Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Árni Sæberg skrifar 2. september 2026 16:07 Heitt hraunið hefur áhrif á hitastigið í Grindavík og grunur er um að varnargarðarnir leggi einnig sitt af mörkum. Vísir/Vilhelm Hlýrra og lygnara er í Grindavík í kjölfar náttúruhamfara sem riðið hafa yfir bæinn undanfarin misseri. Norðanáttin er nú hægari og hlýrri en áður og hafgolan virðist einnig hafa breyst.
Þetta segir í niðurstöðum minnisblaðs eftir þá Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing og Svein Gauta Einarsson, umhverfis- og orkuverkfræðing, sem fjallað er um á vef Grindavíkurbæjar. Í samantekt minnisblaðsins segir að breytingar á umhverfi Grindavíkur virðist hafa haft mælanleg áhrif á staðbundið veður. Frá því seint árið 2023 hafi ný hraun runnið norðan og norðaustan við bæinn og í kjölfarið hafi verið reistir varnargarðar. Nýju hraunin séu grófari en eldra yfirborð og gefi jafnframt enn frá sér varma, en varnargarðarnir auki einnig hrýfi landsins. Greiningin byggi á mælingum Veðurstofunnar í Grindavík frá 2008 og samanburði við mælingar Vegagerðarinnar á Reykjanesbraut. Viðmiðunartímabilið 2008 til 2023 hafi verið notað til að leiðrétta samanburðarstöðina eftir vindátt og árstíð og síðan hafi breytingar eftir 2023 verið metnar út frá frávikum milli stöðvanna. Helstu niðurstöður séu eftirfarandi: Vindur úr norðlægum vindáttum er almennt hægari í Grindavík. Líkleg skýring er aukið yfirborðshrýfi vegna útbreiðslu nýju hraunanna ásamt varnargörðunum. Hiti samfara norðlægum vindihefur hækkað. Mestur munur kemur fram í NAátt, þar sem meðalhiti mælist um 0,7°C hærri en fyrir eldvirknina. Hlýnunin kemur einkum fram að hausti og vetrinum. Að sumrinu er lítil breyting á hita yfir daginn. Þetta styður þá skýringu að varmi frá kólnandi hrauninu hafi áhrif á loftið sem berst yfir bæinn. Ekki kemur fam skýrt samband milli hitafrávika og þegar eldgos er í gangi eða dagana í kjölfar þess. Á hlýjum sumardögum hefur dregið úr vindi síðdegis sem nemur um 0,5 m/s. Gögnin benda til þess að hegðun hafgolunnar hafi breyst og mögulega einnig vindátt hennar. Rannsaka þurfi áhrif garðanna betur Greiningin sýni breytingu eftir 2023, en geti ekki með núverandi gögnum greint með vissu hversu stór hluti hennar stafar af hraununum og hversu stór af varnargörðunum. Jafnframt er bent á að staðbundin áhrif varnargarðanna geti verið meiri nær görðunum. Til þess að greina þau betur þyrfti sérstakar vindmælingar nær ásamt hermun loftflæðis. „Meginniðurstaðan er því að nýrunnin hraunin hafi hitað neðan frá loft sem berst yfir Grindavík í norðlægum vindáttum. Varnargarðarnir leggja líklega einnig sitt af mörkum með auknu yfirborðshrýfi, en bein áhrif þeirra á vind þarf að rannsaka betur.“
Veður Grindavík Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira