Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. nóvember 2025 13:45 Guðmundur Böðvar Guðjónsson, Bjarney Anna Bjarnadóttir og Sverrir Már Jónsson. Samsett Þrír nýir forstöðumenn hafa gengið til liðs við Íslandsbanka. Sverrir Már Jónsson tekur við sem forstöðumaður eigin viðskipta, Bjarney Anna Bjarnadóttir sem forstöðumaður samskipta og greiningar og Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur störf sem forstöðumaður markaðsmála.
Sverrir Már Jónsson hefur tekið við sem forstöðumaður eigin viðskipta Íslandsbanka. Hann hefur starfað á fjármálamarkaðinum í rúmlega tuttugu ár en þar af var hann í sextán ár hjá Landsbankanum. Frá árinu 2014 sá hann um hlutabréfastöðu í veltubók hjá Landsbankanum og færir sig nú yfir til að taka við forstöðumannastöðunni. Sverrir lauk Cand.Oecon-gráðu með áherslu á fjármál hjá Háskóla Íslands árið 2004 og MSc Finance frá Cass Buisness School í Lundúnum árið 2005. Árið 2006 lauk hann löggildingu í verðbréfamiðlun. Eftir breytingar innanhúss hjá Íslandsbanka hefur markaðs- og samskiptasviði verið skipt upp í tvær sjálfstæðar einingar. Bjarney Anna Bjarnadóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns samskipta og greiningar en undir þá einingu heyra samskiptamál, fjárfestatengsl, fræðslumál og greining Íslandsbanka. Bjarney Anna hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2023 sem fjárfestingatengill en var áður lögmaður hjá BBA/Fjeldco. Bjarney Anna er með BA-gráðu og mastersgráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hlaut hún málflutningsréttindi árið 2012. Guðmundur Böðvar Guðjónsson tekur við starfi forstöðumanns markaðsmála en frá árinu 2024 hefur hann starfað sem deildarstjóri vörumerkis Íslandsbanka. Guðmundur stýrði áður markaðsmálum Sjónvarps Símans og þar áður var hann deildarstjóri á sölu- og markaðssviði Icelandair. Hann er með BSc-gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc-próf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.
Vistaskipti Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira