Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Lögregluyfirvöld í New York leita vitna að morði Kinu Rochford, fyrrverandi leikmanns Þórs Þorlákshafnar og Hamars hér á landi. Móðir hans syrgir son sinn og tjáði sig við CBS. Körfubolti 12.7.2026 14:20
Argentínsk goðsögn fallin frá Argentínumaðurinn Antonio Rattin, sem leiddi til þess að gul og rauð spjöld voru kynnt til sögunnar í fótbolta, er látinn 89 ára að aldri. Fótbolti 12.7.2026 11:31
Lindsey Graham er látinn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham lést í gærkvöldi 71 árs að aldri eftir bráð veikindi. Erlent 12.7.2026 07:40
Bonnie Tyler er látin Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“. Tónlist 9. júlí 2026 09:23
Kristinn V. Jóhannsson er látinn Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi stjórnarformaður Síldarvinnslunnar til nítján ára, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést 3. júlí síðastliðinn á heimili sínu í Reykjavík. Viðskipti innlent 8. júlí 2026 11:11
Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin 53 ára að aldri. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí síðastliðinn eftir erfið veikindi. Þrúður var lærð leikkona, lék á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi og starfaði sem flugfreyja í tvo áratugi samhliða leiklistinni. Lífið 8. júlí 2026 10:26
Megas er látinn Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi. Megas var 81 árs gamall. Lífið 7. júlí 2026 10:19
Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Tónlistarkonan Lauren Bennett er látin, 37 ára að aldri. Hún var hluti af sveitunum Paradiso Girls og G.R.L. auk þess að vera þekkt fyrir framkomu sína í laginu Party Rock Anthem sem kom út með LMFAO árið 2011. Lífið 6. júlí 2026 18:40
Michael Byrne er látinn Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1. júlí 2026 10:13
Söngvari YMCA látinn Victor Willis, bandarískur söngvari diskósveitarinnar Village People sem var geysivinsæl á áttunda áratugnum fyrir slagarann YMCA, er látinn 74 ára að aldri. Tónlist 1. júlí 2026 09:10
Séra Þórir Stephensen er látinn Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í gær. Hann var 94 ára. Innlent 1. júlí 2026 06:51
Halldór Haraldsson er látinn Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. Tónlist 30. júní 2026 17:14
Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Franskur fótboltamaður að nafni Kenzo Kies drukknaði í ánni Rón í byrjun vikunnar. Hann var aðeins 21 árs. Fótbolti 25. júní 2026 11:30
Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði. Tónlist 22. júní 2026 19:17
Alan Greenspan er látinn Alan Greenspan, hagfræðingur og fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð hundrað ára gamall. Erlent 22. júní 2026 11:18
James Burrows látinn Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg. Bíó og sjónvarp 19. júní 2026 21:17
Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes. Tónlist 19. júní 2026 10:20
Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, áttatíu og sex ára að aldri. Hún var fjölhæf listakona og hlaut Edduverðlaun í tvígang, fyrst árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar Alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. Árið 2024 hlaut Margrét Helga svo heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld. Lífið 18. júní 2026 15:20
Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Daveigh Chase, leikkona og fyrrum barnastjarna, er látin þrjátíu og fimm ára að aldri. TMZ greinir frá því að hún hafi fyrr í þessum mánuði lagst inn á sjúkrahús vegna vannæringar. Haft er eftir kærasta hennar að dánarorsökin hafi verið blóðsýking í kjölfar heilahimnubólgu sem leitt hafi til fjöllíffærabilunar. Lífið 17. júní 2026 22:55
Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Bandaríski tónlistarmaðurinn Oliver Tree er látinn, 32 ára að aldri. Hann fórst í þyrluslysi í Rio de Janeiro í Brasilíu. Tree er þekktur fyrir lög á borð við Life Goes On, When I'm Down og Miss You. Lífið 14. júní 2026 20:55
Margaret Kerry er látin Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals. Bíó og sjónvarp 14. júní 2026 12:39
David Hockney er látinn Myndlistarmaðurinn David Hockney, risi breskrar samtímalistar og einn áhrifamesti listamaður bæði 20. og 21. aldarinnar, er látinn, 88 ára að aldri. Meðal þekktustu verka hans eru poppmálverkin The Splash og Pool with Two Figures af sólsleiktum sundlaugum Kaliforníu. Menning 12. júní 2026 11:01
Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir. Lífið 11. júní 2026 17:27
Þorsteinn Ólafsson er látinn Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Innlent 10. júní 2026 11:08