Neytendur

Kostar allt að 580 þúsund

Bjarki Sigurðsson skrifar
iPhone Duo, fyrsti samanbrjótanlegi sími Apple.
iPhone Duo, fyrsti samanbrjótanlegi sími Apple. AP/Jeff Chiu

Nýr iPhone tæknirisans Apple kemur í almenna sölu hér á landi á föstudag. Ódýrasta útgáfa símans kostar 360 þúsund krónur og sú dýrasta 580 þúsund. Síminn seldist upp í forsölu.

Nýr iPhone Duo, fyrsti samanbrjótanlegi sími Apple, var opinberaður í byrjun september. Hann er með 7,6 tommu Super Retina XDR OLED samanbrjótanlegan innri skjá og 5,4 tommu innri skjá. 

Síminn fór í forsölu skömmu eftir kynninguna en þar seldist hann upp. Á vefsíðum helstu símaverslana kemur fram að áætlað sé að almenn sala á honum hefjist föstudaginn 23. október næstkomandi. 

Ódýrasta útgáfan kostar 360 þúsund krónur og er með 256 gígabæta geymslurými. 512 gígabæta kostar 390 þúsund, eins terabæta kostar 470 þúsund og stærsti síminn sem er með tveggja terabæta geymslurými kostar 580 þúsund krónur. 


Tengdar fréttir

Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir

Forsvarsmenn Apple hafa opinberað fyrsta samanbrjótanlega síma fyrirtækisins. Hann heitir iPhone Duo og verður stærsti iPhone fyrirtækisins hingað til. Auk þess var nýr forstjóri sýndur til leiks á nýrri kynningu tæknirisans. Þar voru verðhækkanir einnig boðaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×