Þorbjörn kominn heim eftir átta mánaða fjarveru Björgunarsveitin Þorbjörn hefur snúið aftur til húsakynna sína í Grindavík eftir átta mánaða fjarveru þar sem aðsetur sveitarinnar var fært til Njarðvíkur vegna jarðhræringanna. Innlent 16. júlí 2024 07:41
Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að styrkja búseturétthafa í Grindavík um 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra. Búseturétthöfum í um þrjátíu íbúðum í bænum stendur nú til boða að losna undan samningi án uppsagnarfrestar. Innlent 15. júlí 2024 16:28
HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi. Lánsfjárhæðin nemur að jafnvirði um 290 milljónum dollara eða um fjörutíu milljörðum íslenskra króna og er veitt af íslenskum og alþjóðlegum bönkum og sjóðum. Viðskipti innlent 9. júlí 2024 15:20
Líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum Landris undir Svartsengi hefur verið stöðugt síðustu daga og kvikuflæði heldur þar áfram. Líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á svæðinu á næstu vikum eða mánuðum. Innlent 9. júlí 2024 11:46
Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Ekki er að sjá að dregið hafi úr kvikuinnstreymi í Svartsengi frá því að eldgosi lauk í síðasta mánuði. Þá hefur skjálftavirkni á Svartsengi verið mjög lítil og fáir smáskjálftar mælst á hverjum degi. Innlent 5. júlí 2024 17:23
Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Grindvíkingarnir Ómar Davíð Ólafsson og Þormar Ómarsson sem reka báðir fyrirtæki í Grindavík segja bæinn miklu heillegri en almenningur haldi. Þeir hvetja yfirvöld til að fjarlægja lokunarpósta og hleypa fólki inn í bæinn. Innlent 3. júlí 2024 15:53
Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos Kvikuflæði heldur áfram undir Svartsengi en hraði landriss mælist nú meiri en fyrir síðasta eldgos á Reykjanesinu sem hófst þann 29. maí og lauk 22. júní. Í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum eða mánuðum. Innlent 2. júlí 2024 16:16
Býst ekki við nýju eldgosi Eldfjallafræðingur telur meiri líkur en minni á að það hefjist ekki nýtt gos í Sundhnúksgígaröðinni á næstunni. Hægt hafi á flæði inn í dýpri kvikugeymsluna undir Svartsengi upp á síðkastið. Innlent 29. júní 2024 11:55
Þórkatla tekið við 400 eignum Fasteignafélaginu Þórkötlu hefur borist umsóknir 900 Grindvíkigna um sölu á eignum til félagsins. Gengið hefur verið frá nærri 740 þinglýstum kaupsamningum, um 82 prósent þeirra sem sótt hefur verið um. Þegar hefur verið tekið við 400 eignum. Innlent 28. júní 2024 14:03
Nýtt eldgos líklegt Gera má ráð fyrir nýju kvikuinnskoti og/eða eldgosi á næstu vikum á Sundhnjúkasvæðinu. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofunnar. Innlent 28. júní 2024 12:13
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27. júní 2024 13:37
Eldgosinu lauk á laugardaginn Eldgosinu við Sundhnúk lauk á laugardaginn. Landris við Svartsengi er þegar hafið á ný og að mati náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni er atburðarásin svipuð þeirri sem áður hefur sést milli gosa. Innlent 24. júní 2024 15:43
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. Innlent 23. júní 2024 12:18
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 22. júní 2024 18:15
Eldgosinu líklegast lokið Eldgosinu sem hófst 29. maí virðist vera lokið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands. Innlent 22. júní 2024 15:18
Vonast til að geta stöðvað flæði yfir varnargarð fyrir lok dags Enn er glóð í gíg eldgossins við Sundhnúk. Hraunflæðið er nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarðana við orkuverið í Svartsengi en síðustu daga hefur runnið nokkuð stöðugt yfir varnargarðinn á nokkrum stöðum. Innlent 22. júní 2024 12:08
Enn glóð í gígnum og unnið að hraunkælingu Enn er glóð í gígnum í eldgosinu við Sundhnúk. Órói hefur minnkað en hraunflæðið virðist nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarða. Innlent 22. júní 2024 08:02
„Landrisið er hægara en það hefur verið“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ólíklegt að gosið við Sundhnjúka nái sér upp aftur. Hann segir landris sem mælst hefur vera hægara en það hefur áður verið. Innlent 21. júní 2024 21:37
Unnið dag og nótt við varnargarðana Hraunkæling við varnargarðana við Svartsengi hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi með góðum árangri. Slökkviliðið og aðrir á svæðinu fagna því að eldgosið virðist vera að syngja sitt síðasta í bili. Innlent 21. júní 2024 20:39
Ný heitavatnshola gjörbreytir stöðunni á Suðurnesjunum Ný tilraunaborhola á Miðnesheiði við Rockville á Suðurnesjunum, sem gefur um 30 sekúndulítra af yfir 70 gráðu heitu vatni, gjörbreytir stöðunni í heitavatnsmálum á Suðurnesjum til betri vegar. Innlent 21. júní 2024 15:50
Minnkandi virkni í gígnum bendi til gosloka á næstunni Á myndum sem teknar voru í morgun í drónaflugi Almannavarna sést að virkni í gígnum við Sýlingarfell fer minnkandi. Innlent 21. júní 2024 15:34
„Það er heilmikil kæling af þessu“ Hraunkæling við varnargarðana við Grindavík hefur staðið yfir síðan í nótt. Kælingin virðist hafa borið árangur að mati slökkvistjóra. Á sama tíma hefur vinna við hækkun varnargarðanna staðið yfir. Verkfræðingur hjá Verkís fagnar því minnkandi hraunrennsli. Innlent 21. júní 2024 15:14
Hraunið fer hægt yfir en hraunkælingu haldið áfram í dag „Hraunkælingin hélt áfram í nótt og vinnuvélarnar héldu áfram í nótt. Og það er bara verið að leita allra leiða til að koma í veg fyrir og hægja á rennslinu.“ Innlent 21. júní 2024 08:14
Samhæfingarstöðin virkjuð, hraunkæling hafin og fundað klukkan 8 Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð í gærkvöldi og gripið til hraunkælingar á ný vegna hraunspýja sem voru farnar að vella yfir varnargarða við Svartsengi. Innlent 21. júní 2024 06:14
Enn stöðugt streymi í Svartsengi Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí hefur nú staðið í rétt rúmar þrjár vikur og áfram gýs úr einum gíg rétt austan Sundhnúks. Landris helst stöðugt í Svartsengi og því ljóst að meiri kvika flæðir inn í kvikuhólfið en gýs upp úr því. Innlent 20. júní 2024 13:41
„Ég sakna vina minna úr Grindavík“ „Hvenær getum við komist heim til Grindavíkur?“ er haft eftir ónefndu gríndvísku barni í nýrri skýrslu umboðsmanns barna. „Ég sakna vina minna úr Grindavík,“ segir annað barn. Innlent 20. júní 2024 10:35
„Sorglegt að þurfa að rífa þetta hús“ Grindvíkingar syrgja nýlegt íþróttahús bæjarins sem þarf að rífa en segja það einnig nauðsynlegt til að tryggja öryggi. Innlent 19. júní 2024 21:36
Stýra hvorki né stoppa hraunflæði með vatni Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn. Innlent 19. júní 2024 21:01
Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins. Innlent 19. júní 2024 09:15
Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn. Innlent 19. júní 2024 07:43