Endurgreiða fyrsta skemmda ísinn í sögu Ísbílsins Ísbíllinn endurgreiðir 34 ístegundir sem seldar voru í Eyjafirði, Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu 8. til 10. júlí síðastliðinn. Vegna mistaka hjá Samskipum hálfþiðnaði ís á leið til Akureyrar. Eigandi Ísbílsins segir um að ræða í fyrsta sinn sem slík mistök verði, það sé mikil vinna að verða við öllum endurgreiðslubeiðnunum. Neytendur 25. júlí 2023 15:54
Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi. Tónlist 18. júlí 2023 11:06
Svíta fyrir ferðamenn í gömlu kirkjunni á Blönduósi Kirkjan í gamla bænum á Blönduósi hefur fengið nýtt hlutverk en hún er nú notuð, sem svíta fyrir ferðamenn, sem vilja prófa að gista í kirkju. Innlent 17. júlí 2023 20:30
Sérstakt Eric Clapton herbergi á Hótel Blönduósi Heilmikið líf er að kvikna í gamla bænum á Blönduósi því þar er búið að vera að gera upp gömul hús og koma þeim í rekstur, meðal annars Hótel Blönduósi þar sem Eric Clapton á sitt eigið herbergi. Innlent 26. júní 2023 20:49
Spenna magnast vegna Prjónagleðinnar á Blönduósi Mikil spenna og eftirvænting er á Blönduósi fyrir Prjónahátíð, sem haldin verður þar aðra helgina í júní þar sem prjónafólk af öllu landinu mun sameinast til að prjóna og miðla prjónasögum. Sveitarstjóri Húnabyggðar hefur skráð sig á námskeiðið „Karlar prjóna“ á hátíðinni. Innlent 31. maí 2023 21:03
Stjórnvöld verði að breyta sínum áherslum í riðumálum Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að sauðfjárbændur í Austur Húnavatnssýslu séu á nálum yfir því að riða getið komi upp á svæði þeirra eftir að riða kom upp á tveimur bæjum í Vestur Húnavatnssýslu í vor. Innlent 27. maí 2023 15:04
Biðlar til ökumanna að stoppa á Blönduósi Sveitarstjóri Húnabyggðar biðlar til ferðamanna um að þeir stoppi á Blönduósi þegar þeir keyra í gegnum bæjarfélagið, ekki bara að stoppa til að fara á salerni eða að fá sér pylsu. Um sjö hundruð þúsund bílar keyra í gegnum Blönduós árlega og stoppa fæstir þeirra á staðnum. Innlent 26. maí 2023 21:05
Feðgarnir á Blönduósi verða ekki ákærðir Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða karlmanns sem varð konu að bana á Blönduósi í ágúst í fyrra. Þetta staðfestir verjandi í málinu við fréttastofu en RÚV greindi fyrst frá. Innlent 15. maí 2023 14:53
Næturgisting í kirkju í boði á Blönduósi Hótel Blönduós verður opnað með pompi og prakt eftir glænýjar endurbætur um helgina. Stórri svítu hefur verið bætt við í sjálfri gömlu kirkjunni á Blönduósi og gefst gestum og gangandi kostur á að skoða nýjan hluta af hótelinu um helgina, þó það opni ekki formlega fyrr en á mánudag. Myndasyrpu frá Blönduósi má skoða neðst í fréttinni. Lífið 13. maí 2023 08:00
Tilgangur kærunnar í Blönduósmálinu ekki að koma höggi á aðra aðstandendur Fjölskylda Brynjars Þórs Guðmundssonar, mannsins sem varð Evu Hrund Pétursdóttur að bana á Blönduósi í ágúst á síðasta ári, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar sinnar um að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á máli hans. Brynjar Þór lést eftir árásina. Fjölskyldan vill að allt verði gert til að varpa ljósi á málið og segir ætlunina ekki vera að koma höggi á aðra sem eigi um sárt að binda vegna málsins. Innlent 17. apríl 2023 18:19
Ákvörðun um að gefa ekki út kæru vegna dauða árásarmannsins kærð Ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa ekki út ákæru vegna dauða mannsins sem varð konu að bana á Blönduósi hefur verið kærð til ríkissaksóknara. Aðstandendur mannsins kærðu ákvörðunina. Innlent 14. apríl 2023 12:23
Blönduós orðinn þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að Blönduós sé orðið þekktur staður á meðal stórborga í Evrópu vegna starfsemi Textílmiðstöðvar Íslands á staðnum. Prjónahátíðin á Blönduósi er hluti af starfsemi textílmiðstöðvarinnar en verður haldin 9. til 11. júní í sumar á Blönduósi. Innlent 12. mars 2023 14:05
Segir enga peninga að fá nema í gegnum kunningsskap Sveitarstjóri Húnabyggðar segir það sæta furðu að ekkert gerist í forgangsröðun á fjármunum ríkisins til svæða eins og Húnabyggðar nema í gegnum kunningsskap og útdeilingar úr nefndum þar sem ekkert gagnsæi ríki. Innlent 4. mars 2023 15:06
Blönduósmálið fellt niður á grundvelli neyðarvarnar Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru í rannsókn á manndrápi á Blönduósi í ágúst í fyrra. Talið var að sakborningar í málinu hefðu ekki farið út fyrir takmörk sín til leyfilegrar neyðarvarnar. Málið hefði ekki verið líklegt til sakfellis. Innlent 1. mars 2023 11:36
Brúin skemmdist minna í krapaflóðinu en á horfðist Starfsmenn Vegagerðarinnar luku við að lagfæra brú að bænum Barkarstöðum í Svartárdal í dag. Brúin skemmdist minna en á horfðist í miklu krapaflóði í Svartá á mánudagskvöld en miklar viðgerðir þarf á veginum um dalinn. Innlent 17. febrúar 2023 17:20
Fjölskylda og skólabíllinn innlyksa eftir krapaflóð í Svartárdal Sex manna fjölskylda á bænum Barkarstöðum í Svartárdal er innlyksa á bænum eftir að krapaflóð eyðilagði brúna að honum í gærkvöldi. Skólabíll sveitarinnar er einnig fastur. Gríðarlegar skemmdir urðu á túnum og girðingum bænda í dalnum, að sögn bónda þar. Innlent 14. febrúar 2023 21:05
Rannsókn lögreglu á Blönduósi lokið: Tók lögregluna 26 mínútur að mæta á staðinn Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skotárás á Blönduósi hinn 21. ágúst 2022 er lokið. Árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu. Hann var með sjö haglaskot og veiðihníf meðferðis. Það tók lögreglu 26 mínútur að koma á vettvang. Innlent 10. febrúar 2023 17:23
Líklegt að tvö hundruð svín hafi drepist í eldsvoða Allt tiltækt lið Brunavarna Austur-Húnvetninga var kallað í morgun vegna elds í svínabúi við Skriðuland í Langadal. Talið er að rúmlega tvö hundruð svín hafi drepist í brunanum en þó er útlit fyrir að tekist hafi að bjarga fimm til sex hundruð svínum. Innlent 6. febrúar 2023 10:12
Hún sagði „já, já“ við óvæntu bónorði íslenska flugstjórans Íslenskur flugstjóri í innanlandsflugi á Grænlandi kom farþegum sínum sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu þegar hann birtist úr stjórnklefanum og bað einn flugfarþegann um að giftast sér. Lífið 2. janúar 2023 21:42
Íslenski flugstjórinn birtist óvænt og bar fram bónorð Íslenskur flugstjóri Air Greenland í innanlandsflugi frá Kangerlussuaq til Nuuk kom grænlenskri kærustu sinni sannarlega á óvart daginn fyrir Þorláksmessu. Hún hafði enga hugmynd um að hann væri um borð, hvað þá að hann væri að stýra flugvélinni, þegar hann birtist óvænt úr stjórnklefanum, fór í hátalarakerfið og bar fram bónorð. Lífið 2. janúar 2023 11:55
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. Innlent 12. nóvember 2022 23:11
Fjórða kæran í ferli vegna meintra kynferðisafbrota sama einstaklings Enn ein konan hefur stigið fram vegna karlmanns sem hefur þegar verið kærður í þrígang fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Málin þrjú eru fyrnd en ekki mál konunnar sem nú stígur fram. Innlent 27. október 2022 09:01
Vill komast í samband við fleiri foreldra dvergvaxinna barna Í dag er alþjóðlegur dagur dvergvaxinna. Kristín Ósk Bjarnadóttir vakti athygli á málinu í Reykjavík síðdegis í dag en dóttir hennar, Hildur, er með dvergvöxt. Kristín Ósk vill komast í samband við fleiri foreldra dvergvaxinna barna. Innlent 25. október 2022 21:33
Bíllinn gjörónýtur en fjölskylduna sakaði ekki Brunavarnir Austur-Húnvetninga fengu útkall frá Neyðarlínu á fimmta tímanum síðdegis í gær, þess efnis að eldur væri laus í díselbíl á þjóðvegi eitt, skammt vestur af Blönduósi. Innlent 2. október 2022 20:04
Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. Innlent 28. september 2022 08:01
Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina. Innlent 19. september 2022 22:42
Sameinast um að fægja og lífga upp á falda perlu á Blönduósi Sveitarstjórn Húnabyggðar og fyrirtækið Info Capital hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gamla bæjarkjarnans á Blönduósi. Gömlu götumyndinni er lýst sem einstakri perlu sem ætlunin er að fægja og lífga upp á. Innlent 3. september 2022 07:37
Efna til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs á Blönduósi Efnt hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs Guðmundssonar sem grunaður er um að hafa orðið konu að bana á Blönduósi og sært eiginmann hennar alvarlega. Brynjar Þór lést í kjölfarið og er atburðarásin til rannsóknar hjá lögreglu. Innlent 3. september 2022 00:21
Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Viðskipti innlent 2. september 2022 07:58
Söfnun sett af stað fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Opnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Evu Hrundar Pétursdóttur sem lést eftir skotárás á Blönduósi þann 21. ágúst. Lífið 31. ágúst 2022 14:44