Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Tvær líkamsárásir í miðbænum í Reykjavík eru til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Í dagbók lögreglu kemur fram að hvorug þeirra teljist meiriháttar. Innlent 2. september 2026 06:06
Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst. Hundrað starfsmenn misstu vinnuna. Innlent 1. september 2026 17:26
Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Tónlistarhátíðin Extreme Chill hefst á morgun en hún fer fram í Reykjavík dagana 2.–6. september. Þetta er 17. árið sem hátíðin er haldin. Tónlist 1. september 2026 15:01
Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Framkvæmdir við Borgarlínu eru hafnar við Nauthólsveg og HR. Þar er um að ræða hluta af fyrstu lotu Borgarlínunnar sem felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs. Einnig stendur til að breyta gatnamótum og götutengingum en verkinu á að ljúka í júlí 2028. Innlent 1. september 2026 14:15
Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Stjórnendur allra frístundaheimila og félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar komu saman og lögðu blóm og kerti við Ráðhúsið í morgun til þess að minnast frístundamiðstöðvanna. Innlent 1. september 2026 13:18
Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Stemmingin var rífandi góð þegar Nova fagnaði útgáfu ábreiðunnar „Einhver elskar mig“ eftir Tatjönu í Bíó Paradís. Dýnamíska dúóið Cyber hitaði upp fyrir Tatjönu sem flutti síðan útgáfu sína af sígildum smelli Páls Óskars auk fleiri laga. Tónlist 1. september 2026 11:01
Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um rafhlaupahjólaslys í Árbæ í gær. Í dagbók lögreglu kemur fram að ökumaður, líklega ökumaður rafhlaupahjólsins, hafi verið fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 1. september 2026 06:04
Tekjuáætlun verulega undir áætlun Tekjuáætlun Laugardalslaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Vesturbæjarlaugar er tæpum fjörutíu milljónum króna undir áætlun. Afar mikil aðsókn er í eina laugina en illa gengur hjá hinum tveimur. Mögulega þarf að skerða enn meira aðgengi að Laugardalslaug. Innlent 31. ágúst 2026 17:01
Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna. Innlent 30. ágúst 2026 17:27
Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Endurvinnslustöð Sorpu við Sævarhöfða lokar í dag í síðasta sinn. Í stað stöðvarinnar verður opnuð ný stöð við Lambhagaveg og segir samskiptastjóri Sorpu að þrátt fyrir að þjónustan færist fjær ákveðnum hverfum í Reykjavík eigi ferðalagið með ruslið ekki að taka lengri tíma í heild. Innlent 30. ágúst 2026 14:18
Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ungmennum sem voru orðin ofurölvi í Kópavogi. Þegar lögreglan var á leiðinni hlupu þau öll á brott nema eitt. Innlent 30. ágúst 2026 08:08
Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni að breyta byggingu í Ármúla 28 til 30 og gera þar unglingaskóla fyrir um 250 nemendur. Gert er ráð fyrir að börn í Múlum og Skeifunni geti sótt þar nám. Ekki kemur fram hvenær framkvæmdum á að ljúka og hvenær skólastarf á að hefjast. Innlent 30. ágúst 2026 07:02
Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Búið er að telja öll atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls sögðu 54,49 prósent kjósenda já en 45,51 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 02:54
Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Búið er að telja öll atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi norður. Alls sögðu 57,51 prósent kjósenda já en 42,49 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 02:30
Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Tveir voru handteknir vegna líkamsárása í nótt. Alls 87 mál voru skráð hjá lögreglu í gærkvöld og nótt. Sex gistu fangageymslu. Innlent 29. ágúst 2026 09:10
Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Deildarstjóri sem sagt var upp eftir tæplega tuttugu ára starf hjá Reykjavíkurborg óttast að verkefni hennar verði færð yfir á starfsfólk sem þegar sé störfum hlaðið. Forstöðumaður frístundaheimilis segir þjónustuna geta versnað verði það raunin. Innlent 28. ágúst 2026 23:31
Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Þegar lögregla hafði afskipti af manni í Hlíðahverfi í Reykjavík missti hann öxi sem hann var með innanklæða. Hann hefur verið kærður fyrir vopnaburð. Innlent 28. ágúst 2026 17:18
Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans í Breiðholti harmar breytingar á skipuriti Reykjavíkurborgar sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna. Hún spyr hvort það sé í lagi að betra Excel-skjal sé á kostnað barnanna. Innlent 28. ágúst 2026 16:30
Brynjar tekur við af Líf Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna en ný stjórn var kjörin á framhaldsaðalfundi félagsins 26. ágúst. Fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir. Innlent 28. ágúst 2026 14:35
Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Ég starfa í Frístundamiðstöðinni Miðbergi og hef gert samfellt síðan árið 2003 og hjarta mitt slær þar. Undir Miðberg heyra svo 6 frístundaheimili, 4 félagsmiðstöðvar og ungmennahús. Skoðun 28. ágúst 2026 12:51
Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Brotist var inn í Hygge bakarí á Barónsstíg í nótt. Töluverðum fjármunum var stolið úr peningakassa auk tölvu og síma sem var á staðnum. Axel Þorsteinsson, eigandi Hygge, segist feginn að ekkert starfsfólk var á staðnum. Öryggi þeirra sé í forgangi. Innlent 28. ágúst 2026 11:36
Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Viska stéttarfélag lýsa yfir þungum áhyggjum af skipulagsbreytingum og uppsögnum hjá Reykjavíkurborg. Tugum var sagt upp í vikunni. Innlent 27. ágúst 2026 23:57
Stungan leiddi til skurðar Ungur drengur stakk sér til sunds í Mosfellsbæ og rak höfuðið í með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á höfðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um slysið. Innlent 27. ágúst 2026 17:39
Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Nei-hreyfingin hefur efnt til útifundar á Austurvelli klukkan 17:00 í dag en í aðdraganda fundarins hafa símaskilaboð borist fjölda fólks þar sem því er boðið að mæta til að stilla saman strengi fyrir laugardaginn. Meðal ræðumanna eru Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Hægt er að fylgjast með streymi á Vísi. Innlent 27. ágúst 2026 16:29
Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá SJÁ, hreyfing þeirra sem vilja segja „Já til að sjá“, heldur opinn viðburð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Fundurinn fer fram klukkan 17:00 í dag í Tónabíói, Skipholti 33, og er öllum boðið að kíkja við en einnig verður hægt að fylgjast með streymi á Vísi. Innlent 27. ágúst 2026 16:27
Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Reykjavíkurborg hefur sent forsvarsmönnum Samhjálpar tillögur að tveimur mögulegum staðsetningum fyrir Kaffistofu samtakanna. Ráðast þarf í deiliskipulag en borgarstjóri segir allt verða gert til að forðast þjónusturof. Innlent 27. ágúst 2026 11:55
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Tímabilið þar sem lundapysjum sem hafa rambað inn á byggt ból er bjargað og þeim sleppt út á sjó stendur sem hæst um þessar mundir. Langflestar pysjur finnast í Vestamannaeyjum og hefur þar verið útbúið sérstakt sleppisvæði en í það minnsta einni lundapysju hefur verið bjargað af götum Reykjavíkur þetta árið. Innlent 26. ágúst 2026 22:59
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26. ágúst 2026 21:00
Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Fjöldauppsagnirnar hjá Reykjavíkurborg munu bitna á viðkvæmustu hópunum að mati fyrrum fagstjóra sem segir það lítilsvirðingu að tala um annað. Gærdagurinn hafi verið sorglegur og ljóst sé að farið var af stað í miklum hamagangi. Innlent 26. ágúst 2026 20:38
Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Nýr leikskóli með pláss fyrir yfir hundrað börn hefur sprottið upp með undraverðum hraða í Elliðaárdal. Verktaki afhendir borginni hann á næstu vikum. Vonast er til að hægt sé að hefja starfsemi þar sem allra fyrst. Innlent 26. ágúst 2026 19:27