„Ég held að jólin séu bara eins og hver annar þriðjudagur hjá þeim“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 27. desember 2022 12:25 Lægðinni hefur fylgt mikil snjókoma. Vísir/Vilhelm Ófærð og fannfergi er víða um land en lægð gengur nú yfir landið. Samgöngur hafa raskast og er ekki búist við að lægðin gangi yfir fyrr en í kvöld.
Í gærkvöldi tók gekk enn önnur lægð upp að landinu suðvestantil og gengur hún nú yfir landið. Lægðinni hefur fylgt mikil snjókoma, víða er ófært og vetrarveður er á landinu öllu. Þá hafa björgunarsveitir verið kallaðar út. „Í flestum landshlutum er svolítið svona vindasamt og með skafrenningi á flestum fjallvegum og með erfiðum akstursskilyrðum þar,“ segir Marcel de Vries veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Það dregur úr vindi með kvöldinu um allt land en þó fyrr eða upp úr hádegi á suðvesturhorni landsins. Á morgun hvessir á ný á Suðausturlandi og á Austfjörðum. Þá taka gular viðvaranir gildi. Tvö hús að Höfðabrekku, austan Víkur, voru rýmd í gærkvöldi vegna mögulegrar snjóflóðahættu og stendur rýmingin enn. Um er að ræða hótelrými og þjónustuhús og voru gestir færðir í annað húsnæði á vegum þessa sama hótels. Loka hefur þurft vegum vegna ófærðar. „Það er ágætis færð milli Reykjavíkur og Akureyrar og eins og ágætt frá Akureyri og austur úr. Það má búast við að það versni færðin fyrir austan með kvöldinu,“ segir Kristinn Jónsson deildarstjóri umferðarþjónustu hjá Vegagerðinni. Hellisheiðinni var lokað um tíma í dag og Þrengslunum en þar hefur verið opnað fyrir umferð á ný. „Um tíu leytið þá opnaði vegurinn frá Selfossi á Vík og það er unnið að því að opna áfram austur úr og verður vonandi orðið opið um hádegisbilið. Þar aftur á móti fyrir austan Vík er búist við því að það gæti lokað seinni partinn aftur vegna veðurs.“ Mikilvægt er að fólk fylgist vel með hvar er opið fyrir umferð og hvar lokað en hægt er að finna allar upplýsingar á heimasíðu Vegagerðarinnar. Kristinn segir unnið að snjómokstri um allt land. „Það eru held ég bara allir bílar sem við eigum úti að moka. Það náttúrulega stoppar ekki nema þegar bilar tæki.“ Hann segir mikið álag hafa verið á símakerfi Vegagerðarinnar um jólin. „Versti dagurinn þegar Reykjanesbrautin var lokað þá voru það þrjú þúsund símtöl yfir daginn. Það er búið að vera öll jólahelgin mikið hringt og greinilegt að ferðavenjur Íslendinga hafa breyst mjög mikið. Það eru ekki bara túristarnir sem eru að fara á milli landshluta heldur er fólk að borða kannski á Ísafirði á aðfangadag og ætla að vera í Reykjavík á jóladag og þá kannski á Akureyri á annan í jólum. Þannig að það eru mikið meiri ferðalög á milli landshluta. Ég var að vinna hérna fyrir fimmtán árum þá var jólahelgin svona frekar róleg alveg sama hvernig veðrið var. Fólk var bara heima með fjölskyldunni.“ Þá hafa þeir sem starfa við ferðaþjónustu og erlendir ferðamenn mikið hringt. „Ferðaþjónustan hún stoppar ekkert. Ég held að jólin séu bara eins og hver annar þriðjudagur hjá þeim.“ Gert er ráð fyrir að áfram verði frost og kuldi fram yfir áramótin og svo er von á annarri lægð á gamlársdag. „Þá er möguleiki að vindáttin snúist aftur í austan eða suðaustanátt og með snjókomu fyrir vestan og sunnan aftur,“ segir Marcel.
Veður Umferð Tengdar fréttir Víða ófært og vegir lokaðir Víða er ófært á landinu og vegir lokaðir. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. 25. desember 2022 14:45 „Við áttum okkur ekki alveg á því hvað gerðist“ Framkvæmdastjóri Hópbíla segir forsvarsmenn fyrirtækisins eiga eftir að ná betra tali af bílstjóranum sem festi rútu sína í tvígang um helgina eftir að hafa ekki virt vegalokanir. Verið sé að afla allra gagna málsins. 27. desember 2022 11:06 Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi. Búist er við þrettán til tuttugu metrum á sekúndu með snjókomu en batna á vestan til á svæðinu eftir hádegi. Viðvörunin er þó í gildi til klukkan fjögur í dag. 27. desember 2022 09:34 Þurft að aðstoða að koma heilbrigðisstarfsfólki til vinnu Björgunarsveitir voru að störfum á Grindavíkurvegi og vestast á Reykjanesskaga til klukkan fjögur í nótt. Nú í morgunsárið hafa sveitir svo þurft að aðstoða heilbrigðisstarfsfólki að komast til vinnu á Héraði á Austurlandi. 27. desember 2022 08:33 „Við sjáum þetta snjómagn ekki oft“ Vel hefur gengið að ryðja götur í Vestmannaeyjum en ófært var á fjölda gatna í bænum í gær. Björgunarsveitarmaður segist sjaldan hafa séð jafn mikið magn af snjó og nú hefur verið. 26. desember 2022 23:45 Rýma hús vegna snjóflóðahættu Tvö hús að Höfðabrekku í Mýrdal, austan Víkur, voru rýmd um kvöldmatarleytið vegna mögulegrar snjóflóðahættu. 26. desember 2022 23:14 Flestir sem þurftu hjálp virtu vegalokanir að vettugi Björgunarsveitirnar hafa sinnt þrefalt fleiri verkefnum það sem af er desember miðað við allan sama mánuð í fyrra. Í dag voru þær kallaðar út í Skagafirði eftir snjóflóð en fimmtán hross urðu undir. Fundað hefur verið með Almannavörnum vegna ástandsins. 26. desember 2022 19:20 Fimmtán hross dauð eftir snjóflóð nærri Hofsósi Snjóflóð féll í Skagafirði milli bæjanna Stekkjarbóls og Hólkots í Unadal vestur af Hofsósi fyrir klukkan eitt í dag. Björgunarsveitin Grettir var kölluð út en fimmtán hross voru á svæðinu þar sem snjóflóðið féll. 26. desember 2022 15:06 Enn ein lægðin hrellir landsmenn „Í kvöld kemur enn ein kalda smálægðin úr vestri og mun hrella okkur með snjókomu og skafrenningi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Mest snjóar vestantil í kvöld og á Suður- og Suðausturlandi. 26. desember 2022 10:30 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira
Víða ófært og vegir lokaðir Víða er ófært á landinu og vegir lokaðir. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. 25. desember 2022 14:45
„Við áttum okkur ekki alveg á því hvað gerðist“ Framkvæmdastjóri Hópbíla segir forsvarsmenn fyrirtækisins eiga eftir að ná betra tali af bílstjóranum sem festi rútu sína í tvígang um helgina eftir að hafa ekki virt vegalokanir. Verið sé að afla allra gagna málsins. 27. desember 2022 11:06
Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi. Búist er við þrettán til tuttugu metrum á sekúndu með snjókomu en batna á vestan til á svæðinu eftir hádegi. Viðvörunin er þó í gildi til klukkan fjögur í dag. 27. desember 2022 09:34
Þurft að aðstoða að koma heilbrigðisstarfsfólki til vinnu Björgunarsveitir voru að störfum á Grindavíkurvegi og vestast á Reykjanesskaga til klukkan fjögur í nótt. Nú í morgunsárið hafa sveitir svo þurft að aðstoða heilbrigðisstarfsfólki að komast til vinnu á Héraði á Austurlandi. 27. desember 2022 08:33
„Við sjáum þetta snjómagn ekki oft“ Vel hefur gengið að ryðja götur í Vestmannaeyjum en ófært var á fjölda gatna í bænum í gær. Björgunarsveitarmaður segist sjaldan hafa séð jafn mikið magn af snjó og nú hefur verið. 26. desember 2022 23:45
Rýma hús vegna snjóflóðahættu Tvö hús að Höfðabrekku í Mýrdal, austan Víkur, voru rýmd um kvöldmatarleytið vegna mögulegrar snjóflóðahættu. 26. desember 2022 23:14
Flestir sem þurftu hjálp virtu vegalokanir að vettugi Björgunarsveitirnar hafa sinnt þrefalt fleiri verkefnum það sem af er desember miðað við allan sama mánuð í fyrra. Í dag voru þær kallaðar út í Skagafirði eftir snjóflóð en fimmtán hross urðu undir. Fundað hefur verið með Almannavörnum vegna ástandsins. 26. desember 2022 19:20
Fimmtán hross dauð eftir snjóflóð nærri Hofsósi Snjóflóð féll í Skagafirði milli bæjanna Stekkjarbóls og Hólkots í Unadal vestur af Hofsósi fyrir klukkan eitt í dag. Björgunarsveitin Grettir var kölluð út en fimmtán hross voru á svæðinu þar sem snjóflóðið féll. 26. desember 2022 15:06
Enn ein lægðin hrellir landsmenn „Í kvöld kemur enn ein kalda smálægðin úr vestri og mun hrella okkur með snjókomu og skafrenningi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Mest snjóar vestantil í kvöld og á Suður- og Suðausturlandi. 26. desember 2022 10:30