Gular viðvaranir ná nú yfir nær allt landið Gul veðurviðvörun er nú í gildi fyrir nær allt landið frá klukkan 18 á morgun til hádegis á fimmtudag. Norðan hvassviðri eða stormur tekur við suðvestan stormi sem nú lemur stóran hluta landsins. Innlent 1. desember 2020 14:21
Fyrsti alvöru norðanáttarkaflinn og hörkufrost í vændum Útlit er fyrir hvassa suðvestanátt í dag og jafnvel storm á stöku stað. Yfirleitt verður hægari vindur norðvestantil á landinu. Þó má búast við skúrum eða slydduéljum, en að það stytti upp og rofi til norðaustan- og austanlands. Hitiinn verður á bilinu 2 til 7 stig. Veður 1. desember 2020 07:32
Fullt tungl og leiðindaveður í kortunum Gul veðurviðvörun er í gildi víðast hvar um land í kvöld að suðausturströndinni undanskilinni. Búist er við vaxandi suðaustanátt með kvöldinu og hvessir enn í nótt. Þá má búast við snjókomu og slyddu þótt þurrt verði að mestu fyrir norðan fram á miðnætti en tekur að rigna í nótt, fyrst suðvestan til. Innlent 30. nóvember 2020 19:44
Gular viðvaranir um nánast allt land vegna snjókomu og storms Gular viðvaranir taka gildi á öllu landinu í kvöld fyrir utan höfuðborgarsvæðið, Norðurland eystra og Austurland að Glettingi. Varað er við hvassviðri eða stormi með ofankomu og má búast við 15 til 23 metrum á sekúndu með snjókomu og síðar slyddu. Innlent 30. nóvember 2020 07:14
Átta fermetra svalahurð „ætlaði inn í stofu“ í rokinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti 117 sjúkraflutningum síðasta sólarhringinn. Þar af voru 28 forgangsflutningar og sex svokallaðir covid-flutningar. Þá sinnti slökkviliðið fremur óhefðbundnu verkefni í óveðrinu fyrr í vikunni vegna átta fermetra stórrar svalahurðar sem var til vandræða. Innlent 28. nóvember 2020 11:54
Umhleypingar í kortunum Draga mun í dag úr þeirri suðvestanátt sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi undanfarna sólarhringa og er von á norðlægri átt á morgun. Áfram verður éljagangur á sunnan- og vestanverðu landinu og hiti í kringum frostmark. Innlent 28. nóvember 2020 08:37
Sama lægðin stjórnar áfram veðrinu Gular viðvaranir eru enn í gildi á suður- og vesturhelmingi landsins og verða í gildi á flestum svæðum fram á morgundaginn. Innlent 27. nóvember 2020 07:22
Eldingar fylgja éljahryðjunum Íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu margir hverjir varir við eldingu og þrumu á tólfta tímanum í kvöld. Innlent 26. nóvember 2020 23:16
Þungt yfir, hvasst og lítið skyggni fyrir vestan Það er ekkert sérstakt, veðrið á Vestfjörðum þessa stundina en Tómas Guðjartsson læknir birti fyrr í kvöld myndband af færðinni í Ketildölum. Innlent 26. nóvember 2020 21:31
„Bálhvasst mjög víða og fljúgandi hálka. Svo er mjög dimmt í éljunum og hann er enn að hvessa“ Veðrið er ekki skaplegt. Innlent 26. nóvember 2020 20:00
Eldingum slegið niður í öflugum éljum í dag Nokkrar eldingar hafa mælst í óveðrinu sem nú gengur yfir landið en góð skilyrði hafa orðið til fyrir eldinga- og þrumuveðri, að sögn veðurfræðings. Innlent 26. nóvember 2020 16:00
Grafalvarlegt að hafa þyrluna ekki til taks við þessar aðstæður Ekkert ferðaveður verður á vesturhelmingi landsins í dag vegna suðvestan storms. Formaður Landsbjargar segir grafalvarlegt að þyrla Landhelgisgæslunnar sé ekki til taks við slíkar aðstæður. Innlent 26. nóvember 2020 12:59
Veðurvaktin: Veturinn gengur í garð með látum Fyrsta alvöru vetrarlægðin, með hríðarveðri, stormi og éljum, gengur nú yfir stærstan hluta landsins. Innlent 26. nóvember 2020 10:13
Björgunarsveitir í startholunum fyrir óveðrið Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi vegna hríðarveðurs. Björgunarsveitarfólk Landsbjargar er vel undirbúið fyrir daginn. Innlent 26. nóvember 2020 08:57
Hríðarveður í kortunum: Takmarkað skyggni og hviður allt að 40 metrar á sekúndu Veðurstofa Íslands varar við hríðarveðri, stormi og éljum á stærstum hluta landsins í dag og fram á morgundaginn. Innlent 26. nóvember 2020 07:15
Lognið á undan storminum Fagurbleik sólarupprás og nær alger stilla gladdi íbúa á suðvesturhorni landsins í morgun. Það var þó aðeins lognið á undan storminum því gular- og appelsínugular viðvaranir vegna hríðaveðurs eða storms taka gildi á mest öllu landinu síðar í dag. Innlent 25. nóvember 2020 13:33
Gular viðvaranir orðnar appelsínugular Veðurstofa Íslands hefur uppfært þær viðvaranir sem taka gildi í kvöld vegna hríðarveðurs á Ströndum og Norðurlandi vestra og á miðhálendinu. Innlent 25. nóvember 2020 11:27
Varað við hríðarveðri: Fólk ani ekki út í óvissuna því élin verða dimm og mjög hvöss Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir vegna hríðarveðurs fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og miðhálendið. Innlent 25. nóvember 2020 07:20
Spá því að veturinn gangi í garð með látum annað kvöld Óveður í kortunum. Innlent 24. nóvember 2020 20:30
„Verður fljótt ansi snúið að ferðast á milli landshluta“ Það gæti orðið erfitt að ferðast á milli landshluta annað kvöld og á fimmtudaginn vegna veðurs, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Innlent 24. nóvember 2020 07:13
Töluvert álag á bráðamóttökunni vegna hálkuslysa Álagið á bráðamóttöku Landspítalans jókst þó nokkuð um liðna helgi vegna þeirra rúmlega þrjátíu einstaklinga sem þangað þurftu að leita út af því að þeir höfðu slasað sig í hálku. Innlent 24. nóvember 2020 06:58
Stinningskaldi og snjókoma í kortunum Það er spáð norðaustanátt í dag, víða kalda og stinningskalda, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 23. nóvember 2020 07:21
Ein stærsta fjöldagröf Íslands er á Útskálum Ein stærsta fjöldagröf á Íslandi er í kirkjugarðinum á Útskálum á Suðurnesjum. Gröfin er um leið minnisvarði um einhvern mesta mannskaða í sögu Íslandsbyggðar. Lífið 22. nóvember 2020 22:11
Lægð nálgast landið úr suðri Fremur hægur vindur verður á landinu í dag og víða þurrt, þó gera megi ráð fyrir eilitlum snjó suðaustanlands. Innlent 22. nóvember 2020 09:22
Djúp lægð fjarlægist landið Gera má ráð fyrir norðan og norðvestan 8-15 metrum á sekúndu með ringingu eða snjókomu um landið norðanvert, en lítilli úrkomu annars staðar. Innlent 21. nóvember 2020 10:53
Varað við vonskuveðri á Austfjörðum og Suðausturlandi Veðurstofa Íslands varar við norðvestan eða vestan hvassviðri á Austfjörðum og Suðausturlandi í nótt. Innlent 20. nóvember 2020 16:16
Kröpp lægð á leiðinni „með tilheyrandi snúningum í veðri“ Nú í morgunsárið er spáð fremur hægum vindi og úrkomulitlu veðri en í dag gengur svo „nokkuð kröpp lægð austur fyrir land með tilheyrandi snúningum í veðri“. Veður 20. nóvember 2020 07:10
Snjókoma í kortunum Það verður fremur hægur vindur í dag og víða léttskýjað framan af degi. Þá verður frost yfirleitt á bilinu tvö til tíu stig að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veður 19. nóvember 2020 07:20
Dregur úr styrk Jóta Dregið hefur úr krafti fellibylsins Jóta sem nú mælist sem hitabeltisstormur þar sem hann gengur yfir Mið-Ameríku. Mikil flóð hafa fylgt óveðrinu og að minnsta kosti níu hafa látið lífið í hamförunum. Erlent 18. nóvember 2020 09:10
Léttskýjað og allt að þrettán stiga frost Hæðarhryggur gengur inn á landið í dag með hægri breytilegri átt og léttskýjuðu veðri. Veður 18. nóvember 2020 07:14