Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar. Erlent 8. nóvember 2023 12:07
Nauðsynlegt að stöðva stríðsglæpi á Gaza strax Þingflokksformaður Pírata segir mikilvægt að afstaða Alþingis gagnvart átökunum á Gaza liggi fyrir sem allra fyrst. Það liggi ljóst fyrir að stríðsglæpir hafi verið framdir á Gaza og þá verði að stöðva ekki síðar en strax. Innlent 8. nóvember 2023 12:01
G7-ríkin kalla eftir mannúðarhléi en Blinken útilokar vopnahlé Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna hafa sameinast um yfirlýsingu þar sem kallað er eftir mannúðarhléi á átökum milli Ísraela og Hamas til að greiða fyrir neyðaraðstoð til íbúa. Erlent 8. nóvember 2023 10:58
Þingkona í Bandaríkjunum ávítt fyrir meintan stuðning við hryðjuverk Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að ávíta þingkonuna Rashidu Tlaib, Demókrata frá Michigan, fyrir meinta vörn hennar á hryðjuverkum Hamas og stuðning hennar við slagorðin „Frá á til sjávar!“. Erlent 8. nóvember 2023 08:01
Biden ekki sammála Netanyahu um yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti styður ekki yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa, eins og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið til kynna að muni gerast að átökum loknum. Erlent 8. nóvember 2023 06:43
Segja hermenn berjast í „hjarta Gasaborgar“ Ísraelskir hermenn eru sagðir komnir langt inn í Gasaborg. Mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið borgina í dag og farið til suðurhluta Gasastrandarinnar. Erlent 7. nóvember 2023 22:30
Guðlaugur Þór segir öllum ofbjóða hryllingurinn á Gaza Hátt á þriðja hundrað mótmælenda kröfðust þess við Ráðherrabústaðinn í dag að ríkisstjórnin krefðist tafarlauss vopnahlés á Gaza. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir öllum ofbjóða ástandið og óska þess að átökunum ljúki. Innlent 7. nóvember 2023 19:26
Segir alþjóðasamfélagið stara niður í hyldýpið Francesca Albanese, sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, segir tilraunir Ísraelsmanna til að tortíma Hamas-samtökunum í kjölfar árásanna 7. október muni aðeins verða til þess að magna upp öfgahyggju. Erlent 7. nóvember 2023 11:41
Stöðvið barnamorðin strax Þegar þessar línur eru ritaðar hefur útrýmingarherferð Ísraelshers á Gaza staðið í fjórar vikur. Fjöldi íbúa Gazarstrandarinnar sem fallið hafa fyrir kúlum, sprengjum og eldflaugum hersins er kominn yfir 10 þúsund manns og yfir 4000 börn hafa verið myrt. Þetta er ekki stríð gegn Hamas, þetta er stríð gegn palestínskum börnum. Skoðun 7. nóvember 2023 09:31
Segir Ísrael munu taka yfir öryggisgæslu á Gasa í einhvern tíma Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði í viðtali sem sýnt var á ABC í gær að Ísrael myndi axla ábyrgð á öryggismálum á Gasa í einhvern tíma eftir að átökunum sem nú standa yfir lýkur, þar sem menn hefðu séð hvað gerðist þegar aðrir væru við stjórnvölinn. Erlent 7. nóvember 2023 07:08
Segir Gasaströndina líkjast grafreit fyrir börn Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Gasaströndina líkjast grafreit fyrir börn og kallar eftir tafarlausu vopnahlé. Erlent 6. nóvember 2023 22:31
Íranir hvetja múslímaríkin til að setja þrýsting á Bandaríkin og Ísrael „Múslimaheimurinn verður að auka pólitískan þrýsting á Bandaríkin og stjórnvöld Zíonista til að binda enda á fjöldamorðið á Gasa,“ segir í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlasíðu Ayatollah Ali Khamenei, leiðtoga Íran, nú í morgun. Erlent 6. nóvember 2023 10:49
Bjarni er nú meiri karlinn Hafið þið heyrt söguna um Bjössa á KFC sem varð uppvís að því að leyfa pabba sínum að kíkja ofan í peningakassann og fékk að velja refsingu sína sjálfur? Hann axlaði ábyrgð með því að færa sig yfir á djúpsteikingarpottinn. Ekki hætta. Bara færa sig. Og það fyrsta sem hann gerði þar? Setti dauða rottu í pottinn til að ganga í augun á jafnöldrum sínum. Skoðun 6. nóvember 2023 07:01
Yfirmenn fjölda stofnana SÞ fordæma stöðuna og kalla eftir vopnahléi Ísraelsher segist hafa umkringt Gasaborg og náð að skipta Gasa í tvennt; Norður-Gasa og Suður-Gasa. Talsmaður hersins segir um að ræða mikilvægan áfanga í stríðinu gegn Hamas-samtökunum. Erlent 6. nóvember 2023 06:43
„Ríkisstjórnin hefur orðið okkur til skammar á alþjóðavettvangi“ Formaður félagsins Ísland-Palestína sagði viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna átakanna á Gasa vera Íslendingum til skammar á samstöðufundi fyrir Palestínu í dag. Tugir eru sagðir hafa verið drepnir og fleiri særst í árásum á flóttamannasvæði í nótt. Innlent 5. nóvember 2023 20:00
Húsfyllir í Háskólabíói á stórfundi fyrir Palestínu Meira en þúsund manns eru mættir í Háskólabíó á stórfund fyrir Palestínu, samstöðufund sem félagið Ísland-Palestína stendur fyrir. Innlent 5. nóvember 2023 14:44
Ég skil ekki Við lifum á tímum upplýsinga. Ef við kærum okkur um getum við kynnt okkur sögu Palestínu, tilurð Ísraelsríkis og allt það sem hefur gerst síðan. Við fáum upplýsingar í rauntíma um hvað er að gerast á þessu svæði akkúrat núna. Skoðun 5. nóvember 2023 08:31
Opið bréf til ríkisstjórnarinnar: ákall um aðgerðir vegna ástandsins á Gaza Kæra ríkisstjórn, Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 9.000 Palestínumenn á Gaza látist í árásum Ísraela á Gaza. Þar af eru fleiri en 3.700 börn. Skoðun 5. nóvember 2023 08:00
Hvergi öruggt á Gasa Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir hvergi öruggt að vera á Gasa. Ísraelski herinn er sagður hafa drepið fleiri en tíu þegar loftárás var gerð á skóla á Gasa í morgun. Forsætisráðherra Ísraels segir vopnahlé ekki koma til greina fyrr en gíslum í haldi Hamas verði sleppt. Erlent 4. nóvember 2023 22:30
Fundar með utanríkisráðherrum arabaríkja um vopnahlé Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag. Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að forsætis- og utanríkisráðherra leggi sitt af mörkum við að koma á vopnahléi. Innlent 4. nóvember 2023 12:49
Segir hlé ekki inni í myndinni nema gíslum sé sleppt Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir að ekki komi til greina að gera svokallað mannúðarhlé á átökunum á Gasaströndinni. Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er í Ísrael og ræddi hann við Netanjahú um slíkt hlé. Erlent 3. nóvember 2023 15:28
Kastaði lifandi rottum inn á McDonalds Lögreglan á Fjóni hefur lagt fram ákæru á hendur tvítugum manni fyrir að hafa kastað rottum á McDonalds-veitingastað í Óðinsvé. Erlent 3. nóvember 2023 14:07
Fjölskyldur fórnarlamba Hamas krefjast rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Fjölskyldur níu einstaklinga sem létust í árásum Hamas-liða á byggðir Ísraelsmanna við landamörkin að Gasa 7. október hafa sent inn kvörtun til Alþjóðasakamáladómstólsins vegna mögulegra stríðsglæpa. Erlent 3. nóvember 2023 11:46
Málaliðar Wagner færa Hezbollah loftvarnarkerfi Málaliðhópurinn rússneski, Wagner Group, er sagður ætla að senda hryðjuverkasamtökunum Hezbollah í Líbanon rússneskt loftvarnarkerfi, með mögulegri aðstoð Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Óttast er að Hezbollah ætli að opna nýja víglínu gegn Ísrael í norðurhluta landsins. Erlent 3. nóvember 2023 11:43
Íslensk stjórnvöld auka fjárframlög og kalla eftir mannúðarhléi Íslensk stjórnvöld hyggjast tvöfalda framlög sín til mannúðaraðstoðar á Gasa. Frá þessu var greint við neyðarumræðu um átökin á svæðinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, þar sem fulltrúi Íslands kallaði eftir tafarlausu hléi. Innlent 3. nóvember 2023 10:22
Hringdi í mömmu, Hamas svaraði Ditza Heiman er ein þeirra gísla sem tekinn var þegar Hamas réðst inn í Ísrael þann 7. október síðastliðinn og þegar dóttir hennar hringdi í hana sama morgun svaraði Hamasliði í símann. Erlent 3. nóvember 2023 09:56
Blinken kominn til Tel Aviv og mun ræða við Netanyahu um hlé Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Tel Aviv þar sem hann mun funda með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael. Hann er sagður munu hvetja stjórnvöld til að gera hlé á árásum sínum og sókn í Gasa. Erlent 3. nóvember 2023 07:09
„Við erum komnir að hliðum Gasa-borgar“ Ísraelskir hermenn og skriðdrekar sækja að Gasa-borg en eru sagðir hafa mætt stífri mótspyrnu Hamas-liða. Hermenn hafa nánast klofið Gasaströndina í tvennt. Erlent 2. nóvember 2023 15:54
Rétturinn til sjálfsvarnar Skilaboðin sem koma frá stjórnmálamönnum í fjölmiðlum þessa dagana eru: Ísrael hefur rétt til að verja sig. En það vantar oft nauðsynlega viðbót. Það er nefnilega hægt að styðja rétt til sjálfsvarnar án þess að styðja rétt til að fremja stríðsglæpi og fjöldamorð. Skoðun 2. nóvember 2023 07:00
Biden segir þörf á hléi Joe Biden Bandaríkjaforseti virðist vera að snúast á sveif með þeim sem hafa kallað eftir vopnahléi á Gasa en hann var staddur á fjáröflunarviðburði í gær þegar rabbíni kallaði að forsetanum og biðlaði til hans um að beita sér fyrir vopnahléi. Erlent 2. nóvember 2023 06:59