Kubica fljótastur á lokaæfingunni Robert Kubica á Renault var fljótastur alllra Formúlulu 1 ökumanna á lokaæfingu keppnisliða á æfingu í Suður Kóreu í nótt. Hann varð á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Fernando Alonso á Ferrari kom þar á eftir. Formúla 1 23. október 2010 03:34
Webber hrifinn á nýju brautinni Mark Webber á Red Bull náði besta tíma allra á tveimur æfingum á nýju brautinni í Suður Kóreu í nótt. Hann telur brautina vel heppnaða, en um tíma var spáð í hvort hætta þurfti við keppnina, þar sem tafir urðu á frágangi hennar. Formúla 1 22. október 2010 11:22
Webber rétt á undan Alonso og Hamilton Forystumaður stigamótsins, Mark Webber á Red Bull reyndist fljótastur allra á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Suður Kóreu í nótt. Hann vaerð 0.190 sekúndu á undan Fernando Alonso á Ferrari, en Lewis Hamilton á McLaren var þriðji fljótastur. Formúla 1 22. október 2010 07:10
Hamilton sneggstur á fyrstu æfingu Bretinn Lewis Hamilton á McLaren var 81/1000 fljótari en Robert Kubica á allra fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á nýju brautinni í Suður Kóreu í nótt. Hann varð á undan Robert Kubica á Renault, en Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji. Formúla 1 22. október 2010 02:48
Webber meistari ef hann vinnur tvö mót af þremur Mark Webber hjá Red Bull er efstur í stigamóti ökumanna í Formúlu 1, en honum finnst lítið vit í því að spá í möguleika sína á að landa meistaratitlinum, þegar þremur mótum er ólokið. Hann var á fréttamannafundi í dag og fékk spurningar frá ýmsum fréttamönnum. Formúla 1 21. október 2010 15:55
Schumacher bjartsýnn á gott gengi Michael Schumacher er á nýja mótssvæðinu í Suður Kóreu, en hann sýndi gamla takta í síðustu keppni á Suzuka brautinni í Japan og varð í sjötta sæti, næstur á eftir köppunum fimm í titilslagnum. Schumacher ekur með Mercedes, en hefur átt erfitt með að ná almennilegum tökum á bílnum, en gekk vel síðast. Formúla 1 21. október 2010 13:50
Kubica spáir Webber eða Alonso titlinum Þó fimm ökumenn eigi möguleika á meistaratitli ökumanna þegar þremur mótum er ólokið, þá spáir Robert Kubica hjá Renault því að Mark Webber eða Fernando hampi titlinu þegar yfir lýkur. Þeir keppa í Suður Kóreu um helgina. Formúla 1 21. október 2010 12:35
Fimm manna titilslagur á nýrri braut í Suður Kóreu Fimm Formúlu 1 ökumenn verða í titilslag í Suður Kóreu um helgina. Mark Webber er efstur að stigum með 220 stig, Fernando Alonso og Sebatian Vettel eru með 206, Lewis Hamilton 192 og Jenson Button 189. Formúla 1 21. október 2010 11:01
Formúla 1 á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin Undirritaður hefur verið nýr samningur milli 365 miðla og eiganda Formúlu 1 keppninnar um áframhaldandi sjónvarpsrétt til næstu þriggja ára samkvæmt fréttatilkynningu frá 365 miðlum. Formúla 1 20. október 2010 15:27
Malbikið á nýrri braut ekki vandamál segir hönnuðurinn Tilke Sumir Formúlu 1 ökumenn hafa áhyggjur af því að malbikið á nýju brautinni í Suður Kóreu sem verður notuð um helgina geti orðið til vandræða, þar sem hún var malbikuð fyrir skömmu. En hönnuður brautarinnar, Hermann Tilke telur að allt muni ganga upp og sleipt nýtt malbikið muni auka tilþrifin um helgina. Tilke sagði í samtali við autosport.com að í hans augum yrði það ekki vandamál. Formúla 1 20. október 2010 14:58
Button: Brautin í Suður Kóreu áhugaverð Jenson Button á enn möguleika í meistaraslagnum eins og fjórir aðrir ökumenn, en hann er núverandi meistari. Hann keppir eins og aðrir á nýrri braut í Suður Kóreu um næstu helgi. Formúla 1 19. október 2010 16:07
Massa vill hafa áhrif í titilslagnum Felipe Massa hjá Ferrari ætlar að gera sitt besta í Suður Kóreu um næstu helgi til aðstoðar Ferrari í titilslagnum, en Fernando Alonso hjá Ferrari er í öðru sæti í stigamóti ökumanna ásamt Sebastian Vettel sem ekur með Red Bull. Báðir eru 14 stigum á eftir Mark Webber hjá Red Bull í stigakeppninni. Red Bull er í forystu í stigamóti bílasmiða, á undan Mercedes og Ferrari. Formúla 1 19. október 2010 15:37
Schumacher fylgjandi nýjum mótssvæðum Michael Schumacher og Nico Rosberg mæta á nýtt Formúlu 1 mótssvæði í Suður Kóreu í vikunni fyrir hönd Mercedes og keppa á nýrri braut sem þeir hafa ekki séð áður, fremur en aðrir ökumenn. Allir munu því standa jafnfætis á fyrstu æfingum á föstudaginn. Formúla 1 18. október 2010 15:29
Hamilton: Á enn möguleika á titlinum Bretinn Lewis Hamilton telur að hann eigi enn möguleika á meistaratitlinum í Formúlu 1, þó hann sé í fjórða sæti í stigamótinu þegar þremur mótum er ólokið. Keppt verður í Suður Kóreu um næstu helgi, en Brasilíu og Abu Dhabi í nóvember. Formúla 1 18. október 2010 13:45
Petrov spenntur fyrir mótinu í Rússlandi Rússinn Vitaly Petrov hjá Renault keppir í Suður Kóreu um næstu helgi, þar sem keppt verður í fyrsta skipti í Formúlu 1. Hann er líka spenntur fyrir mótinu í Rússlandi sem á að fara fram árið 2014, en tilkynnt var um mótið fyrir helgina. Formúla 1 18. október 2010 13:17
Mikilvægt að keppa í nýjum löndum Ross Brawn, eigandi meistaraliðsins í Formúlu 1 í fyrra segir það áhugavert verkefni að takast á við nýja Formúlu 1 braut í Suður Kóreu um aðra helgi. Í gær var tilkynnt um mótshald í Rússlandi frá 2014 og Brawn telur mikilvægt að farið sé til nýrra landa með íþróttina, en keppt verður í Indlandi í fyrsta skipti á næsta ári. Formúla 1 15. október 2010 14:40
Engin uppgjöf hjá McLaren í titilslagnum Martin Whitmarsh, forstjóri McLaren segir að það væri ekki gáfulegt hjá keppinautum sínum um Formúlu 1 titlanna að afskrifa lið sitt. Lewis Hamilton og Jenson Button eru í þriðja og fimmta sæti í stigamótinu, en keppinautar þeirra komust allir á verðlaunapall í síðustu keppni. Formúla 1 15. október 2010 13:33
Ferrari styður við bakið á Massa Brasilíumanninum Felipe Massa hefur ekki gengið sérlega vel í Formúlu 1 á þessu ári og féll úr leik í síðustu keppni skömmu eftir ræsingu. Hann lenti í árekstri eftir að hafa ræst óvenju aftarlega af stað í mótinu. Formúla 1 15. október 2010 12:52
Rússar borga 4.4 miljarða á ári fyrir Formúlu 1 mótshald Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands er ánægður með langtímasamning um Formúlu 1 mótshald í Rússlandi, en Bernie Ecclestone gekk í dag frá samningum þess efnis. Mót verða við ferðamannabæinn Socchi frá árinu 2014-2020. Formúla 1 14. október 2010 17:29
Nýliði Sauber byrjaði að keppa sex ára Mexíkaninn Sergio Perez heimsótti Sauber liðið sem hann keppir með á næsta ári og skoðaði aðstæður, en hann verður liðsfélagi Kamui Kobayashi sem vakti mikla lukku í japanska kappakstrinum um síðustu helgi. Formúla 1 14. október 2010 13:50
Formúla 1 í Rússlandi frá 2014-2020 Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin segir að búið sé að semja við Bernie Ecclestone um Formúlu 1 mótshald í Rússlandi frá 2014-2020. Mótið verður við ferðamannabæinn Sochi við Svarta hafið. Formúla 1 14. október 2010 12:53
Button ætlar að taka áhættu Möguleikar Jenson Button á að verja meistaratitil ökumanna í ár fara þverrandi, eftir að hann komst ekki á verðalaunapall í síðustu keppni. Aðeins þrjú mót eru eftir og hann er í fimmta sæti í stigamótinu, en á enn möguleika á titlinum. Formúla 1 13. október 2010 16:32
Alonso mun sækja til sigurs í Kóreu Fimm ökumenn eiga enn möguleika á meistaratitili ökumanna og aðeins þremur mótum er ólokið. Næsta keppni fer fram á nýrri braut í Suður Kóreu, sem engin hefur keppt á og Fernando Alonso hjá Ferrari telur að lið sitt verði að sækja til sigurs. Mótð fer fram 24. október. Formúla 1 13. október 2010 14:10
Schumacher orðinn snarari í snúningum Gengi Michael Schumacher hefur ekki verið eins gott og áhangendur hans vonuðu í Formúlu 1 mótum ársins. Mercedes bíllinn hefur ekki reynst hraðskreiður og hann segist sjálfur hafa þurft tíma til að finna rétta taktinn. Formúla 1 13. október 2010 13:43
Baráttugleði Kobayashi heillaði í Japan Japaninn Kamui Kobayashi hjá Sauber Formúlu 1 liðinu sló í gegn á heimavelli í japanska kappakstrinum á sunnudaginn. Hann sýndi dirfskufull tilþrif í mótinu og fór framúr mörgum keppinautum á leið í sjöunda sætið. Sauber menn vona að framganga hans verði til að japanskir aðilar vilji styðja við Kobayashi í framtíðinni. Formúla 1 12. október 2010 10:43
FIA samþykkti brautina í Suður Kóreu Alþjóðabílasambandið, FIA samþykkti í dag að Formúlu 1 mót fari fram um aðra helgi á nýtti braut í Suður Kóreu, en nokkur virtist á reiki hvort af því yrði. Tafir við frágang brautarinnar urðu til þess að umræða um að slá mótið af kom upp síðustu vikurnar. Formúla 1 12. október 2010 09:08
Árangur í tímatökum lykill að titlinum Stefano Domenicali, yfirmaður Formúlu 1 liðs Ferrari telur það að ná góðum árangri í tímatökum í Formúlu 1 í þeim þremur mótum sem eftir eru verði lykillinn að því að landa meistaratitlinum. Fimm ökumenn eiga möguleika á titli ökumanna. Formúla 1 11. október 2010 15:30
Titilmöguleikar McLaren fara minnkandi Möguleikar McLaren ökumanna í Formúlu 1 á því að vinna meistaratitilinn í minnkuðu talsvert þegar keppinautar þeirra röðuðu sér í þrjú efstu sætin í kappakstrinum í Japan á sunnudag. Formúla 1 11. október 2010 14:51
Webber og Vettel fá sama stuðning Christian Horner, yfirmaður Red Bull telur að það sé liðinu til framdráttar að vera með tvo ökumenn í titilslagnum, en Mark Webber og Sebastian Vettel eiga báðir möguleika á titlinum. Vettel vann japanska kappaksturinn á sunnudaginn, en Webber varð annar í mótinu. Formúla 1 11. október 2010 14:17
Webber jók forskotið í stigamótinu Mark Webber er kominn með 14 stiga forskot í stigamóti Formúlu 1 ökumanna eftir að hafa náð öðru sæti í mótinu í Singapúr í dag. Formúla 1 10. október 2010 12:50