
Danmörk

Handtekinn í tengslum við morðið á vinkonunum í Marokkó
Lík Ueland og Jespersen fundust í grennd við bæinn Imlil í Atlasfjallgarðinum í Marokkó á mánudagsmorgun.

Segja drottninguna hafa fengið ískaldar móttökur
"Ísköld og skilin ein eftir.“ Þetta er forsíðufyrirsögn danska blaðsins Her & Nu en þar má sjá mynd af Margréti Danadrottningu þar sem hún situr fyrir framan Stjórnarráðið á laugardaginn.

Færði forseta bók með áður óséðum skrifum Kristjáns tíunda um Ísland
Margrét Þórhildur Danadrottning kom færandi hendi þegar hún heimsótti landið um helgina.

Mega ekki senda heimilislausum smáskilaboð
Starfsmenn félagsþjónustunnar í Álaborg í Danmörku óttast nú að heimilislausir eða aðrir sem minna mega sín missi nú til dæmis af bókuðum tímum hjá læknum eða tímum hjá hinu opinbera til að fá greiddan framfærslustyrk.

Ásta Björk og Simon unnu Vild med dans
Ásta Björk Ívarsdóttir og dansfélagi hennar, leikarinn Simon Stenspil, báru sigur úr býtum í þáttunum Vild med dans. Um er að ræða dönsku útgáfuna af þáttunum Allir geta dansað.

Deutsche Bank flæktur í sama peningaþvættishneyksli og Danske
Bráðabirgðarannsókn bendir til að um 150 milljarðar Bandaríkjadollara hafi farið um Deutsche Bank í tengslum við peningaþvætti sem Danske Bank er flæktur í.

Fyrrverandi glæpaforingi skotinn eftir bókakynningu í Kaupmannahöfn
Danskir fjölmiðlar segja að hinn 31 árs Nedim Yasar hafi verið skotinn utandyra á Hejrevej í norðvesturhluta Kaupmannahafnar.

Deutsche bank bendlaður við peningaþvættishneyksli Danske bank
Uppljóstrari bar vitni fyrir danskri þingnefnd í dag og segir að á annað hundrað milljarða evra af mögulega illa fengnu fé hafi farið í gegnum Deutsche bank.

Heil fjölskylda grunuð í einu umfangsmesta fjársvikamáli Danmerkur
Hin 64 ára Britta er grunuð um að hafa svikið minnst 111 milljónir danskra króna, eða um tvo milljarða íslenskra króna úr sjóðum danskra félagsmálayfirvalda sem hún starfaði fyrir.

Danski fjársvikarinn Britta Nielsen handtekin
Dönsk kona sem grunuð er um að hafa svikið um 111 milljónum danskra króna, rúma tvo milljarða íslenskra króna, úr sjóðum danskra félagsmálayfirvalda, var handtekin í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun.

Íranir hugðu á árás á danskri jörð
Lögregla í Danmörku telur að útsendarar írönsku leyniþjónustunnar hafi haft í hyggju að framkvæma árás gegn fólki í Danmörku.

Madsen unir lífstíðardómi
Madsen var fyrr á þessu ári dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa orðið sænsku blaðakonunni Kim Wall að bana á síðasta ári.

Lífstíðardómur Madsen stendur
Danski kafbátasmiðurinn Peter Madsen hlýtur lífstíðardóm fyrir að hafa orðið sænsku blaðakonunni Kim Wall að bana á síðasta ári.

Forstjóri Danske Bank hættir: Telja að 200 milljarðar evra hafi flætt í gegnum lítið útibú í Eistlandi
Tomas Borgen, forstjóri Danske Bank, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem forstjóri bankans. Útlit er fyrir að 200 milljarðar evra, því sem nemur 25 þúsund milljörðum íslenskra króna, hafi flætt í gegnum lítið útibú bankans í Eistlandi.

Ár liðið frá dauða Kim Wall: Samfangi réðst á Peter Madsen
Kim Wall verður minnst víða um heim í dag þar sem búið er að skipuleggja hlaup og mun allur hagnaður renna í minningarsjóð um blaðakonuna.

Gagnrýnandi rússneskra stjórnvalda ætlar að kæra Danske bank
Sergei Magnitskí, rússneskur endurskoðandi, sem lést í fangelsi í heimalandinu árið 2009 afhjúpaði peningaþvætti sem fór í gengum danska bankann.

Vill leggja hald á ágóða Danske bank af peningaþvætti
Nýjar upplýsingar hafa komið fram um að jafnvirði allt að 890 milljarða íslenskra króna hafi verið þvegið í útibúi danska bankans í Eistlandi fyrir árið 2015.

Dani sá fyrsti sem er dæmdur fyrir falsfréttir í Malasíu
Hann var dæmdur í mánaðarfangelsi þar sem hann gat ekki greitt sekt.

Peter Madsen dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Kim Wall
Danski uppfinningamaðurinn Peter Madsen var í dag dæmdur í fangelsi fyrir lífstíð fyrir morðið á sænsku blaðakonunni Kim Wall.

„Tvö sigldu af stað, aðeins einn kom til baka“
Saksóknari fer fram á lífstíðarfangelsi yfir danska uppfinningamanninum Peter Madsen og segir engan vafa leika á því að hann hafi myrt sænsku blaðakonuna Kim Wall á hryllilegan hátt.

Varpaði ljósi á Google-leitir Madsen fyrir kafbátaferðina með Wall
Saksóknari í málinu gegn Peter Madsen vegna andláts Kim Wall eyddi megninu af deginum í dag dómsal í Kaupmannahöfn að þylja upp Google-leitir úr tölvum og símum uppfinningamannsins danska.

„Ég bind þig fasta og sting þig á hol með grillteini“
Það sem af er degi hefur verið reynt að varpa ljósi á kynferðislega hegðun danska uppfinningamannsins Peter Madsens, en hann virðist m.a. hafa skipulagt ofbeldisfullan og kynferðislegan hlutverkaleik með konu um borð í kafbátnum.

Var rekinn úr BDSM-samtökum fyrir að vera of rólegur
Sjöundi dagur réttarhaldanna yfir danska uppfinningamanninum Peter Madsen hófst í dag.

Sagður hafa boðið ungum konum ítrekað út í kafbátinn
Sjötti dagur réttarhaldanna yfir danska uppfinningamanninum Peter Madsen, sem ákærður er fyrir að hafa orðið sænsku fréttakonunni Kim Wall að bana, hófst í dag.

„Ég fór út og ældi og hugsaði ekki um þetta í tíu ár“
Vitni, sem yfirheyrð hafa verið í réttarhöldunum yfir danska uppfinningamanninum Peter Madsen í dag, sögðu Madsen hafa haft myndbönd sem sýna fólk deyja í fórum sínum.

Lýsti Madsen sem manni sem væri heillaður af dauðanum
Réttarhöldin yfir danska uppfinningamanninum Peter Madsen halda áfram í Kaupmannahöfn í dag.

Ekki hægt að segja nákvæmlega til um dánarorsök Wall
Réttarhöldin yfir Madsen halda áfram í dag.

Madsen neitar að lýsa því hvernig hann bútaði lík Kim Wall niður
Peder Madsen neitar enn sök í réttarhöldunum yfir honum vegna andláts sænska blaðamannins Kim Wall.

Segir Wall hafa látist vegna kolsýringseitrunar
Danski uppfinningarmaðurinn breytir framburði sínum vegna dauða sænsku blaðakonunnar Kim Wall.

Vildi ekki leggja á veröldina að upplýsa um skelfilegan dauðdaga Kim Wall
Peter Madsen hefur svarað spurningum saksóknara og lögmanna í réttarhöldum í Kaupmannahöfn í dag.