Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki loka á okkur

Fyrir aðeins tveimur dögum varð Grindavík Íslandsmeistari í körfuknattleik karla. Ótrúlegt afrek hjá liði sem hefur þurft að lifa og æfa fjarri heimabæ sínum í meira en tvö ár.

Skoðun
Fréttamynd

Grét alla Reykja­nes­brautina

Grindvíkingar gleðjast þessa dagana eftir langþráðan Íslandsmeistaratitil í körfubolta. Þungbær vegur var troðinn í átt að titlinum og fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar getur vart hugsað sér betri leið til að kveðja.

Körfubolti
Fréttamynd

„Halda að við séum í ein­hverju stríði en hann er minn maður“

Tindastóll eru ekki dauðir úr öllum æðum og sóttu gríðarlega mikilvægan sigur í leik þrjú í úrslitaeinvíginu í Grindavík. Með bakið upp við vegg og 2-o undir náði Tindastóll að tryggja sér fjórða leikinn með fimm stiga sigri 89-94. Dedrick Basile ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Grinda­vík - Tinda­stóll 89-94| Tinda­stóll heldur lífi í ein­víginu

Þriðji leikur úrslitaeinvígis Bónus deild karla fór fram í HS Orku höllinni í kvöld þegar heimamenn í Grindavík mættu Tindastól. Grindavík leiddi einvígið 2-0 og gat með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á meðan Tindastóll var með bakið upp við vegg.Eftir stórkostlegan körfuboltaleik náði Tindastóll frábærum fimm stiga sigri 89-94 og tryggði sér um leið fjórða leikinn í einvíginu.

Körfubolti
Fréttamynd

Á­kvarðanir um að­gengi að Grinda­vík lausar í reipunum

Losarabragur var á því hvernig lögreglustjórinn á Suðurnesjum tók ákvarðanir um aðgengi að Grindavík, skjalfesti þær og miðlaði til almennings. Hópur sérfræðinga finnur að því að lögreglustjóri hafi ítrekað sagt fólk á eigin ábyrgð í Grindavík þegar áhættumat fyrir svæðið hafi ekki verið aðgengilegt almenningi.

Innlent
Fréttamynd

„Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“

Leikir Tindastóls í úrslitakeppni Bónus-deildar karla í körfubolta taka yfir allt lífið á Sauðárkróki á leikdegi segir formaður körfuknattleiksdeildar félagsins. Hann segir mikla tilhlökkun fyrir leik kvöldsins gegn Grindavíkur og fánar félagsins séu við hún víða um bæinn.

Körfubolti
Fréttamynd

Að­dáunar­verð þraut­seigja Grind­víkinga

Aðstæður íbúa Grindavíkur hafa verið mér hugleiknar allt frá því jarðskjálftahrinur hófust fyrir alvöru á Reykjanesi og síðan hvert eldgosið á fætur öðru. Fyrir okkur sem búum ekki í bænum er erfitt að ímynda sér hvernig fólki líður sem gert hefur verið að rífa sig upp með rótum og yfirgefa bæinn sinn, húseignir, atvinnu og samfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Trúin og traustið innan hópsins eigi eftir að skila liðinu á­fram

„Ég er bara fullur tilhlökkunar og ótrúlega spenntur fyrir kvöldinu. Þetta eru sérstakir leikir, oddaleikir, og við fórum í einn slíkan síðastliðið vor og mér finnst stelpurnar hafa sýnt mikla yfirvegun og mikið hugrekki í gegnum það mótlæti sem hefur mætt í þessari seríu,“ segir Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga fyrir oddaleikinn í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindavík í IceMar höllinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Sýn Sport Íslands.

Sport