Birtist í Fréttablaðinu

Lögmaður númer 109
Það er erfitt að ímynda sér nútímalegt vestrænt ríkisvald sem myndi láta sér detta í hug að senda frá sér svona auglýsingu.

Var alltaf með augastað á Ástralíu
Landsliðskonurnar Fanndís Friðriksdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir eru á leiðinni í afar spennandi verkefni en þær eru búnar að samþykkja að ganga til liðs við Adelaide United í áströlsku kvennadeildinni á láni fyrir komandi tímabil.

Hvassviðri á föstudaginn
Afar lítilli úrkomu er spáð á höfuðborgarsvæðinu.

Félag Gísla Haukssonar hagnast um 84 milljónir
Hagnaður fjárfestingafélags Gísla Haukssonar, annars stofnenda GAMMA, jókst um 66 milljónir króna á milli ára.

Vaxtahækkun vekur athygli
Í nýlegu viðtali tjáði Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Ísland, sig um hækkun fastra óverðtryggðra vaxta á íbúðalánum hjá innlánsstofnunum og lífeyrissjóðum, sem hafa hækkað nokkuð undanfarið.

Vissi nákvæmlega hvað gera skyldi
Jón Björnsson leiddi vel heppnaða umbreytingu á rekstri Festar sem meðal annars rekur Krónuna.

Káfaði á stúlku í Kringlunni
Var El Mustapha ákærður fyrir brot gegn barnaverndarlögum.

Kæra lögreglu vegna lélegrar rannsóknar
Lögmaður tveggja stúlkna og móður þeirra hefur lagt fram kærur bæði til ríkis- og héraðssaksóknara vegna meðferðar lögreglu á rannsókn brota föðurins gegn stúlkunum. Málið komst í hámæli í vor vegna afskipta þáverandi forstjóra Barnaverndarstofu.

190 milljóna króna söluhagnaður Kristínar
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, KP Capital.

Velta Kortaþjónustunnar tvöfaldaðist
ortaþjónustan tapaði 1,6 milljörðum króna í fyrra, eins og áður hefur verið upplýst um.

Advania keypti Wise fyrir 800 milljónir króna
Advania mun greiða Akva 799 milljónir króna í reiðufé.

Þjóð á krossgötum
Í nýrri bók fjallar Guðrún Nordal um tímana sem við lifum, hugmyndir um Ísland og sögurnar sem við segjum. Rökræðir og spyr spurninga.

Segir Icelandair ekki hafa sýnt fram á ávinning
Flugfreyjuélag Íslands hefur mótmælt ákvörðuninni harðlega.

Ævintýrið fékk farsælan endi
Tiger Woods vann fyrsta golfmót sitt í fimm ár um helgina eftir áralanga baráttu við erfið bakmeiðsli. Besti kylfingur allra tíma var þar að vinna sitt 80. mót á PGA-mótaröðinni og nálgast metið á mótaröðinni.

Samflot í viðræðum hafi tíðkast í áratugi
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekkert nýtt í hugmyndum um ofurbandalag verkalýðsfélaga. Bendir á að báðir aðilar þurfi að miðla málum. Aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ segir samflot skila árangri við gerð kjarasamninga.

Rými í Leifsstöð verði boðin út
Lagt hefur verið fram frumvarp þess efnis að Isavia ohf. og dótturfélag þess á Keflavíkurflugvelli hætti að reka verslanir með tollfrjálsar vörur í Leifsstöð.

Reykjavíkurdætur hitta í mark í Evrópu
Reykjavíkurdætur hafa verið tilnefndar til MMEFT-verðlaunanna sem ef marka má söguna þýðir að þær muni meika það næst íslenskra hljómsveita. Plötusamningur gæti verið á borðinu hjá sveitinni.

Fullorðið fólk í byssuleik
Fyrir tæpum fimmtíu árum rændi hinn dularfulli þjóðflokkur Grandóníumanna íslenskum vísindamanni og íturvaxinni dóttur hans og hélt með til fjalla.

Hagsmunir hvaða sjúklinga?
Síðustu vikur hefur umræða um heilbrigðismál og hagsmuni sjúklinga ratað í ýmsa fréttamiðla. Umræðan hefur meðal annars snúist um það að heilbrigðiskerfið eigi að vera þess eðlis að hagsmunir sjúklinga séu í forgangi þegar þjónustan er skipulögð.

Fagnar afmælinu í Róm
Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi landlæknir, er sjötugur í dag. Hann er við eyjuna Capri þegar hann svarar síma. Ánægður með allt nema starfslokareglu lýðveldisins.

Vilja sálfræðing í öll fangelsin
Föngum verði þannig tryggður aðgangur að sálfræðiþjónustu innan veggja fangelsanna.


Víkingaklapp fyrir verðlagið
Ég var staddur á spænskri ferðaskrifstofu fyrir stuttu þegar þjóðerni mitt barst í tal og þar sem mannmergð var allnokkur hafði ég uppi hin fegurstu orð um landið og hnykkti út með því að ferðaskrifstofan ætti að bjóða upp á ferðir þangað.

Sóknarfæri
Krabbamein má annaðhvort rekja til gena sem orðið hafa fyrir skemmdum vegna krabbameinsvaldandi efna, eða til handahófskenndra mistaka sem eiga sér stað þegar gen eru afrituð við frumuskiptingu. Þekking okkar, framfarir og tækni eru ljóslega vanmáttug vopn gegn gerræði náttúrunnar.

Valfrelsi í skólamálum
Reykjavíkurborg greiðir 75% af meðalrekstrarkostnaði grunnskóla landsins á nemanda með barni í sjálfstæðum skóla. Þetta veldur því að sjálfstæðu skólarnir verða að innheimta skólagjöld.

Íslenskan í Hollywood
Í nýjustu þáttaröð Netflix, Maniac, leikur Jonah Hill íslenskan njósnara. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem erlendir leikarar túlka okkur Íslendinga. Fréttablaðið tók saman nokkra eftirminnilega karaktera.

Íslandsvinurinn Richard Ashcroft lætur internettröllin heyra það
Rokkarinn og Íslandsvinurinn Richard Ashcroft úr The Verve fór mikinn á myndbandi (sem nú er búið að eyða) á Instagram-reikningi sínum þar sem hann húðskammaði internettröll.

Hálfur milljarður án útboðs í borginni
Á fyrstu sex mánuðum ársins námu innkaup Reykjavíkurborgar án útboðs ríflega 574 milljónum króna. Gerðar voru alvarlegar athugasemdir við kostnaðinn í innkauparáði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins krefst skýringa. Borgarstjóri vildi ekki tjá sig um málið.

Innri endurskoðun sé alveg óháð pólitískum fyrirmælum
Tímabundinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur tók til starfa í gær. Hún var sett inn í starfið á maraþonfundi með stjórn fyrirtækisins. Hún segir óhæði úttektaraðila OR algjörlega tryggt.

Telur veggjaldið of hátt
Lektor sem rannsakar greiðsluvilja vegfarenda telur afar ólíklegt að fólk muni greiða 2.000 krónur í veggjald til að fara í gegnum Vaðlaheiðargöng. Rekstraraðili ganganna ætlar sér að veita tryggum viðskiptavinum ríkulegan afslátt.