Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar 20. október 2026 08:02 Hagsæld í litlu og opnu hagkerfi eins og því íslenska byggist að verulegu leyti á öflugum útflutningi. Samgöngur og samkeppnishæfni eru þar lykilbreytur. Orðspor landsins og afurða þess ræður einnig miklu um árangurinn. Íslenskur sjávarútvegur flytur afurðir á erlenda markaði en ferðaþjónustan selur að stærstum hluta þjónustu til erlendra gesta. Hvort tveggja kemur að sjálfsögðu landinu til góða. Þessar mikilvægu útflutningsgreinar eru ólíkar, en tengsl þeirra eru meiri en ætla mætti við fyrstu sýn og þær geta verið lyftistöng hvor fyrir aðra. Ferðamenn kátir með fiskinn Á ferðalögum verður matur oft meira en nauðsyn – hann verður hluti af upplifuninni. Þar geta falist mikil verðmæti fyrir innlenda matvælaframleiðslu. Hér á landi felast tækifærin ekki aðeins í því að selja ferðamönnum íslenskan mat meðan á dvöl þeirra stendur. Góð upplifun getur einnig aukið líkurnar á því að þeir leiti að íslenskum afurðum þegar heim er komið. Ferðaþjónustan getur þannig opnað íslenskri matvælaframleiðslu leið inn á erlenda markaði. Fæstir ferðamenn koma þó gagngert til Íslands vegna matarins. Samkvæmt könnun sem Maskína framkvæmdi meðal erlendra ferðamanna á Íslandi árið 2023 nefndu aðeins 15% ferðamanna mat sem þátt í ákvörðun um Íslandsferð. Til samanburðar vegur matarmenning almennt um 50% við val á áfangastað. Athyglisvert er þó að þrír af hverjum fjórum ferðamönnum komu frá löndum sem eru lykil- eða mikilvægir markaðir fyrir íslenskar sjávarafurðir. Þegar hingað er komið reynist þó íslenski maturinn standa vel fyrir sínu. Um helmingur ferðamanna gaf honum einkunnina 8-10. Þegar kom að íslenskum sjávarafurðum var hlutfall þeirra sem gáfu einkunnina 8-10 hins vegar mun hærra, eða tæp 80%. Í neytendakönnun sem Netquest vann fyrir Íslandsstofu í Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og á Spáni kom fram áhugaverð niðurstaða. Þegar spurt var hvaða lönd kæmu í hugann þegar talað væri um gæði sjávarfangs nefndu aðeins um 6% þeirra sem aldrei höfðu komið hingað Ísland. Hlutfallið var 18% meðal þeirra sem höfðu komið til Íslands. Íslandsferð virðist því skilja eftir sig mun sterkari tengingu milli Íslands og gæða sjávarfangs. Það kemur raunar ekki á óvart í ljósi þess hve háa einkunn ferðamenn gáfu íslenskum sjávarafurðum. Af þessu sést að sjávarútvegur og ferðaþjónusta geta stutt hvort annað. Gæði íslenskra sjávarafurða geta styrkt upplifun ferðamanna og ímynd Íslands. Það styrkir ferðaþjónustuna. Á sama tíma verður Íslandsferðin tækifæri til að kynna íslenskar sjávarafurðir fyrir neytendum á mikilvægum mörkuðum. Það styrkir sjávarútveginn. Öflugar samgöngur, aukinn útflutningur Tengslin eru þó enn áþreifanlegri.Fiskur og ferðamenn eru nefnilega oft í sömu flugvél. Með vexti ferðaþjónustunnar hefur leiðakerfi til og frá Íslandi orðið stærra og fjölbreyttara. Fleiri farþegar skapa grundvöll fyrir tíðari ferðum og fleiri áfangastöðum, sem getur opnað íslenskum útflytjendum aðgang að mörkuðum sem áður voru erfiðir eða óaðgengilegir. Þetta hefur komið sér vel fyrir útflutning á ferskum afurðum og tíðar flugsamgöngur hafa eflaust átt sinn þátt í að vægi þeirra hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Ferskar afurðir þurfa að komast hratt og örugglega á markað og þá getur reglulegt beint flug skipt sköpum. Ferskar afurðir sem fluttar eru með flugi eru að jafnaði mun verðmætari en þær sem fara sjóleiðina. Samgöngumátinn verður þannig hluti af verðmætasköpun úr sjávarauðlindinni. Öflug ferðaþjónusta skapar því ekki aðeins tekjur með eigin starfsemi heldur getur hún jafnframt stutt við aukna verðmætasköpun í sjávarútvegi. Sambandið gengur síðan í báðar áttir. Farþegar hjálpa til við að halda uppi leiðakerfinu en fraktin skapar flugfélögum tekjur á sömu leiðum og getur skipt máli fyrir hagkvæmni þeirra. Ferðamaðurinn og fiskurinn eru því ekki bara samferða fyrir tilviljun. Getur meira orðið minna? Þetta gangverk sýnir hvers vegna mikilvægt er að horfa á heildarmyndina þegar ákvarðanir eru teknar um skattlagningu og gjaldtöku. Sjávarútvegur og ferðaþjónusta eru grunnatvinnuvegir og áhrif þeirra ná langt út fyrir greinarnar sjálfar – ekki síst á landsbyggðinni. Íslenskur sjávarútvegur býr nú þegar við eina hæstu opinberu gjaldtöku í alþjóðlegum samanburði og í fyrra var enn hert verulega á henni með stórhækkun á veiðigjaldi. Nú ætla stjórnvöld að hækka skatta á ferðaþjónustu umtalsvert. Markmið stjórnvalda hlýtur að vera það að styrkja stoðirnar sem verðmætasköpunin grundvallast á frekar en veikja. Ef færri ferðamenn sækja Ísland heim getur það auðvitað leitt til þess að mikilvægar gjaldeyristekjur frá ferðaþjónustu dragist saman. Ofan á það kann síðan að bætast að flugferðum fækki og ferðalag ferskra fiskafurða á hátt borgandi markaði verði þar með torsóttara. Niðurstaðan verður þá enn frekari samdráttur gjaldeyristekna. Það getur varla talist gott veganesti ef stjórnvöld vilja byggja undir hagvöxt og tryggja áframhaldandi góð lífskjör. Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiðrún Lind Marteinsdóttir Sjávarútvegur Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun