Solskjær látinn fara frá Man. United Ole Gunnar Solskjær hefur verið leystur frá störfum sínum sem knattspyrnustjóri Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum og á vefsíðu sinni. Enski boltinn 21. nóvember 2021 10:50
Oslóartréð fellt í Heiðmörk Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, felldi Oslóartréð sem prýða mun Austurvöll yfir hátíðarnar í morgun. Borgarstjórinn naut aðstoðar Sævars Hreiðarssonar, skógarvarðar hjá Skógaræktarfélagi Reykjavíkur við að saga tréð og fella það. Innlent 20. nóvember 2021 14:57
Norðmenn herða á landamærum og biðla til fólks að hætta handaböndum Norsk stjórnvöld kynntu í morgun hertar reglur á landamærum sem fela í sér að frá 26. nóvember munu allir þeir sem ferðast til landsins að skrá sig á síðunni entrynorway.no. Erlent 19. nóvember 2021 11:06
Forseti norska þingsins til rannsóknar hjá lögreglu og segir af sér Lögreglan í Osló hefur til rannsóknar sex þingmenn í Noregi að beiðni ríkissaksóknara. Eva Kristin Hansen, forseti þingsins, hefur staðfest að hún sé þeirra á meðal og hefur sagt af sér. Erlent 18. nóvember 2021 23:31
Yfirvöld víða á tánum vegna tilvika fuglaflensu Alþjóðlegu dýraheilbrigðisstofnuninni (OIE) hefur borist nokkur fjöldi tilkynninga síðustu daga um alvarlega fuglaflensu í Evrópu og Asíu. Þá hefur 21 maður greinst með undirtýpu H5N6 í Kína á þessu ári, fleiri en allt árið 2020. Erlent 16. nóvember 2021 08:59
„Þá verður allt svart og það næsta sem ég man er að ég vakna á sjúkrahúsinu“ „Það var ekkert sem að gaf til kynna að það væri eitthvað að, fyrr um daginn,“ segir knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson um daginn sem að hann „dó“, í fjórar mínútur. Fótbolti 15. nóvember 2021 11:30
Stakk lögregluþjón og var skotinn til bana í Osló Lögreglan í Osló skaut mann til bana í Bislett-hverfinu í höfuðborg Noregs í morgun. Vitni segja við norska miðla að maðurinn hafi hlaupið á eftir konu með hníf í hendi. Erlent 9. nóvember 2021 11:01
Ekki fleiri inniliggjandi vegna Covid-19 í Noregi síðan í apríl Tæplega tvö hundruð manns eru nú inniliggjandi á sjúkrahúsum í Noregi vegna Covid-19 og hefur fjöldinn ekki verið hærri síðan í apríl. Erlent 8. nóvember 2021 12:40
Biðjast afsökunar á að hafa óvart sýnt frá Emil í höndum sjúkrafólks Sjónvarpsstöðin Discovery hefur beðist afsökunar á því að hafa sýnt frá því þegar sjúkraflutningamenn hlúðu að Emil Pálssyni sem fór í hjartastopp í fótboltaleik með Sogndal í Noregi í gær. Fótbolti 2. nóvember 2021 08:01
Emil Pálsson hné niður á vellinum Leikur Sogndal og Stjørdals/Blink var flautaður af þegar knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson hné niður eftir tólf mínútna leik. Emil lá á vellinum í um tíu mínútur en var kominn til meðvitundar þegar hann var settur um borð í sjúkraþyrlu. Fótbolti 1. nóvember 2021 18:22
Óttast að þrennt hafi farið fram af fimmtán metra háum fossi Mikil leit stendur nú yfir að þremur einstaklingum – tveimur körlum og einni konu – sem týndust í Noregi í gærkvöldi. Erlent 25. október 2021 07:52
Auðkennisþjófnaður gæti afhjúpað þá seku í Hagen-málinu Norska lögreglan heldur ótrauð áfram rannsókninni á máli Önnu-Elísabetar Hagen, sem hvarf sporlaust fyrir réttum þremur árum. Eiginmaður Önnu-Elísabetar, auðkýfingurinn Tom Hagen, er grunaður um að hafa myrt hana, en neitar staðfastlega sök. Erlent 23. október 2021 19:15
Hlé gert á áætlunarflugi til Íslands vegna kröfu um Covid-próf Bólusettir Norðmenn geta nú ferðast til langflestra landa Evrópu án þess að þurfa framvísa neikvæðu Covid-19 prófi. Ísland er þar undanskilið og hafa stjórnendur SAS tekið ákvörðun um að gera hlé á frekara áætlunarflugi frá Noregi til Íslands vegna þessa. Viðskipti innlent 20. október 2021 15:06
Fyrsti íbúi eyjanna til að greinast með Covid-19 Maður greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu í Longyearbyen á Svalbarða í gær og er um að ræða fyrsta smitaða íbúa eyjanna frá upphafi faraldursins. Erlent 20. október 2021 08:47
Fórnarlömbin í Kongsberg voru myrt með eggvopnum Fimm manns sem létu lífið í árás vopnaðs manns í Kongsberg í Noregi í síðustu viku voru stungnir til bana en ekki skotnir með boga og örvum eins og talið var í fyrstu. Sumir þeirra voru myrtir heima hjá sér en aðrir úti á götu. Erlent 18. október 2021 15:10
Skandinavísk flugfélög afnema grímuskyldu Fjögur skandinavísk flugfélög hafa afnumið grímuskyldu um borð í flugvélum í meirihluta flugferða. Forstjóri Icelandair segir ómögulegt að spá um hvenær grímuskyldu verður aflétt í flugvélum félagsins. Innlent 18. október 2021 08:39
Greint frá nöfnum þeirra sem létust í árásinni í Kongsberg Lögreglan í Noregi hefur nú greint frá nöfnum fórnarlambanna fimm sem létust í árásinni í Kongsberg á miðvikudag. Fórnarlömbin voru á aldrinum 52-78 ára. Erlent 16. október 2021 13:48
Ódæðismaðurinn vistaður á stofnun: Norðmenn eru í sárum Norðmenn eru í sárum eftir ódæðin í fyrradag þegar karlmaður vopnaður boga og örvum myrti fimm manns. Lögregla telur ekki um hryðjuverkaárás að ræða heldur sé árásarmaðurinn andlega veikur. Hann hefur verið vistaður á viðeigandi stofnun. Erlent 15. október 2021 22:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allar forsendur eru til staðar til að halda áfram tilslökunum innanlands, að sögn sóttvarnalæknis. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru hlynntir því að afnema samkomutakmarkanir að fullu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15. október 2021 18:00
Fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir árásarmanninum í Kongsberg Héraðsdómstóll í Buskerud í Noregi úrskurðaði karlmann á fertugsaldri í fjögurra vikna gæsluvarðhald í morgun vegna fjöldamorðsins í Kongsberg á miðvikudag. Maðurinn verður látinn sæta einangrunarvist fyrstu tvær vikurnar. Erlent 15. október 2021 11:19
Bogmaðurinn vistaður á heilbrigðisstofnun Ákvörðun var tekin í gær um að vista karlmann sem varð fimm manns að bana í Kongsberg í Noregi á heilbrigðisstofnun. Lögregla krefst fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir honum. Erlent 15. október 2021 08:37
Ódæðismaðurinn í Kongsberg stakk lögreglu af meðan hún beið eftir hlífðarbúnaði Ole B. Sæverud, lögreglustjóri í Kongsberg í Noregi segir að ódæðismaðurinn sem myrti fimm manns í bænum hafi komist undan lögreglumönnunum sem fyrst urðu á vegi hans, á meðan þeir biðu eftir að fá hlífðarbúnað til þess að geta tekist betur á við árásarmanninn. Erlent 14. október 2021 23:31
Segja árásina hryðjuverk og hækka viðbúnaðarstig Norska lögreglan telur að árásin í bænum Kongsberg í gærkvöld hafi verið hryðjuverk og hefur hækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna yfirvofandi hryðjuverkaógnar. Ekki er vitað hvaða hvatir lágu að baki árásinni en norsk yfirvöld óttast að fleiri árásir gegn almennum borgurum. Erlent 14. október 2021 19:08
Ný ríkisstjórn Noregs ætla að halda áfram olíuvinnslu Jonas Gahr Støre kynnti nýja ríkisstjórn Verkamannaflokks hans og Miðflokksins í dag. Flokkarnir eru sammála um að halda áfram að leita að og vinna olíu og gas næstu árin. Erlent 14. október 2021 13:59
Bogmaðurinn í Kongsberg nafngreindur Maðurinn sem myrti fimm og særði tvo alvarlega í Noregi í gærkvöldi heitir Espen Andersen Bråthen. Hann var handtekinn eftir árásina og er nú til rannsóknar hjá geðlæknum. Erlent 14. október 2021 13:23
Bogaárásin í Kongsbergs talin hafa verið hryðjuverk Öryggisstofnun Noregs segir að svo virðist sem að fjöldamorð sem var framið í bænum Kongsberg í gærkvöldi hafi verið hryðjuverkaárás. Árásarmaðurinn er sagður hafa hlotið nokkra dóma og hótað nýlega að drepa ættingja sinn. Erlent 14. október 2021 11:48
Bogmaðurinn talinn hafa hneigst að öfgahyggju Norska lögreglan segir að danskur karlmaður sem myrti fimm manns og særði tvo til viðbótar með boga og örvum í bænum Kongsberg í Noregi í gærkvöldi hafi verið grunaður um að hneigjast að öfgahyggju. Fórnarlömbin voru fjórar konur og einn karlmaður á aldrinum fimmtíu til sjötíu ára. Erlent 14. október 2021 09:07
Árásarmaðurinn sagður 37 ára danskur ríkisborgari Fimm eru látnir og tveir særðir eftir árás bogamanns í bænum Kongsberg í Noregi í gær. Lögregla hefur handtekið 37 ára Dana sem er grunaður um hroðaverkið. Lögregla telur hann hafa verið einan að verki en mögulega sé um hryðjuverk að ræða. Erlent 14. október 2021 06:23
Íslendingur í Kongsberg sleginn eftir árás bogamannsins Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir, íbúi í Kongsberg í Noregi, segir samfélagið í sjokki eftir að minnst fimm létust og nokkrir særðust í árás bogamanns í bænum í kvöld. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og virðist hafa verið einn að verki. Erlent 13. október 2021 22:54
Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 13. október 2021 20:52