Veður

Víða all­hvasst og tals­verð rigning

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu fimm til þrettán stig.
Hiti á landinu verður á bilinu fimm til þrettán stig. Veðurstofan

Öflug hæð yfir Skotlandi og lægðardrag við Hvarf beina hlýrri og rakri sunnanátt til landsins, sem ber með sér rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig.

Á vef Veðurstofunnar segir að í nótt nálgist svo skilabakki úr vestri, en áfram ríki sunnanátt í fyrramálið. Þá verður víða allhvöss eða hvöss og talsverð rigning, en léttir til á norðaustanverðu landinu.

„Þegar skilin fara hjá snýst í minnkandi suðvestanátt með lítilsháttar skúrum, fyrst vestast á landinu þegar líður að hádegi. Svalara loft fylgir í kjölfarið og kólnar því smám saman.

Á miðvikudag er svo útlit fyrir hæglætis sunnanátt með dálitlum skúrum á víð og dreif, en léttskýjuðu veðri á Norður- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Suðvestan 3-10 m/s. Dálitlar skúrir á víð og dreif, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 8 stig að deginum, hlýjast sunnanlands.

Á fimmtudag: Sunnan 5-13 m/s og rigning með köflum, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti víða 5 til 10 stig.

Á föstudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og rigning, en úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig.

Á laugardag: Sunnan- og suðvestanátt með skúrum, en að mestu bjart norðaustan- og austantil. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands.

Á mánudag: Líklega suðvestanátt og úrkomulítið, en rigningu austantil framan af degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×