

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

María Björk tekur við af Orra
Orri Hauksson, forstjóri Símans, mun láta af störfum í lok sumars eftir langt starf hjá félaginu. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips.

Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar
Steinunn Kristín Þórðardóttir hefur tekið sæti í stjórn Varðar trygginga.

Saga ráðin aðalhagfræðingur
Saga Guðmundsdóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur starfað sem hagfræðingur undanfarin 10 ár og í störfum sínum sinnt greiningum á stöðu og horfum í efnahags- og fjármálum.

Stýrir rekstrarsviði Skeljungs
Ingunn Þóra Jóhannesdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstarsviðs hjá Skeljungi. Rekstrarsvið Skeljungs sér um dreifingu eldsneytis, öryggismál, gæðamál, afgreiðslustaði Skeljungs og flugvelli innanlands.

Hreint hjá Vallý
Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að halda utan um rekstur og þróun sviðsins, móta og efla þjónustu Hreint til viðskiptavina og styðja við starfsfólk sem sinnir þjónustunni.

„Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna
Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Forstjórinn segir ástæðuna árstíðarsveiflu en hann segir auk þess minni eftirspurn eftir Íslandi sem hafi áhrif á reksturinn.

Icelandair segir upp 57 flugmönnum
Flugfélagið Icelandair hefur sagt upp 57 flugmönnum félagsins. Tilkynnt var um fyrirhugaðar uppsagnir á föstudaginn en forstöðumaður samskipta hjá félaginu segir að gert sé ráð fyrir að hægt verði að bjóða flugmönnunum störf næsta vor.

Guðni snýr aftur í sagnfræðina
Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands mun snúa aftur til starfa við Háskóla Íslands í haust. Þetta kom fram í ræðu Jóns Atla, rektors HÍ, í brautskráningarathöfn skólans í dag.

Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise
Gerður Björt Pálmarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise. Um er að ræða nýtt svið sem varð til eftir kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar.

Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka
Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka.

Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi
Fyrirtækið Running Tide sagði síðasta föstudag öllu sínu starfsfólki á Íslandi upp. Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði frá þessu á Linkedin síðu sinni í dag. Hann segir síðasta föstudag einn þann erfiðasta dag sem hann hefur upplifað. Hann segir fyrirtækið ekki gjaldþrota og að allir starfsmenn muni fá laun greidd út uppsagnarfrest og allir birgjar fái greitt.

Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er formaður hópsins.

Sigurður Tómasson til liðs við Origo
Origo hefur ráðið Sigurð Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar (e. Chief Growth Officer), sem er ný staða innan félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu. Sigurður tekur til starfa að loknu sumri.

Hrefna og Unnur til Novum
Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Alls starfa nú sjö lögmenn undir merkjum Novum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kjartan Bjarni skipaður landsréttardómari
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Kjartan Bjarni Björgvinsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2024.

Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju
Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju.

Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus
Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur, sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins.

Þrír nýir stjórnendur hjá Festi
Festi hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn á fjármála- og rekstrarsvið félagsins. Andri Kristinsson tók við starfi forstöðumanns innheimtu- og fjárstýringar, Gísli Heiðar Bjarnason tók við starfi forstöðumanns viðskiptagreindar og greininga, og Sandra Björk Björnsdóttir tók við starfi forstöðumanns reikningshalds og launavinnslu.

Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix
Ingi Rúnar Kristinsson, Almar Daði Björnsson, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Henný Björk Birgirsdóttir hafa verið ráðin til starfa hjá íslenska heilbrigðistæknifyrirtækinu Helix.

Daði stýrir markaðssamskiptum Íslandsstofu
Daði Guðjónsson hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu. Á sama tíma hverfur Sveinn Birkir Björnsson, sem stýrt hefur sviðinu undanfarin ár, til annarra starfa hjá Íslandsstofu en hann er að flytja búferlum erlendis.

Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku
Vilhjálmur Hilmarsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Visku – stéttarfélags. Um er að ræða nýtt stöðugildi en verkefni Vilhjálms verða meðal annars að sinna greiningum á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála, skrifa umsagnir um lagafrumvörp og leiða kjaraviðræður ásamt lögmanni og formanni Visku.

Bæjarfulltrúi aðstoðar ráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Andra Stein Hilmarsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn í stað Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi.

Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland
Markús Kötterheinrich hefur verið ráðinn tækni- og þróunarstjóri hjá Defend Iceland og verður hann hluti af stofnteymi fyrirtækisins. Hann stundaði nám í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti
Jóhannes Þorleiksson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingagreindar og – tækni hjá Landsneti. Hann mun þar fara fyrir hópi sem ber ábyrgð á þróun gagnadrifinnar þjónustu, upplýsingaöryggi og rekstri upplýsingakerfa Landsnets.

Kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands
Lilja Magnúsdóttir, deildarstjóri auðlindastýringar hjá HS Orku, var í dag kjörin formaður Jarðhitafélags Íslands á aðalfundi félagsins í Hörpu.

Skúli skipaður hæstaréttardómari
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt. Hann tekur við af Ingveldi Einarsdóttur, varaforseta réttarins, sem lætur af störfum sökum aldurs í ágúst.

Davíð Þór hættir og Eiríkur nýr varaforseti
Á fundi Landsréttardómara þann 23. maí 2024 var Eiríkur Jónsson kjörinn varaforseti Landsréttar frá 1. september 2024 til 1. ágúst 2027. Hann tekur við sem varaforseti af Davíð Þór Björgvinssyni Landsréttardómara, sem lætur af störfum að eigin ósk.

Stefán Andrew tekur við formennsku af Sigurði Erni
Ný stjórn Lögmannafélags Íslands var kjörin í liðinni viku. Stefán Andrew Svensson lögmaður á Juris var kjörinn formaður félagsins og tekur við af Sigurði Erni Hilmarssyni.

Guðmundur ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Viðreisnar. Hann tekur við af Dagbjarti Gunnari Lúðvíkssyni.

Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum
Stjórn Brunavarna Suðurnesja hefur ráðið Eyþór Rúnar Þórarinsson í starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja og mun hann hefja störf sem slíkur á næstu dögum. Hann hefur starfaði í liðinu frá árinu 1999.