

Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.
Minnst tveir fórust og 22 særðust þegar rússnesk flugskeyti hæfðu þéttsetið veitingahúsasvæði í austurhluta borgarinnar Kramatorsk í Úkraínu, að sögn þarlendra yfirvalda.
Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA hyggst taka vörur frá súkkulaðirisanum Mondelez úr sölu. Fyrirtækið er enn með umsvifamikla starfsemi í Rússlandi og greiðir skatta til rússneska ríkisins.
Aleksander Lúkasjenka, forseti Belarús, tilkynnti fyrir skömmu að Jevgeníj Prigozhin væri kominn til landsins. Útlegð hans til landsins var hluti af samkomulagi um endalok skammvinnrar uppreisnar Wagner-málaliðahóps hans um helgina.
Rússneska leyniþjónustan FSB staðfesti að hún hefði bundið enda á sakamálarannsókn á Jevgeníj Prigozhin og Wagner-málaliðum hans fyrir skammvinna uppreisn þeirra um helgina þrátt fyrir að Pútín forseti hefði lýst honum sem „svikara“ í ávarpi í gær. Óljóst er hvar Prigozhin er niður kominn.
Forseti Rússlands segir að uppreisn Wagner-hópsins um helgina hafi sýnt að allar tilraunir til að brjóta stjórn Rússlands niður að innan muni enda með tapi. Hann segist ætla að sjá til þess að réttlætinu verði fullnægt þegar kemur að skipuleggjendum uppreisnarinnar.
Jevgeníj Prigozhin, eigandi málaliðahersins Wagner-hópsins, segir að markmið uppreisnar hans gegn rússneskum heryfirvöldum um helgina hafi verið að koma í veg fyrir að hópurinn væri leystur upp, ekki að ræna völdum. Hópurinn hafi stoppað til að komast hjá fyrirsjáanlegu blóðbaði.
Eftir á að hyggja er grein Vladímír Pútín „Um sögulega einingu Rússa og Úkraínumanna“ (2021) ætlað að rökstyðja innrás í Úkraínu. Greinin er birt á vefsíðu Kremlar þann 12. júlí 2021 (klukkan 17:00). Innrás Rússa í Úkraínu hófst 24. febrúar 2022. Í neðangreindu máli skoða ég þá réttlætingu sem Pútín teflir fram fyrir hernaðaraðgerð gegn Úkraínu, til samanburðar réttlætingar arfleifðar Ísraelsmanna í Kanaanlandi, samkvæmt 1. Mósebók.
Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, heimsótti hersveitir landsins í Úkraínu í gær en þetta er í fyrsta sinn sem sést til varnarmálaráðherrans eftir valdaránstilraun Yevgeny Prigozhin og Wagner-liða um helgina.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir uppreisn Yevgeny Prigozhin og Wagner málaliðanna í Rússlandi í gær hafa verið raunverulega ógn við vald Vladimírs Pútíns, Rússlandsforseta. Hann segir Bandaríkin fylgjast vel með stöðunni.
Prófessor í Rússlandsfræðum, segir að endalok uppreisnar Wagner liða í Rússlandi í gær hafi verið allra hagur, bæði stjórnvalda í landinu sem og leiðtoga Wagner hópsins. Hann segir málinu ekki lokið, um sé að ræða biðleik.
Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner-málaliðahópsins, hefur komist að samkomulagi við Alexander Lúkasjenkó, forseta Belarús, um að láta af uppreisn sinni gegn hermálayfirvöldum í Rússlandi.
Yevgeny Prigozhin, leiðtogi Wagner málaliðahópsins, hefur lýst því yfir að uppreisninni sé lokið. Þetta kemur fram í ávarpi sem hann sendi frá sér nú síðdegis. Hann segist hafa náð samkomulagi við Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta Rússlands, um að binda enda á uppreisnina.
Utanríkisráðherra fylgist grannt með framvindu mála í Rússlandi og metur stöðuna klukkustund frá klukkustund. Hún segir stöðuna ekki koma á óvart þar sem þetta hafi verið ein af þeim sviðsmyndum sem hafi verið teiknaðar upp. Þó sé enn óljóst að leggja mat á hvað raunverulega sé að gerast.
Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki hægt að líta öðruvísi svo á en að um valdaránstilraun sé að ræða af hálfu Wagner liða í Rússlandi. Hafa verði í huga að enginn hátt settur samstarfsmaður Pútín hafi enn sem komið er snúist gegn honum og því verði erfitt fyrir Wagner liða að koma á valdaskiptum.
Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Rússlandi til þess að hafa samband og láta vita af sér vegna ástandsins í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Yevgeny V. Prigozhin, leiðtogi Wagner málaliðahópsins og viðskiptajöfurinn sem löngum hefur verið þekktur sem „kokkur Pútíns“ berst nú leynt og ljóst gegn rússneska ríkinu. Erlendir miðlar hafa keppst við að gera litríkri ævi leiðtoga málaliðahópsins skil í dag.
Samkvæmt nýjustu fregnum hefur Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi málaliðahópsins Wagner, sent frá sér enn ein skilaboðin þar sem hann segir Wagner-liða komna inn í borgina Rostov í suðurhluta Rússlands.
Yevgeny Prigozhin, rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn Wagner Group og hefur tekið virkan þátt í innrás Rússa í Úkraínu, lýsti því yfir í kvöld að leiðtogaráð Wagner hefði ákveðið að fara í hart gegn leiðtogum Varnarmálaráðuneytis Rússlands og að „rústa“ öllum sem standa í vegi þeirra.
Viðvaranir voru í gildi víða í Úkraínu í morgun vegna mögulegra loftárása Rússa. Greint hefur verið frá sprengingum allt frá Lviv til Kherson en engar fregnir hafa borist af dauðsföllum.
Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Varsjá, afhenti í gær Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði við því í morgun að Rússar ætluðu sér að fremja skemmdarverk á Saporisjía kjarnorkuverinu. Leyniþjónusta Úkraínu hefði komist á snoðir um að Rússar ætluðu sér að hleypa geislavirkum efnum frá kjarnorkuverinu.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir gagnsókn Úkraínumanna ganga hægar en vonast var eftir. Henni verði þó haldið á þeim hraða sem Úkraínumenn kjósa. Ekki sé um Hollywood kvikmynd að ræða, heldur séu líf í húfi.
Zak, hælisleitandi af mongólskum uppruna sem er með rússneskt ríkisfang, og sendur var úr landi í lögreglufylgd til Spánar í gær er nú á leið til Georgíu til að hefja nýtt líf. Kona sem tengist honum fjölskylduböndum segir þungu fargi létt af fjölskyldunni.
Hælisleitandi, af mongólskum uppruna og með rússneskt ríkisfang, var settur um borð í flugvél Icelandair til Barselóna nú í morgunsárið. Aðstandandi hans hér heima segir algjöra óvissu vera uppi um það hvað bíður hans á Spáni.
Vikulöng flugsýning hófst í París í dag í fyrsta sinn frá því kórónuveirufaraldurinn skall á. Reiknað er með að gengið verði frá fjölda samninga um kaup og sölu á flugvélum á sýningunni fyrir stórar upphæðir.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór í dag á fund Xi Jinping, forseta Kína, en eftir fundinn hétu þeir því að bæta samskipti ríkjanna. Þau hafa versnað verulega á undanförnum árum.
Hælisleitandi, af mongólskum uppruna og með rússneskt ríkisfang, óttast það að verða fallbyssufóður í innrásarstríði Rússa þar sem hann verður að óbreyttu sendur úr landi með lögreglufylgd á morgun. Hann vill hefja nýtt líf í Georgíu, þar sem kærasta hans er nú búsett, en fær vegabréf sitt ekki afhent frá Útlendingastofnun og eru örlög hans því í höndum spænskra yfirvalda, þar sem hann hafði fengið spænska vegabréfsáritun inn á Schengensvæðið.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í dag að til greina kæmi að beita kjarnorkuvopnum, ef öryggi Rússlands væri ógnað. Þá sagði Pútín að Rússar myndi ekki fækka kjarnorkuvopnum sínum, sama hvurslags samkomulag Vesturlönd reyndi að gera við Rússland.
Ólafur Ágúst Andrésson, kjörræðismaður Rússa á Íslandi og forstöðumaður kjötafurðasviðs Kaupfélags Skagfirðinga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eftir 27 ára starf fyrir félagið.
Skipulagsstofnun hefur birt mjög neikvæða umsögn um vikurflutninga frá Mýrdalssandi. Eignarhald ólígarka með tengsl við Rússland og slæmt umhverfisorðspor hefur ekki verið til umræðu hjá sveitarstjórn.