Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar 14. október 2026 13:15 Það er margt sem mig hefur langað að segja um lífið í Grindavík þessa dagana. Bæði við þá Grindvíkinga sem búa annars staðar og velta því kannski fyrir sér hvort þeir eigi að snúa aftur heim og við aðra Íslendinga sem fylgjast með því sem er að gerast hjá okkur. Mig langar fyrst og fremst að skrifa um þakklæti. Því þrátt fyrir alla óvissuna, allt sem er óklárað og allt sem við viljum sjá gerast hraðar, þá er líka ótrúlega margt gott að gerast í Grindavík. Nú hafa tveir synir mínir verið í Grunnskóla Grindavíkur í um tvo mánuði og ég verð að segja að ég er alveg gífurlega ánægð með það starf sem þar er unnið. Mig langar sérstaklega að hrósa skólastjóra og kennurum drengjanna minna. Ég get ekki ímyndað mér að það sé auðvelt verkefni að taka aftur á móti börnum eftir allt sem hefur gengið á. Börnin hafa verið í mismunandi skólum, upplifað ólíka hluti og eru kannski á mjög mismunandi stöðum, bæði námslega og félagslega. Svo þarf að byggja skólastarfið upp á nýtt, gera það skemmtilegt og tryggja um leið að börnin læri það sem þau eiga að læra. Fyrir suma hlýtur það líka að vera skrítin tilfinning að koma aftur í gamla skólann sinn, þar sem allt er kunnuglegt en samt einhvern veginn allt öðruvísi. Ég er svo heppin að strákarnir mínir elska skólann. Þeir eru ánægðir með að mæta. Tíu ára sonur minn, Þorvaldur, er meira að segja farinn að læra ýmislegt sem hann átti ekki endilega að vera byrjaður á strax. Það finnst honum auðvitað stórmerkilegt. Það er erfitt að lýsa því hvað það er dýrmætt sem foreldri að sjá börnin sín svona ánægð. Og ég veit að það gerist ekki af sjálfu sér. Þarna er fólk sem leggur sig fram á hverjum degi og á svo sannarlega skilið að fá hrós fyrir það. Þetta var nefnilega ákveðin áhætta hjá okkur. Við hjónin vorum lengi á báðum áttum um hvort við ættum að halda áfram að keyra á milli og bíða eftir einhverri niðurstöðu frá Þórkötlu eða einfaldlega láta slag standa og senda strákana í skólann í Grindavík. Í dag er ég ótrúlega fegin að við tókum þessa ákvörðun. Næst elsti sonur minn er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík og þar hef ég líka verið ótrúlega heppin. Ég fékk aðstoð frá grindvíkingum sem á leið þangað daglega og hefur boðist til að skutla honum í skólann og sækja hann þegar það hentar. Þetta hefur létt mikið undir hjá okkur og er einmitt svo gott dæmi um hvernig samfélagið hér virkar. Fólk hjálpast að, finnur lausnir og er tilbúið að leggja öðrum lið. Stundum þarf ekki meira en að einhver bjóðist til að taka einn farþega með í bílinn. Fyrir fjölskylduna sem fær aðstoðina getur það hins vegar skipt heilmiklu máli. Þetta er eitt af því sem ég kann svo vel að meta við Grindavík. Ég er líka mjög þakklát bæjarstjórn Grindavíkur fyrir að halda áfram að berjast fyrir okkar hag og vinna að uppbyggingu bæjarins þrátt fyrir allar þær hindranir sem verða á vegi hennar. Það þarf alveg gífurlega sterkt bein í nefinu til að halda áfram, mæta mótspyrnu úr ýmsum áttum og gefast samt ekki upp. Mig langar líka sérstaklega að nefna Pétur bæjarstjóra. Ég hef verið mjög ánægð með hversu sýnilegur og aðgengilegur hann er. Hann mætir á fundi, gefur sér tíma til að hlusta og er til staðar fyrir íbúana, líka þegar málin virðast kannski smávægileg í stóra samhenginu. Fyrir okkur sem búum hér skiptir það miklu máli. Auðvitað viljum við íbúarnir meira. Við sem rekum lítil og meðalstór fyrirtæki viljum líka meira. Og það er ekkert skrýtið. Það er svo margt sem þarf að kippa í lagið og helst strax. Mér finnst mjög mikilvægt að stjórnvöld styðji betur við bæjarstjórnina og fyrirtækin í Grindavík svo uppbyggingin geti gengið hraðar og betur fyrir sig. Ég hugsa til dæmis mikið um íþróttaæfingar og tómstundir fyrir börnin okkar. Það er frábært að skólinn sé kominn af stað, en börnin þurfa líka að geta farið á æfingar, hitt vini sína og átt eðlilegt félagslíf. Þetta eru hlutir sem skipta gríðarlega miklu máli þegar verið er að byggja samfélag upp á nýtt. Ég veit að það er verið að skoða þessi mál og vona að við sjáum fljótlega fleiri tækifæri fyrir börnin okkar. Ég er líka sannfærð um að það er verið að vinna í heilmörgu sem við íbúarnir fáum kannski ekki alltaf að heyra um. En ég vona að baráttan um endurkaupin og öll hin flóknu málin taki ekki svo mikla orku að uppbygging samfélagsins sitji á hakanum. Það er nefnilega ekki nóg að fólk geti keypt húsin sín aftur. Það þarf líka að vera samfélag sem fólk vill flytja aftur í og sem nýir íbúar sjá fyrir sér að verða hluti af. Ég sé ekki eftir því að hafa komið aftur til Grindavíkur. Þrátt fyrir að hafa ekki búið hér lengi fyrir rýminguna finnst mér hvergi betra að vera. Ég veit að ég er ekki ein um þá tilfinningu. Við sem búum hér núna erum mörg ótrúlega ánægð með að fá að taka þátt í uppbyggingunni og hafa áhrif á það hvernig bærinn okkar verður í framtíðinni. En svo er það auðvitað óvissan sem fylgir okkur enn. Nú hefur Þórkatla ákveðið að framlengja gistiviðauka við hollvinasamninga til loka janúar í stað þess að þeir renni út í byrjun nóvember. Það er auðvitað gott að fá þessa framlengingu, en á sama tíma þýðir hún fyrir mörg okkar líklega enn meiri bið eftir raunverulegri lausn. Við búum eiginlega við endalausa spurningu um hvað gerist næst. Hvað gerist eftir tvær vikur? Eftir tvo mánuði? Fáum við að kaupa húsin okkar aftur? Á hvaða kjörum? Og hvenær fáum við loksins einhver svör sem gera okkur kleift að skipuleggja framtíðina? Það er ekki auðvelt að lifa svona, hvorki fyrir fjölskyldur né fólk sem er að reyna að byggja upp atvinnurekstur. Það sem mér finnst stjórnvöld sérstaklega þurfa að gera sér grein fyrir er að fasteignakaupin í Grindavík voru aldrei venjuleg fasteignaviðskipti. Húsin okkar voru keypt vegna algjörlega sérstakra aðstæðna. Þetta var neyðarúrræði þegar fólk þurfti að yfirgefa heimili sín vegna náttúruhamfara. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að möguleg endurkaup verði ekki meðhöndluð eins og um hefðbundin fasteignaviðskipti sé að ræða. Það þarf að horfa á heildarmyndina. Þegar Grindvíkingar þurftu að finna sér nýtt húsnæði fóru mjög margir út á fasteignamarkaðinn á svipuðum tíma. Ég tel að það hafi haft áhrif á fasteignaverð, ekki bara fyrir okkur Grindvíkinga heldur líka aðra landsmenn. Nú er staðan önnur. Fasteignamarkaðurinn er þyngri og margir hafa áhyggjur af því hversu auðvelt verður að selja. Hvað gerist ef við sem keyptum okkur húsnæði eftir rýminguna viljum nú selja það til að geta keypt gamla heimilið okkar aftur? Hvað ef við fáum ekki það verð sem við greiddum? Hvað ef eignin selst einfaldlega ekki? Og hvað gerist ef margar fjölskyldur lenda í þessari stöðu á sama tíma? Þetta eru ekki bara spurningar um húsnæðisverð. Þetta snýst um fjárhagslegt öryggi fjölskyldna, framtíð barna og möguleika fólks til að snúa aftur heim. Mér finnst að stjórnvöld verði að horfa á endurkaupin í því samhengi sem þau urðu til. Þetta var neyðaraðstoð við fólk sem hafði misst möguleikann á að búa á heimilum sínum, ekki venjuleg sala á frjálsum markaði. Ég vona svo sannarlega að það finnist sanngjörn lausn sem tekur mið af þessu öllu. Það gæti verið góð hugmynd að skoða fjárhag grindvíkinga í dag vs fyrir rýmingu. En mig langar ekki að enda á óvissunni, því hún er ekki það sem mér finnst lýsa lífinu í Grindavík best í dag. Það er fólkið sem gerir það. Það sem mér finnst svo fallegt við að búa hér er hvernig fólk tekur á móti hvert öðru. Hvernig tekið er á móti nýjum íbúum og þeim sem eru að koma aftur. Hvernig fólk fylgist með nágrönnum sínum og passar upp á hvert annað þegar eitthvað bjátar á. Þetta er eitthvað sem er erfitt að útskýra fyrir þeim sem hafa ekki upplifað það. Þetta er líka eitt af því sem mér finnst svo frábært við að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Þú getur haft svo mikil áhrif. Þú þarft ekki að vera í einhverri stórri stöðu eða hafa mikil völd. Stundum nægir einfaldlega að mæta, koma með hugmynd, bjóða fram krafta sína eða nýta það sem þú ert góð eða góður í. Það er pláss fyrir fólk sem vill taka þátt og það finnst mér ótrúlega dýrmætt. Ég veit vel að það hentar ekki öllum að flytja aftur til Grindavíkur núna. Margar fjölskyldur eru búnar að koma sér fyrir annars staðar, börnin komin í nýja skóla og búin að eignast vini og lífið tekið aðra stefnu. Það er fullkomlega skiljanlegt og eitthvað sem við verðum að virða. En við þá Grindvíkinga sem eru að hugsa um að koma aftur langar mig að segja eitt. Við getum ekki beðið endalaust eftir því að allt verði tilbúið, öll svör komin og öll óvissa horfin. Stundum verður maður einfaldlega að stökkva á vagninn og sjá hvað gerist. Það gerðum við hjónin og þótt við vissum ekki nákvæmlega hvernig þetta myndi ganga upp, þá er ég svo fegin í dag að við létum slag standa. Auðvitað eru aðstæður fólks mismunandi og hver fjölskylda þarf að taka sína ákvörðun, en ef löngunin til að koma heim er til staðar þá finnst mér mikilvægt að óvissan ein og sér fái ekki alltaf að ráða ferðinni. Það er svo sannarlega líf hér. Hér eru börn að fara í skólann, fólk að mæta í vinnuna, fyrirtæki að byggjast upp og íbúar sem leggja sitt af mörkum til að gera bæinn okkar að góðum stað til að búa á. Og því fleiri sem koma og taka þátt, því meira líf verður hér og því auðveldara verður að byggja upp allt það sem okkur vantar enn. Við eigum enn langt í land og það er margt sem þarf að leysa. En við megum heldur ekki gleyma að sjá allt það góða sem er að gerast og þakka þeim sem standa í þessu með okkur. Ég er að minnsta kosti ótrúlega þakklát fyrir að fá að vera hér, sjá börnin mín blómstra í skólanum sínum og taka þátt í því að móta framtíð bæjarins. Ég hlakka til að sjá fleiri fjölskyldur, fleiri börn og fleiri fyrirtæki koma hingað og verða hluti af samfélaginu. Við erum ekki bara að bíða eftir að Grindavík verði eins og hún var áður. Við erum að byggja samfélagið okkar upp aftur og höfum um leið tækifæri til að gera margt enn betur. Og það finnst mér alveg ótrúlega spennandi. Höfundur er íbúi og fyrirtækjaeigandi í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun