Viðvörun færð upp í rautt fyrir höfuðborgarsvæðið Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa og Suðurland. Viðvörunin er rauð milli 04:00 og 08:00 á mánudag. Innlent 6. febrúar 2022 12:45
Vara við snjóflóðahættu á Vestfjörðum og Tröllaskaga Veðurstofa Íslands hefur varað við aukinni snjóflóðahættu á Vestfjörðum og Tröllaskaga þar sem allmörg snjóflóð hafa fallið undanfarna daga. Innlent 6. febrúar 2022 12:19
„Lognið“ á undan storminum Í dag má búast við nokkuð stífri norðanátt með éljum fram eftir degi, þó þurrt verði og bjart syðra. Frost verður á bilinu núll til átta stig. Innlent 6. febrúar 2022 07:35
Almannavarnir funda með viðbragðsaðilum vegna lægðarinnar Almannavarnir funduðu í dag með sérfræðingum Veðurstofunnar, viðbragðsaðilum, ábyrgðaraðilum raforku, fjarskipta og samgangna vegna óveðursins sem gengur brátt yfir landið. Innlent 5. febrúar 2022 17:58
Appelsínugul viðvörun fyrir landið allt og líkur á rauðri fyrir borgina Appelsínugul veðurviðvörun hefur nú verið gefin út fyrir landið allt á aðfaranótt mánudags. Óvenjulega slæmt veður er í kortunum, að sögn veðurfræðings. Fréttir 5. febrúar 2022 15:25
Björgunarsveitafólk fylgdi sjúkrabíl í hvassviðri Mikið hvassviðri og skafrenningur gekk yfir Suðurlandið í morgun í snörpum hvelli. Björgunarsveitafólk hafði í nægu að snúast, meðal annars fylgdi það sjúkrabíl í útkall vegna veikinda. Innlent 5. febrúar 2022 11:45
Vegfarendur á Suðurlandi beðnir um að leita skjóls Flestar ökuleiðir á Suðurlandi eru lokaðar eða erfiðar yfirferðar. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að bíða í öruggu skjóli til hádegis. Innlent 5. febrúar 2022 10:31
Víða hvasst í dag og snjókoma á flestum stöðum Búast má við austlægri átt, sums staðar allhvassri eða hvassri, en hægari á Norður- og Austurlandi í dag. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Innlent 5. febrúar 2022 07:26
Óvíst hvort hægt verði að leita á morgun vegna veðurs Enn er mikill þungi í leitinni að flugvélinni TF-ABB sem hvarf um hádegisbil í gær. Leitin beinist nú að mestu að sunnanverðu Þingvallavatni, þar sem leitað hefur verið bæði í vatninu og í kring um það. Innlent 4. febrúar 2022 16:49
Minnkandi norðvestanátt á landinu Minnkandi norðvestanátt verður á landinu í dag, en hvassir vindstrengir suðaustantil fram eftir degi. Veður 4. febrúar 2022 07:27
Á annan tug bifreiða í árekstrum á Kringlumýrarbraut Fjöldi bifreiða, á annan tug, hefur lent í árekstrum á Kringlumýrarbraut í morgun. Lesandi hafði samband við Vísi og sagði flughált á svæðinu og að svo virtist sem nokkrar bifreiðar hefðu runnið, ýmist á aðrar bifreiðar eða útaf. Innlent 3. febrúar 2022 09:29
Víða talsvert frost í nótt en dregur úr því með morgninum Veðurstofan spáir norðan og norðvestan kalda eða strekkingi í dag og snjókomu eða él, en úrkomulitlu veðri sunnanlands. Það hefur víða verið talsvert frost í nótt en það dregur úr því með morgninum og verður frost á bilinu eitt til níu stig eftir hádegi. Veður 3. febrúar 2022 07:39
Lentu þyrlu Gæslunnar á borgarísjaka Landhelgisgæsla Íslands lenti þyrlu sinni, TF-GNA, á gríðarstórum borgarísjaka sem staðsettur var djúpt norður af Vestfjörðum síðdegis í gær. Innlent 2. febrúar 2022 17:26
Suðvestanátt, frost og víða él Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðvestanátt í dag, þrír til tíu metrar á sekúndu, og víða él en úrkomulítið norðaustantil. Frost verður á bilinu núll til tíu stig yfir daginn. Veður 2. febrúar 2022 06:51
Mesta elding sögunnar: Mældist um átta hundruð kílómetra löng Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur opinberlega staðfest að ógnarmikil elding, sem laust niðri í Bandaríkjunum í apríl árið 2020, hafi verið sú mesta sem mælst hefur frá upphafi mælinga. Erlent 1. febrúar 2022 21:23
Þór ansi smár miðað við borgarísjakann Varðskipið Þór, sem þykir engin smásmíði, er ansi smátt við hliðina á borgarísjakanum stóra sem nú er um tuttugu sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa. Innlent 1. febrúar 2022 18:49
Frost á öllu landinu og sums staðar lúmsk og hættuleg hálka Frost er nú á öllu landinu, og á þeim slóðum þar sem hlánaði í gær gæti lúmsk hálka verið hættuleg fram að hádegi, til að mynda á suðvesturhorninu landsins. Veður 1. febrúar 2022 06:51
Hellisheiði og Þrengsli opin fyrir umferð á ný Búið er að opna Hellisheiði en Vegagerðin lokaði henni fyrr í dag vegna vonskuveðurs. Á annan tug bíla festu sig þar þegar veðrið var hvað verst. Björgunarsveitir voru kallaðar út en ökumenn náðu flestir sjálfir að losa bíla sína. Innlent 31. janúar 2022 17:13
Minnst ellefu bílar fastir á Hellisheiði Minnst ellefu bílar eru fastir á Hellisheiði og minnst einn árekstur hefur orðið uppi á heiðinni. Aðstæður eru slæmar og hefur blindbylur gert björgunarstörf erfið. Innlent 31. janúar 2022 15:47
Kröpp lægð gengur yfir: Hellisheiði lokuð vegna fastra bíla Hellisheiði hefur verið lokað vegna veðurs en bílar eru nú fastir þar. Þá er fólk beðið að bíða með ferðir um Þrengsli á meðan veðrið gengur yfir. Innlent 31. janúar 2022 13:23
Íbúar á austurströndinni moka eftir gríðarlega ofankomu Íbúar á austurströnd Bandaríkjanna hamast nú við að moka snjó eftir að honum kyngdi niður um helgina. Ekki hefur snjóað svo mikið á svæðinu í um fjögur ár en verst var ástandið í borgum á borð við Boston og Atlantic City. Erlent 31. janúar 2022 06:54
Allkröpp lægð nálgast landið Allkröpp lægð nálgast nú landið, en gengur þá í suðaustanstrekking með snjókomu sunnan- og vestanlands undir hádegi, en síðar einnig í öðrum landshlutum. Veður 31. janúar 2022 06:52
Opna fjöldahjálparstöð í kjölfar lokunar Súðavíkurhlíðar Sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi hefur tekið ákvörðun um að opna fjöldahjálparstöð til þess að taka á móti þeim sem ekki komast leiðar sinnar vegna lokunar Súðavíkurhlíðar, sem var lokað fyrr í dag vegna snjóflóðahættu. Innlent 30. janúar 2022 18:06
Rafmagn fór af á Vestfjörðum vegna veðurs Rafmagn fór víða af á Vestfjörðum um klukkan hálf tvö eftir hádegi. Norðan- og sunnanverðir Vestfirðir ganga nú á rafmagni frá varaaflsvélum og virkjunum. Innlent 30. janúar 2022 14:42
Rask á innanlandsflugi vegna hvassviðris og éljagangs Veturinn hefur látið rækilega til sín taka á norðurhveli jarðar um helgina, með tilheyrandi óþægindum. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum vegna veðurofsa á landinu í dag en gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu vestanverðu landinu. Veðurfræðingur varar fólk við því að stunda útivist vegna hvassviðris og éljagangs. Veður 30. janúar 2022 11:26
Níu ára drengur fórst í Englandi vegna veðurofsa Níu ára gamall drengur og sextug kona létust þegar tré féll á þau vegna stormsins Malik, sem ríður yfir Bretlandseyjar. Þúsundir heimila hafa verið rafmagnslaus í Skotlandi og Englandi vegna stormsins. Erlent 30. janúar 2022 07:59
Gul veðurviðvörun á vestanverðu landinu í dag Gul veðurviðvörun er á öllu vestanverðu landinu í dag. Viðvörunin tekur víðast hvar gildi um klukkan tíu í dag og verður í gildi fram undir kvöld. Veður 30. janúar 2022 07:37
Íslendingur í Boston óhræddur við hríðarbyl Snjó kyngir nú niður í miklum hríðarbyl sem nú gengur yfir austurströnd Bandaríkjanna í fyrsta sinn í fjögur ár. Neyðarástandi hefur meðal annars verið lýst yfir en Íslendingur sem búsettur er í Boston lætur ekki mikið á sig fá. Erlent 29. janúar 2022 22:52
Öxnadalsheiðin er lokuð Öxnadalsheiðin er lokuð vegna slæms veðurs. Bílar hafa farið út af í dag og flutningabíll hefur nú lokað veginum eftir óhapp. Innlent 28. janúar 2022 14:50
Von á norðanáhlaupi og gular viðvaranir taka gildi í kvöld Skammt vestan við Vestfirði er nú 984 millibara lægð sem veldur því að á landinu er suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og víða él. Þegar líður á daginn mun lægðin fara austur með norðurströndinni og því er von á skammvinnu norðanáhlaupi síðdegis og í kvöld. Gular viðvaranir taka gildi víða á landinu í síðar í dag. Veður 28. janúar 2022 06:56
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent