Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. október 2026 21:53 Mótmælin voru haldin í samstarfi Landverndar, Verndarsjóðs villtra laxastofna og Vá, félags um vernd fjarðar, ásamt breiðfylkingu náttúruverndarsamtaka. Vísir/Viktor Freyr Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum.
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Seyðisfjarðar, segir í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna. Stendur til að afhenda Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirskriftirnar á morgun. Margir mættu með spjöld og fána. Vísir/Viktor Freyr Meðal þeirra samtaka sem stóðu að mótmælunum má nefna Landvernd, félög sem berjast fyrir villta laxastofninum á Íslandi, og Vá, félag um vernd fjarðar, auk Katrínar Oddsdóttur lögmanns. Að mati aðstandenda mótmælanna er Seyðisfjörður orðinn táknmynd stærri spurningar um lýðræði, náttúruvernd og almannahagsmuni á Íslandi.Vísir/Viktor Freyr „Ég trúi því að það sé mjög, mjög mikilvæg stund í íslenskri náttúruverndarsögu akkúrat núna og að það sé ákaflega mikilvægt að við sjáum sem flesta á báðum stöðum til að reyna að sporna við því að það verði nokkurn tímann sjókvíaeldi á Seyðisfirði,“ sagði Katrín í samtali við Vísi sem birtist fyrr í dag. Á Austurvelli var beint streymi frá mótmælunum á Seyðisfirði.Vísir/Viktor Freyr Katrín segir að miklir annmarkar séu á leyfisveitingum og að afgerandi meirihluti heimamanna sé mótfallinn sjókvíaeldinu. „Málið snýst því ekki aðeins um framtíð eins fjarðar, heldur einnig um það hvaða fordæmi verður skapað fyrir önnur samfélög á Íslandi sem vilja standa vörð um náttúru sína og framtíð komandi kynslóða,“ segir í tilkynningunni. Sjá einnig: Hafi verið beggja vegna borðsins Katrín Oddsdóttir lögmaður stýrði dagskránni á Austurvelli. Vísir/Viktor Freyr Vísir/Viktor Freyr Hljómsveitin Eva steig á stokk. Vísir/Viktor Freyr Birgir Þórarinsson, eða Biggi Veira, var meðal mótmælenda.Vísir/Viktor Freyr Vísir/Viktor Freyr
Sjókvíaeldi Múlaþing Reykjavík Umhverfismál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira