

Bílar
Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.

Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag
Á morgun, laugardaginn 26. október, er stór dagur hjá jeppaáhugafólki og öðrum unnendum góðra bíla því þá verður nýr Land Cruiser 250 frumsýndur kl. 12 – 16 hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri.

Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur
Polestar 4, nýjasti rafbíll Polestar er svakalega sportlegur Coupé jepplingur sem sameinar allt það besta úr bræðrum sínum, hlaðbaknum Polestar 2 og jeppanum Polestar 3.

Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði
Það allra skemmtilegasta sem fimmtugur málarameistari í Hveragerði gerir er að setja saman módelbíla en hann á um eitt hundrað slíka bíla. Bronco, Land Rover og Scania vörubílar eru í mestu uppáhaldi hjá bílaáhugamanninum.

Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug
Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu.

Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is
Fyrstu snjókornin eru fallin þennan veturinn og því kominn tími á að panta dekkjaskipti og losna um leið við biðröðina þegar vetur konungur mætir af fullum þunga. Það er einfalt að bóka tíma á nesdekk.is og velja um leið réttu dekkin í leiðinni.

Hvað verður um verðbólguna í janúar?
Nokkuð miklar líkur eru á því að verðbólga muni lækka mjög hratt í upphafi næsta árs og það hraðar en bjartsýnustu verðbólguspár gera ráð fyrir. Sú þróun mun skapa umhverfi til skarpara og hraðara vaxtalækkunarferlis en flestir telja líklegt.

Sköpum gönguvæna borg
Í dag urðu þau tímamót að borgarstjórn lagði til og samþykkti sameiginlega tillögu um að hefja vinnu við gerð stefnu og áætlunar um gönguvæna borg. Í þeirri vinnu ætlum við að nota þá fyrirmynd sem hjólreiðaáætlun hefur verið undanfarin ár sem hefur umbylt tækifærum til notkunar hjólreiða sem fararmáta í borginni.

Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“
Bjarni Frímann heldur einleikstónleika á píanó á bílaverkstæði um helgina. Hann segir að vinna þurfi klassískri tónlist nýjar veiðilendur þar sem hægfara sjálfseyðing blasi við. Bransinn neiti að horfast í augu við að meðalaldur hlustenda hækki og að nýliðun sé lítil sem engin.

Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja
Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg.

Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fengið vilyrði fyrir því að leggja allt að 45 prósent refsitoll á kínverska rafbíla þrátt fyrir andstöðu stærsta bílaframleiðanda álfunnar. Tollarnir eru svar við ríkisaðstoð við kínverska rafbílaframleiðslu sem ESB er ósátt við.

Októberfest í Bílheimum á laugardaginn
Næstkomandi laugardag verður blásið til Októberfest í Bílheimum sem staðsettir eru í Stekkjarbakka 6 - gamla Garðheima húsinu.

Minnkandi losun en umfram úthlutanir Íslands
Losun gróðurhúsalofttegunda var líklega umfram úthlutanir Íslands í fyrra þrátt fyrir að hún drægist saman um þrjú prósent á milli ára. Stjórnvöld hafa þó nægjanlegan sveigjanleika til þess að standast alþjóðlegar skuldbindingar sínar.

Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn
Gestur Breiðfjörð Gestsson viðskiptamaður var sýknaður af öllum kröfum bílaumboðsins BL ehf. fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. BL krafðist þess að Gestur yrði dæmdur til að greiða 2.633.469 króna skuld eftir að pallaolíudósir fóru á flug inn í bílaleigubíl BL, sem hann var með til afnota, en við það opnuðust dósirnar og helltist pallaolían niður sem olli umtalsverðu tjóni í bílnum.

„Herra kerran er til sölu“
Rapparinn Árni Páll, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, hefur sett glæsibíl sinn á sölu. Bíllinn er af tegundinni Land Rover og er frá árinu 2019.

Stefnt á að koma upp 98 hleðslustöðvum í Kópavogi
Orka náttúrunnar, ON, mun á næstu vikum setja upp tugi hleðslustöðva í Kópavogi í samstarfi við bæinn. Hleðslustöðvar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni. Þær eru fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða sett upp í haust.

Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík
Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, segir áríðandi að farið verði strax í framkvæmdir nýs samgöngusáttmála. Ekki hafi verið farið í neinar stórar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu síðan 2011. Það sé farið að hafa áhrif. Ásgeir fór yfir stöðuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur
Kyrrahafið teygir sig glitrandi út yfir ystu sjónarrönd og Kaliforníusólin vermir, kærkomin eftir íslenska sumarið sem aldrei kom. Við erum stödd í útjaðri Los Angeles og ætlum að reynsluaka Volvo EX90 100% rafbíl sem beðið hefur verið eftir.

Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, segir að bílaumboðið hafi ávallt og muni áfram leggja sig mikið fram við að leiðbeina og aðstoða viðskiptavini eins hægt er. Hann segir fyrirtækið hafa lagt sig fram við að ná lausn í máli ósátts viðskiptavinar þó að bíll viðkomandi hafi ekki lengur verið í ábyrgð. Niðurstaðan hafi líka verið sú að hann hafi ekki greitt neitt vegna málsins.

Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota
Stjórnir systurfélaga Toyota umboðsins á Íslandi leggja til að greiddur verði út milljarður króna í arð vegna rekstrarársins 2023.

Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda
Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur gjaldtöku á bílastæðum á ferðamannastöðum komna út í öfgar, ekki síst hvað varðar himinhá vangreiðslugjöld. Lóðarhafar, landeigendur og bílastæðafyrirtæki stundi rányrkju með því að fénýta sér aðkomu að náttúrperlum.

Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól
Flokka má útblástur einkabíla í beinan og óbeinan útblástur. Enginn beinn útblástur hlýst af rafmagnsbílum þar sem þeir nota ekkert jarðefnaeldsneyti. Óbeinn útblástur einkabílsins kemur að mestu vegna framleiðslu bílsins.

Þeir borga sem nota!
Fá orð fá jafnoft að hljóma í jarmi sjálfstæðismanna um hinn digra tekjustofn sem ökutækjaeigendur geta verið.

Timberlake gengst við ölvunarakstri
Bandaríski tónlistarmaðurinn Justin Timberlake viðurkenndi að hafa ekið bíl sínum þrátt fyrir að hann væri ekki í ástandi til þess fyrir dómi í New York í dag. Hann hvatti fólk til að þess að aka ekki ölvað.

Ekki króna í þrotabúi Base parking
Ekki króna fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabú Siglt í strand ehf., sem hét áður Base parking ehf.. Lýstar kröfur námu tæpum 59 milljónum króna.

Eigandi BL tekur við forstjórastólnum á nýjan leik
„Brynjar Elefsen Óskarsson hefur látið af störfum sem forstjóri og eru honum þökkuð góð störf fyrir félagið.“

Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín
James Becker, aka Tork gaur, skellti sér í sólina í Malaga fyrr í sumar og prufukeyrði nýjan 911 Carrera GTS T-Hybrid, 911 Carrera og 911 Targa á Ascari kappakstursbrautinni.

Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030
Bílaframleiðandinn Volvo hefur nú dregið í land með þær áætlanir sínar að bjóða einungis upp á alrafdrifna bíla árið 2030.

Gjaldtöku á bílastæðum háskólans frestað
Gjaldtöku fyrir bílastæði við Háskóla Íslands hefur verið frestað fram yfir áramót. Ætlað var að almenn gjaldtaka yrði innleidd á háskólasvæðinu með fyrsta september en fram kemur í tilkynningu frá háskólanum að vinna við innleiðinguna hafi tekið lengri tíma en ætlað var og því hafi verið tekin sú ákvörðun að fresta henni.

Meinleg fljótfærni að umdeild færsla FÍB fór í loftið
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir að fljótfærni hafi verið um að kenna að umdeild færsla um flutningsgetu einkabíla og almenningsvagna birtist á vef þess í gær. Efni hennar hafi verið þvert á það sem félagið vilji standa fyrir.

Útreikningur FÍB standist enga skoðun
Færsla á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda þar sem flutningsgeta strætisvagns er borin saman við flutningsgetu einkabíla hefur vakið mikil viðbrögð. Reiknifræðingur segir útreikningana ekki standast skoðun sama hvernig á þá er litið.