
Tesla

Musk kallar verkfallsaðgerðir í Svíþjóð „geðveiki“
„Þetta er geðveiki,“ segir Elon Musk, stofnandi Tesla, á X/Twitter um verkfallsaðgerðir sem standa yfir í Svíþjóð og beinast gegn starfsstöðvum fyrirtækisins þar í landi.

Tesla Cybertruck á Íslandi
Það sást til Cybertruck, óútkomins pallbíls frá Tesla, á Langjökli í gær. Á myndbandi frá jöklinum virðist sem verið sé að taka upp auglýsingu fyrir bílinn sem á að koma út á seinni hluta ársins.

Stjórnarmenn Tesla samþykkja að skila 735 milljónum dala
Stjórnarmenn Tesla hafa samþykkt að skila 735 milljónum dala í hlutafjárkaupréttum, eftir að hluthafar höfðuðu mál á hendur þeim vegna ákvörðunar þeirra um óhóflegar greiðslur til handa þeim sjálfum.

Tesla á Íslandi slær met
Rúmlega 1300 bílar af gerðinni Tesla Model Y hafa verið nýskráðir hérlendis það sem af er ári. Um er að ræða mesta fjölda af einni bílategund á einu ári frá upphafi. Tölurnar vekja athygli alþjóðlegra stjórnenda Tesla fyrirtækisins en alls hafa 4000 bílar af Tesla gerð verið nýskráðar á Íslandi.

Fjögur þúsund kvartað yfir draugabremsun
Bílaframleiðandinn Tesla hefur fengið þúsundir kvartana vegna aðstoðarkerfis ökumanna. Einnig hefur fyrirtækinu mistekist að verja upplýsingar um viðskiptavini og starfsmenn.

Stefna vegna áhrifa uppfærslu á drægni Tesla-bifreiða
Hópur eigenda tveggja tegunda Tesla-rafbireiða hyggjast stefna framleiðandanum vegna sjálfvirkrar hugbúnaðaruppfærslu sem þeir segja að hafi dregið úr drægni bifreiðanna eða jafnvel skemmt rafhlöðu þeirra.

Tesla reyndi að fá Karen til að hætta við tillögu
Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur ákveðið að taka tillögu Karenar Róbertsdóttur, fjárfestis, upp á aðalfundi í vor. Tillagan lýtur að lykilpersónuáhættu í ljósi áhugaleysis Elon Musk á fyrirtækinu undanfarin misseri.

Starfsmenn Tesla deildu viðkvæmum myndum viðskiptavina
Hópur starfsmanna bílaframleiðandans Tesla segir að myndir og myndskeið, sem bílar viðskiptavina fyrirtækisins hafa tekið, hafi gengið milli starfsmanna í hópspjöllum á netinu. Sum myndskeiðin séu af viðkvæmum toga líkt og eitt sem sýnir viðskiptavin kviknakinn. Þá virðist eitt myndskeiðanna hafa verið tekið af bíl sjálfs Elons Musk, forstjóra Tesla.

Teslur tala nú íslensku
Nokkrir eigendur Tesla-bifreiða geta nú valið íslensku sem tungumál ökutækisins. Okkar ástkæra og ylhýra er þar með komið í hóp rúmlega tuttugu tungumála sem bíllinn býður upp á.

Enn einni Teslunni ekið á neyðarbifreið vestanhafs
Ökumaður Tesla-bifreiðar lést og farþegi slasaðist alvarlega þegar henni var ekið á kyrrstæða slökkvibifreið á hraðbraut í norðanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum á laugardag. Brunabílnum hafði verið lagt til að vernda slökkviliðsmenn á vettvangi annars slyss. Fjöldi sambærilegra slysa þar sem Teslur koma við sögu hefur átt sér stað vestanhafs.

Tesla kallar inn þúsundir bíla vegna hættulegrar sjálfstýringar
Rafbílaframleiðandinn Tesla ætlar að kalla inn á fjórða hundrað þúsunda bifreiða með svonefndri fullri sjálfstýringu. Kerfið hefur reynst óáreiðanlegt við gatnamót og fylgir ekki alltaf hraðatakmörkunum.

Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar
Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018.

Talinn hafa ekið viljandi niður þverhnípið með fjölskylduna innanborðs
Lögregla í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna telur að ástæða sé til að ætla að ökumaður Tesla-bíls hafi ekið viljandi út af veginum við þverhníptar strendur Kyrrahafs, með fjölskyldu sína innanborðs. Ökumaðurinn hefur verið handtekinn vegna málsins.

Björgunarafrek þegar fjölskylda í Teslu steyptist fram af bjargi
Ljóst er að björgunarafrek var unnið í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna í gær þegar Tesla með fjögurra manna fjölskyldu innanborðs steyptist fram af 76 metra háu þverhnípi niður í grýtta fjöru.

Gærdagurinn sá versti í átta mánuði hjá Tesla
Virði hlutabréfa rafbílaframleiðandans Tesla var í gær lægra en það hefur verið í meira en tvö ár. Fjárfestar í Tesla óttast að Musk einbeiti sér of mikið að samfélagsmiðlinum Twitter.

Musk tímabundið steypt af stóli
Auðjöfurinn Elon Musk tapaði titlinum „ríkasti maður heims“ um stund fyrr í dag og Bernard Arnault og fjölskylda hans, hoppaði upp í fyrsta sæti. Arnault er forstjóri LVMH, móðurfyrirtækis Louis Vuitton.

Elon Musk: Tesla Semi flutningabíll komst 800 km full lestaður
Flutningabíllinn Tesla Semi fór 800 kílómetra á einni hleðslu full lestaður, samkvæmt Elon Musk, framkvæmdastjóra Tesla. Afhendingar á Semi munu hefjast á næstu dögum.

15 bílaframleiðendur sem Elon Musk hefði geta keypt í stað Twitter
Elon Musk borgaði 44 milljarða dollara fyrir samfélagsmiðilinn Twitter eins og frægt er orðið. Hann hefði getað keypt ýmislegt annað. Hér eru 15 bílaframleiðendur sem Musk hefði geta keypt í stað Twitter.

Tesla Model S með fimm stjörnur í NCAP
Tesla Model S hlaut á dögunum fimm stjörnu öryggiseinkunn há Euro NCAP. Euro NCAP gerði prófanir á nýjustu útgáfu af Model S, í samræmi við nýjustu og ströngustu prófunarstaðlana frá 2020-2022, þar sem geta ökutækisins til að vernda fullorðna einstaklinga, börn og gangandi vegfarendur er í forgangi ásamt mat á hegðun til að forðast árekstra og aðra öryggisaðstoð.

Musk selur enn fleiri bréf í Tesla
Elon Musk, ríkasti maður jarðar, seldi á dögunum hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla fyrir tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadala.

Mætti með vask í höfuðstöðvar Twitter
Auðjöfurinn Elon Musk er líklegur til að eignast samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter formlega í þessari viku. Í gær mætti hann í höfuðstöðvar fyrirtækisins í San Francisco með vask í fanginu. Frestur Musks til að kaupa fyrirtækið á um 44 milljarða dala rennur út á morgun og virðist sem yfirtakan sé langt komin.

Selur í Tesla af ótta við þvinguð kaup á Twitter
Auðjöfurinn Elon Musk hefur selt hlutabréf í Tesla fyrir um 6,9 milljarða dala, sem samsvarar tæplega billjón króna, lauslega reiknað. Musk seldi bréfin af ótta við að verða þvingaður til að kaupa samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter.

Tesla Model Y að verða mest seldi bíll heims
Rafjepplingurinn Tesla Model Y er á hraðri leið með að vera mest seldi bíll ársins 2022 þegar horft er til tekna af sölu. Á næsta ári er útlit fyrir að Model Y verði mest seldi bíll heims þegar kemur að seldum eintökum. Það verður að teljast merkilegur árangur fyrir stóran rafbíl.

Elon Musk: Tæknilegar breytingar og verðið mun hækka á Cybertruck
Framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk segir að margt hafi breyst síðan bíllinn var fyrst kynntur árið 2019. „Það þýðir að tæknilýsingin og verðið munu breytast,“ sagði Musk á hluthafafundi Tesla, sem kallast Cyber Roundup.

Musk þvertekur fyrir ásakanirnar
Elon Musk, forstjóri og stofnandi Tesla, neitar því að hafa nokkurn tímann átt í kynferðislegu sambandi með Nicole Shanahan, eiginkonu stofnanda Google, Sergey Brin.

Stofnandi Google segir eiginkonu sína hafa haldið framhjá sér með Elon Musk
Sergey Brin, einn stofnenda leitarvélarinnar Google, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni, Nicole Shanahan. Ástæðan ku vera að hún hafi haldið framhjá Brin með forstjóra og stofnanda Tesla, Elon Musk.

Dómstólar ákveða hvort Musk skuli kaupa Twitter
Dómstólar í Delaware hafa komist að þeirri niðurstöðu að Elon Musk þurfi að fara fyrir dóm vegna kaupa sinna á Twitter eða hvort hann skuli standa við þau.

Stjórnendur Twitter höfða mál gegn Musk
Stjórnendur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn Elon Musk, eftir að auðjöfurinn hætti við 44 milljarða dala yfirtöku á fyrirtækinu. Forsvarsmenn Twitter hafa nú krafist þess fyrir dómstól í Delaware að Musk verði látin standa við tilboð sitt, upp á 54 dali fyrir hvern hlut.

Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál
Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum.

Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“
Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna.