Framsóknarflokkurinn

Alfreð Þorsteinsson er látinn
Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitunnar, er látinn, 76 ára að aldri.

Þórunn full tilhlökkunar að snúa aftur á þing eftir veikindaleyfi
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, snýr aftur á þing í dag eftir að hafa verið í veikindaleyfi í rúmt ár vegna þriðja stigs brjóstakrabbameins sem hún greindist með í fyrra.

Ætlar að forgangsraða fjármunum í þágu starfs-og verknáms
Menntamálaráðherra segir að verið sé að huga að framtíðarhúsnæði Tækniskólans vegna mikillar fjölgunar umsókna í iðn-og tækninám. Þá sé unnið að aðgerðum til að forgangsraða fjármunum í þágu námsins.

Mælti loks fyrir fjölmiðlafrumvarpinu eftir erfiða meðferð í ríkisstjórn
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mælti í kvöld fyrir breytingum á lögum um fjölmiðla á Alþingi. Verði frumvarp hennar samþykkt geta einkareknir fjölmiðlar átt rétt á stuðningi frá hinu opinbera að uppfylltum skilyrðum.

Mikilvægt fyrir næsta útvarpsstjóra að þjóðin fái að sjá hverjir aðrir sóttu um stöðuna
Menntamálaráðherra telur að stjórn RÚV eigi að birta lista yfir umsækjendur um starf útvarpsstjóra. Það snúist um gagnsæi og opna stjórnsýslu. Formaður stjórnar RÚV segir að afstaðan til málsins hafi ekkert breyst.

Sigurður Ingi er sár og reiður
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og ráðherra segist verða sár og reiður þegar hann heyrir um peninga, sem fluttir eru í skattaskjól í aflandsfélögin.


Leiðtogum stjórnarflokkanna brugðið og vilja ýtarlega rannsókn
Leiðtogum stjórnarflokkanna var öllum brugðið við fréttirnar af meintum mútugreiðslum og öðru háttarlagi Samherja í Namibíu.

Ummæli ráðuneytisstjóra ekki í anda Framsóknar og ríkisstjórnar
Formaður Framsóknarflokksins segir að miðað við fréttaflutning af ummælum ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins um málefni útlendinga á vinnumarkaði, sé augljóst að þau séu hvorki í anda Framsóknarflokksins né stefnu ríkisstjórnarinnar.

Lilja skipar flokksbróður nýjan ráðuneytisstjóra
Páll Magnússon hefur verið ráðinn í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Þriðjungi færri stjórnarfrumvörp komin til þingsins
Þriðjungi færri stjórnarfrumvörp hafa verið lögð fyrir á Alþingi í ár en á sama tíma í fyrra. Þá hafa ráðherrar aðeins mælt fyrir þriðjungi þeirra mála sem ættu að vera fram komin samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.

Undrast meint samráðsleysi um samgönguáætlun
Þingmaður Framsóknarflokksins kveðst undrandi yfir umræðu um meint samráðsleysi við kynningu endurskoðaðrar samgönguáætlunar. Ólíklegt þykir að það takist að afgreiða málið fyrir áramót.

Norrænir miðjuflokkar vilja afnema klukkubreytingu
Tillaga um afnám klukkubreytinga í norrænum löndum er meðal þess sem liggur fyrir Norðurlandaráðsþingi sem hefst í dag. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, er meðal flutningsmanna tillögunnar en hún kveðst vongóð um að hún nái fram að ganga.

Þykir „sárt og óþolandi“ að vera bendlaður við Panama-skjölin í nýrri Netflix-mynd
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir að sér þyki sárt og óþolandi að vera bendlaður Panama-skjölin í nýrri mynd Netflix sem heitir The Laundromat.

Lilja Rannveig áfram formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hlaut um helgina endurkjör sem formaður Sambands ungra Framsóknarmanna, SUF.

Þingmenn takast áfram á um formennsku Bergþórs utan vinnutíma
Talsverður styr hefur verið á Alþingi vegna kjörs Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, í formannssæti umhverfis- og samgöngunefndar í dag. Bergþór var kjörinn með tveimur atkvæðum Miðflokksins á meðan fulltrúar annarra flokka í nefndinni sátu hjá.

Meira frelsi á leigubílamarkaði, miðhálendisþjóðgarður og skipt búseta barns
Það kennir ýmissa grasa í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur en málalistinn var lagður fram í vikunni.

Framsókn er komin í erfiða stöðu
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna er langt frá því að halda meirihluta sínum ef marka má skoðanakannanir. Framsóknarflokkurinn mælist með um sex prósenta fylgi og er langt frá kjörfylgi sínu.

Björn Leví ræddi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar
Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Oddný G. Harðardóttir og Willum Þór Þórsson ræddu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Fyrrverandi forsetaframbjóðandi aðstoðar Lilju á ný
Hrannar Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.

Framsókn vill auðlindaákvæði
Framsóknarflokkurinn leggur höfuðáherslu á þjóðareign auðlinda og ætlar að fylgja því fast eftir á kjörtímabilinu að slíkt ákvæði verði sett í stjórnarskrá.

Ríkisstjórnin hristir sig saman við Mývatn
Ríkisstjórnin hélt ríkisstjórnarfund í Mývatnssveit í dag og fundaði með sveitarstjórnum og hagsmunaðilum á svæðinu. Þá notaði hún tækifærið til að hrista sig saman fyrir komandi þingvetur

Fylgi Sjálfstæðisflokksins ekki mælst minna síðan í hruninu
Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup nýtur Sjálfstæðisflokkurinn 21,6 prósenta fylgis. Í nóvember 2008, eða í efnahagshruninu, var fylgi flokksins 20,6 prósent. Viðreisn bætir við sig tveimur prósentustigum á meðan fylgi annarra flokka helst svo til óbreytt.

Mjólkin í mestum metum hjá kjósendum Miðflokks og Framsóknar
Neysla grænmetisfæðis, umhverfisvænna matvæla, lífrænna matvæla og veganfæðis reyndist tíðust á meðal þeirra svarenda sem kváðust hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af loftslagsmálum.

Sigurður Ingi við þingmenn Miðflokksins: „Þér er ekki boðið!“
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, talaði um Miðflokkinn í ræðu sinni.

Líneik Anna: Verkefnið að tryggja öllum byggðum tækifæri til þróunar
Þingkona Framsóknarflokkur segir áskorunina vera að flétta saman sem flest markmið uppbyggingar, verndar og sjálfbærrar nýtingar - við landnotkun, landgræðslu, skógrækt og landvörslu.

Framsóknarkonur fordæma niðurstöðu siðanefndar í ljósi Klaustursmálsins
Þetta kemur fram í tilkynningu sem LFK sendi frá sér í gærkvöldi.

Lilja gefur ekki upp afstöðu til þungunarrofs
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra vill ekki gefa upp afstöðu sína til þungunarrofsfrumvarpsins sem samþykkt var í fyrradag þar sem konum er gert kleift að rjúfa þungun á 22. viku meðgöngu.

Þórunn víkur af þingi vegna krabbameins
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknar, hefur greinst með brjóstakrabbamein.

Dregur sig frá þingstörfum vegna brjóstakrabbameins
Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins ætlar að draga sig frá þingstörfum og kalla inn varamann þar sem hún hefur greinst með brjóstakrabbamein.