Birtist í Fréttablaðinu

Möguleg brot í Seðlabankanum ekki komin til lögreglu
Þagnarskyldubrot eru fyrst kærð til lögreglu og fara svo eftir atvikum í ákæruferli hjá embætti héraðssaksóknara.

Vakta tugi einstaklinga vegna gruns um mislinga
Ekkert nýsmit var skráð í gær en mikið var að gera á símavakt Læknavaktarinnar í gær. Sóttvarnalæknir segir tugi einstaklinga undir smásjá heilbrigðisyfirvalda vegna hugsanlegs smits. Nýsmit gætu komið fram á næstu tíu dögum.

Yrði að segja Birnu upp til að lækka bankastjóralaunin háu
Laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, verða ekki lækkuð einhliða án þess að segja upp ráðningarsamningi hennar. Fjármálaráðherra hefur kallað eftir endurskoðun launa ríkisbankastjóranna. Stjórn bankans nýbúin að verja launahækkanir. Ólíklegt að vilji sé fyrir kjaraskerðingu.

Róbó-ráðgjöf fær nýja fjárfesta til leiks
Sjálfvirkni hefur aukið aðgengi að fjárfestingaráðgjöf og eignastýringu erlendis. Róbó-ráðgjafar hafa lækkað verð þjónustunnar og gert fjármálafyrirtækjum kleift að höfða til breiðari hóps.

Róla fyrir góðan trúnó
Strútslampi og róla eru dýrgripir Gretu Salóme heima við. Hún kveikir á kertum í glaða sólskini og segist lánsöm með kærasta sem stendur traustur við bak hennar en þarf stundum að róa niður í húsverkum.

Tæknirisinn Amazon opnar matvöruverslanir
Tæknirisinn Amazon hefur áform um að opna fjölda matvöruverslana í helstu stórborgum Bandaríkjanna á næstu misserum, samkvæmt heimildum Wall Street Journal.

Kaupin sögð jafngilda stríðsyfirlýsingu
Kaup hollenska ríkisins á eignarhlut í Air France-KLM, sem er að hluta í eigu franska ríkisins, kom frönskum stjórnvöldum verulega á óvart.

Lyft hefur ekki enn skilað hagnaði
Stjórnendur Lyft, sem stefnir á hlutabréfamarkað á árinu, upplýstu fyrir helgi að bandarísku leigubílaþjónustunni hefði enn ekki tekist að skila hagnaði.

Tvöfaldaði fjárfestinguna á Íslandi
Norski olíusjóðurinn keypti skuldabréf Landsvirkjunar fyrir um 6,7 milljarða króna á síðasta ári. Heildarfjárfesting sjóðsins á Íslandi nam 13,7 milljörðum í lok síðasta árs borið saman við 7 milljarða í lok 2017.

Stífla ógnar tilvist órangútanategundar
Talið er að einungis 800 tapanuli-órangútanar séu eftir í heiminum. Allir búsettir á þessu sama svæði.

Misjafnt hversu mikil eftirspurn er eftir háskólamenntuðum
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að nemendur séu vel upplýstir um þá möguleika sem þeir hafa að loknu námi.

Íslenska krónan hefur reynt á þolrifin
Það er áskorun fyrir 77 ára gamalt fyrirtæki sem ber nafnið Coca-Cola að glíma við hollari neysluvenjur, segir forstjórinn. Það gætu verið fjögur ár í að vatn verði selt í meira mæli en sykrað gos.

Virði Kerecis gæti verið 11,4 milljarðar króna
Kerecis, sem þróar, framleiðir og markaðssetur vörur til meðhöndlunar á sköðuðum líkamsvef og húð, hyggst afla sér allt að 7,5 milljónum dala, jafnvirði um 900 milljóna króna, með útgáfu nýs hlutafjár síðar í þessum mánuði.

Tekjur Bláa lónsins 15,5 milljarðar
Til samanburðar voru tekjurnar um 13,9 milljarðar króna allt árið 2017.

Segja Arion banka verða að sýna meiri ráðdeild
Sérfræðingar Capacent hafa lækkað verðmat sitt á bankanum um 4,5 prósent frá því í nóvember í fyrra og meta nú gengi hlutabréfa hans á 85 krónur á hlut.

Bjóða um 5,5 prósenta hlut í Fossum til sölu
Óformlegar viðræður við áhugasama fjárfesta hafa átt sér stað á undanförnum vikum, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Lítil skref
Frumskógarlögmál og verðbólga ríkja á húsnæðismarkaði. Þetta kristallast meðal annars í þeirri staðreynd að húsnæðisverð hefur hækkað um 100 prósent á síðustu átta árum í stærsta sveitarfélagi landsins þar sem flestir búa.

Innflutningur á kjöti hefur lítil áhrif
Frestur til að senda inn umsögn um frumvarp sem heimilar innflutning á fersku kjöti rennur út í dag. Meirihluti landsmanna er á móti tilslökunum á innflutningi.

Jeff Bezos og Bill Gates fjárfesta í jarðvarma á Íslandi
Baseload Capital fjármagnar meðal annars íslenska fyrirtækið Varmaorku sem vinnur að uppbyggingu lághita jarðvarmavirkjana á Íslandi.

Ljós í myrkrinu
Ekki fylgdi sögunni að þetta ætti við hagsöguna en í tilfelli Íslands virðist svo vera. Eftir að lítið kom úr flöskunni frá 2009 og fram eftir ári 2014 má segja að skyndilega hafi öll sósan runnið út í hagkerfið.

Neyðarfundur sóttvarnalæknis vegna fjögurra mislingasmita
Neyðarfundur var haldinn hjá sóttvarnalækni vegna mesta fjölda mislingatilvika síðan 1977. Umdæmislæknir sóttvarna á Austurlandi segir smitbera hafa farið víða og verið sé að hafa uppi á þeim sem gætu hafa smitast af þeim.

Sólning á leið í gjaldþrot
Tekjur Sólningar námu tæpum tveimur milljörðum 2017 og hagnaðurinn tveimur milljónum.

Gætu þurft að taka á sig tugprósenta afföll
Fulltrúar Indigo Partners krefjast þess að skuldabréfaeigendur WOW air taki á sig tugprósenta afskriftir og að endanlegur hlutur Skúla Mogensen verði minni en áður hefur verið rætt um. Skilyrðin ollu Skúla miklum vonbrigðum.

Einn af þremur segist styðja stjórn Katrínar
Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að dala og vinstri græn tapa fylgi. Sjálfstæðisflokkur bætir mestu við sig og Miðflokkur vinnur á eftir fylgishrun í síðustu könnun. Samfylkingin tapar mestu fylgi milli kannana.

Lagði fram frumvarp um fiskeldi
Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að áhættumat erfðablöndunar verði lögfest og heildarframleiðslumagn frjórra laxa byggi á því mati.

Ragnar Þór hrifinn af kjarapakkanum
Meirihluti borgarstjórnar felldi í gær fjórar tillögur Sjálfstæðisflokksins sem lagðar voru fram til að liðka fyrir kjarasamningum. Borgarstjóri sagði tillögurnar lýðskrum. Formaður VR telur tillögurnar gott innlegg í umræðuna.

Hin smágerða fegurð hversdagsins
Þorri Hringsson sýnir í Galleríi Fold. Er með ótal myndir í höfðinu. Leitar í fegurðina.

Vantaði töluvert upp á grunngildin hjá okkur
Stelpurnar okkar fengu skell á móti Skotum.

Versnandi samband Kanada og Kína
Yfirvöld í Kína hafa ákært Kanadamennina Michael Kovrig, fyrrverandi erindreka, og Michael Spavor athafnamann fyrir njósnir.

Segir foreldrana eiga mikið hrós skilið fyrir viðbrögðin
Ellefu mánaða barn greindist með mislinga um helgina. Barnalæknir segir foreldrana eiga hrós skilið fyrir viðbrögðin. Barninu var haldið heima og önnur börn voru ekki í smithættu.