginu. Innherji 20.10.2022 09:32
Klæðlausar Kjarafréttir Eigur íslenska lífeyrissjóðakerfisins, sem standa undir framtíðarlífeyrisgreiðslum, nema 208% af vergri landsframleiðslu á Íslandi samanborið við 61% í Finnlandi, 50% í Danmörku, 11% í Noregi og 4% í Svíþjóð árið 2021, samkvæmt OECD. Lífeyrissjóðakerfi Íslendinga er því sjálfbærara en annarra Norðurlanda og fyrir vikið útheimtir það ekki eins mikla aðkomu hins opinbera. Umræðan 19.10.2022 09:31
Sýn þurfi að bæta reksturinn „enn meira til að skila ásættanlegri“ afkomu Þótt tekjur Sýnar hafi verið að aukast og stjórnendur séu að ná betri tökum á rekstrarkostnaði fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins þá er ljóst að það þarf að bæta reksturinn „enn meira til að félagið skili ásættanlegri“ afkomu, að sögn hlutabréfagreinenda, sem mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í félaginu að svo stöddu. Innherji 11.10.2022 12:01
Lífeyrissjóðir með þriðjung allra nýrra óverðtryggðra íbúðalána Ný óverðtryggð lán lífeyrissjóðanna til heimila nema samanlagt rúmlega 49 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Lífeyrissjóðirnir eru að ryðja sér aftur til rúms á íbúðalánamarkaði, samhliða því að bankarnir eru að draga hratt úr sínum umsvifum, en markaðshlutdeild þeirra þegar kemur að veitingu nýrra óverðtryggðra íbúðalána í samanburði við bankanna er um þriðjungur frá áramótum. Innherji 5.10.2022 15:31
Bættu við sig í Íslandsbanka fyrir á þriðja milljarð króna Helstu lífeyrissjóðir landsins halda áfram að stækka stöðugt hlutabréfastöðu sína í Íslandsbanka og í liðnum mánuði má ætla að þeir hafi bætt við sig bréfum í bankanum fyrir samtals meira en 2,5 milljarða króna. Innherji 4.10.2022 17:30
Spurningin sem ungt fólk nennir ekki að vita svarið við Ísland í dag fór á stúfana í liðinni viku og spurði fólk í yngri kantinum í hvaða lífeyrissjóði það greiddi. Einhverjir vissu svarið, en aðrir alls ekki. „Eru valmöguleikar?“ spurði einn viðmælandinn og þar er svarið já - á þriðja tug sjóða. Innlent 3.10.2022 08:55
Lífeyrissjóðir aukið við gjaldeyriskaup sín um þriðjung á árinu Hrein gjaldeyriskaup íslensku lífeyrissjóðanna hafa vaxið nokkuð það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Svigrúm sjóðanna til að auka vægi fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum í eignasafni sínu hefur einnig aukist talsvert. Innherji 2.10.2022 13:01
„Við erum að tala um ekki bara hundruð milljarða heldur þúsundir milljarða“ Bergi Ebba Benediktssyni rithöfundi og fyrirlesara er margt til lista lagt; hið nýjasta er að vera sérlegur áhugamaður um lífeyrissjóði. Bergur segir í viðtali við Ísland í dag að hann hafi áhyggjur af „ídentítet“-leysi lífeyrissjóða, enda séu þeir á meðal mikilvægari stofnana í okkar samfélagi. Innlent 29.9.2022 08:07