
Kína

Kínverjar segjast ekki ætla að hafa afskipti af kosningunum
Stjórnvöld í Kína sögðust í dag ekki ætla sér að hafa nokkur afskipti af bandarísku forsetakosningunum. Fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta segir í nýrri bók að forsetinn hafi beðið Kínverja um að hjálpa sér að ná endurkjöri.

Sakar Kínverja um að nota frumstæð barefli í landamæradeilu
Háttsettur embættismaður í indverska hernum hefur sakað Kínverja um að hafa notað frumstæð barefli í átökum á landamærum ríkjanna. Hann laumaði mynd af bareflunum sem hann segir kínverska hermenn hafa notað til BBC.

Hefðu líklega ekki getað selt íslenska laxinn vegna hræðslu Kínverja
Mikil hræðsla við lax hefur gripið um sig meðal Kínverja eftir að kórónuveirusýking kom upp í Peking.

Segir Trump hafa biðlað til Xi um aðstoð til að tryggja vinsældir á kosningaári
Stjórn Donald Trump reynir nú hvað hún getur til að koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar en forsetinn fær vægast sagt lélega einkunn hjá þjóðaröryggisráðgjafanum fyrrverandi.

Aflýsa flugferðum eftir að veiran breiddist út á ný
Nokkur hundruð flugferðum til og frá borginni Peking í Kína hefur verið aflýst eftir að kórónuveiran tók að breiðast út um borgina á ný.

Minnst tuttugu indverskir hermenn féllu í átökum við Kínverja
Yfirvöld Indlands segja átökin vera Kínverjum að kenna en þau eru þau mannskæðustu á landamærunum í áratugi og spennan þar hefur magnast til muna að undanförnu. Kína segir atvikið Indverjum að kenna.

Ástandið í Peking vegna kórónuveirunnar grafalvarlegt
Yfirvöld í Peking segja nýjustu útbreiðslu kórónuveirufaraldursins mjög alvarlega. Tugir nýrra tilfella hafa komið upp á síðustu dögum og í kjölfarið hefur íþrótta- og viðburðastöðum verið lokað og ferðabann verið sett í gildi.

Þrír indverskir hermenn létust í átökum við kínverska herinn
Þrír indverskir hermenn létu lífið í átökum við kínverska herinn í Ladakh vegna deilna um Kasmír héraðið. Samkvæmt upplýsingum frá indverska hernum sem birtar voru á vef breska ríkisútvarpsins munu yfirmenn beggja herja funda til að koma í veg fyrir frekari átök og bættu við að báðar hliðar hafi orðið fyrir áfalli.

Sonur eins ríkasta manns Kína sagður hafa synt yfir á til að láta vita af mannránstilraun
Lögregluyfirvöld í Kína segjast hafa komið í veg fyrir bíræfna tilraun til mannráns þegar fimm menn, sagðir vopnaðir sprengjubúnaði, brutust inn á heimili He Xiangjian, eins ríkasta manns Kína, og reyndu að ræna honum

Tilfellum kórónuveiru fjölgar í Peking
Metfjöldi kórónuveirutilfella greindist í Peking á mánudag, annan daginn í röð og hefur verið kallað eftir því að takmarkanir verði settar aftur í gildi.

Staðan í Kína áminning um mikilvægi einstaklingsbundinna smitvarna
Fimmtíu og sjö ný kórónuveirusmit hafa verið greind í Kína á síðasta sólarhring og tengist meirihluti þeirra, eða 36 matarmarkaði í Peking.

Nítján fórust þegar tankbíll sprakk í Kína
Að minnsta kosti nítján eru látnir eftir að tankbíll sprakk í Zhejiang-héraði í Kína í gær.

Loka hluta Peking vegna nýrra smita
Kínversk yfirvöld hafa lokað ellefu íbúahverfum í höfuðborginni Peking vegna nýrrar smitbylgju í borginni sem rakin er til matarmarkaðar í nágrenninu.

Ekkja Li Wenliang eignast son
Fu Xuejie, ekkja kínverska læknisins Li Wenliang, sem fyrstur benti á faraldur kórónuveirunnar, hefur fætt son.

Stærsta skip Íslendinga komið að Súesskurði á leið frá Kína
Dettifoss, stærsta skip sem smíðað hefur verið fyrir Íslendinga, kom í dag að Súesskurðinum á nærri sjötíu daga heimsiglingu skipsins yfir hálfan hnöttinn frá Kína. Þetta nýjasta skip Eimskipafélagsins er væntanlegt til Íslands um miðjan júlí.

Auka vernd beltisdýra í Kína
Yfirvöld í Kína hafa fjarlægt beltisdýr af opinberum lista yfir dýr sem nýta má við hefðbundnar lækningar.

Særði um fjörutíu í hnífaárás í kínverskum barnaskóla
Öryggisvörður í barnaskóla í kínverska í héraðinu Guangxi gekk berserksgang í skólanum í morgun og stakk þar að minnsta kosti 39 með hníf.

Mikil aukning í umsóknum íbúa Hong Kong um bresk vegabréf
Íbúar í Hong Kong geta sótt um endurnýjun á bresku vegabréfi sínu og átt möguleika á að verða breskir ríkisborgarar vegna yfirvofandi innleiðingu öryggislaga kínverskra stjórnvalda í Hong Kong.

Minningarathöfn um mótmælin á Torgi hins himneska friðar fellur niður í fyrsta skipti í þrjátíu ár
Lögreglan í Hong Kong hefur bannað hald minningarathafnar um mótmælin á Torgi hins himneska friðar í fyrsta skipti í þrjátíu ár.

Evrópusambandið biðlar til Bandaríkjanna að endurmeta stuðning við WHO
Evrópusambandið biðlar til Bandaríkjanna að endurmeta ákvörðun sína að hætta að styrkja Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO, vegna viðbragða stofnunarinnar við kórónuveirufaraldrinum.

Bandaríkin hætta að styðja WHO
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að Bandaríkin myndu hætta samstarfi og stuðningi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO.

Vara Bandaríkin við því að grafa undan stöðu Hong Kong sem fjármálamiðstöð
Æðstu ráðendur Hong Kong hafa varað Bandaríkin við því að skipta sér af innleiðingu umdeildra öryggislaga sem runnin eru undan rifjum Kommúnistaflokks Kína.

Vesturveldi mótmæla tilburðum Kína gagnvart Hong Kong
Ríkisstjórnir Bretlands, Bandaríkjanna, Ástralíu og Kanada fordæmdu kínversk stjórnvöld vegna nýrra laga sem þau hafa samþykkt sem þrengja að frelsi íbúa Hong Kong. Lögin stangist einnig á við alþjóðlegar skuldbindingar Kína gagnvart sjálfstjórnarsvæðinu.

Kínverjar samþykkja umdeild öryggislög fyrir Hong Kong
Kínverska þingið hefur samþykkt ný öryggislög fyrir Hong Kong – lög sem munu hafa víðtæk áhrif á íbúa héraðsins og gera það refsivert að grafa undir yfirráðum Kína þar.

Skutu piparkúlum að mótmælendum í Hong Kong
Mótmælendur hafa komið saman til að mótmæla nýjum öryggislögum kínverskra yfirvalda. Hundruð hafa verið handtekin og á þar að mestu við ungt fólk.

Fjárhættuspilakóngur Asíu er látinn
Stanley Ho, sem gekk undir nafninu Guðfaðirinn eða Fjárhættuspilakóngurinn, er látinn, 98 ára að aldri.

Ætla að keyra öryggislög áfram í Hong Kong
Yfirmenn öryggismála í Hong Kong segja „hryðjuverkastarfsemi“ vaxa ásmegin í borginni. Yfirvöld Hong Kong og Kína vinna nú að því að setja á ný lög varðandi öryggismál og auka umsvif leyniþjónusta og annarra kínverskra öryggisstofnanna á eyjunni.

Beittu táragasi gegn andstæðingum nýrra öryggislaga
Þúsundir andstæðinga nýrra öryggislaga um Hong Kong sem Kínverjar hafa sett mótmæltu setningu laganna á götum Hong Kong í dag. Lögreglan beitti táragasi og vatnsbyssum gegn mótmælendum.

Segir Kína og Bandaríkin færast nær „köldu stríði“
Utanríkisráðherra Kína segir ákveðin pólitísk öfl í Bandaríkjunum halda samskiptum ríkjanna í gíslíngu. Hann segir þó ekki um hvaða öfl er að ræða.

Fyrrum ríkisstjóri segir Kína hafa svikið Hong Kong
Chris Patten, sem gegndi embætti ríkisstjóra í Hong Kong á árunum 1992-1997, stýrði Hong Kong áður en að yfirráð voru færð yfir til kínverska yfirvalda eftir 150 ár af breskri stjórn, sagði í viðtali við the Times að Bretar hefðu skyldu til að standa við bakið á Hong Kong.