Skoðun

Af þreyttasta frum­varpi ís­lenskrar þingsögu

Árni Guðmundsson skrifar

Á Alþingi liggur nú enn á ný fyrir eitt þreyttasta frumvarp íslenskrar þingsögu, lagt fram í fjórtánda eða fimmtánda sinn (áfengi í búðir í einni eða annarri mynd). Enn á að freista þess að koma áfengi í allar hugsanlegar og óhugsanlegar verslanir, nú í formi „vef“ verslana. Að þessu sinni er það fóstrað af Pawel Bartoszek, þingmanni Viðreisnar, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum. Frumvarpið felur í sér grundvallarbreytingu á íslenskri áfengisstefnu og heimilar einkaaðilum að selja áfengi beint til neytenda.

Óskalisti áfengisbransans

Frumvarpið er algerlega í anda sérhagsmunaaðila. Innihald þess er í fullu samræmi við ýtrustu viðskiptahagsmuni þeirra og óskir. Þeir leggja dag við nótt í baráttu fyrir auknum möguleikum til frekari áfengissölu. Í engu virðist til sparað í þeirri baráttu, eins og áfengissalar og Samtök verslunar og þjónustu sýndu okkur með 80–90 milljóna króna auglýsingaherferð fyrir nokkru. Þá hefur birst fjöldi greina frá hagsmunaaðilum á opinberum vettvangi þar sem málflutningurinn einkennist í flestum tilfellum af djúpstæðri vanþekkingu á lýðheilsu- og forvarnarmálum, en þeim mun meiri mæli með áherslu á viðskiptalega hagsmuni viðkomandi. Allt eru þetta aðferðir sem eru kunnar og lesa má frekar um hér

Vegið að grunnstoðum

Með frumvarpinu er gengið gegn einni af grunnstoðum íslenska forvarnarmódelsins , sölufyrirkomulagi áfengis og aðgengi. Skýr dómur í máli Smáríkisins undirstrikar að einkaaðilar hafa ekki heimild til slíkrar smásölu samkvæmt gildandi lögum. Frumvarpið er því ekki einhver einföld tæknileg útfærsla á starfsemi sem þegar er leyfileg, eins og látið hefur verið að liggja, heldur alger grundvallarbreyting á ríkjandi áfengisstefnu. Samkvæmt frumvarpinu geta einkaaðilar fengið leyfi til að selja áfengi í (vef)verslun beint til neytenda. Þar með er opnað fyrir samkeppni hagnaðardrifinna fyrirtækja á markaði sem hingað til hefur byggt á opinberu einkaleyfi. Áfengissalar eru ekki velferðarsamtök og það liggur í eðli viðskiptanna að vilja selja sem mest og hagnast eins mikið og kostur er.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur sérstaklega bent á ÁTVR og önnur norræn sölukerfi sem mikilvægan hluta heildstæðrar lýðheilsustefnu. Stofnunin hefur lagt áherslu á að slík kerfi stuðli að minni áfengisneyslu og minni áfengisvanda og bent á að rannsóknir sýni að einkavæðing áfengissölu hafi tilhneigingu til að auka neyslu. Embætti landlæknis tók í mars 2026 afdráttarlausa afstöðu til nær samhljóða frumvarps. Embættið taldi í umsögn sinni að fyrirkomulag áfengissölu myndi gjörbreytast og að aukin samkeppni og verðlækkanir myndu leiða til meiri áfengisnotkunar og aukins vanda. Sérstaklega var varað við því að breytingin myndi „auka drykkju ungmenna“.

Sambærileg sjónarmið hafa ítrekað komið fram í umsögnum heilbrigðisstétta, lýðheilsufræðinga, forvarnarsérfræðinga og samtaka sem láta sig velferð barna og ungmenna varða.

Íslenska forvarnarmódelið varð ekki til af sjálfu sér

Íslensk áfengisstefna hefur mótast á löngum tíma og í breiðri samfélagslegri sátt. Hún er ein af mikilvægum stoðum þess sem við köllum íslenska forvarnarmódelið. Aðgengi að áfengi, sölufyrirkomulag, reglur um markaðssetningu og auglýsingar og aldursmörk hafa verið mikilvægur hluti af því umhverfi sem árangur Íslendinga í forvörnum hefur byggst á. Ísland náði einum besta árangri Evrópu í að draga úr áfengisneyslu barna og ungmenna.

Fyrirkomulag áfengissölu, íslensk áfengispólitík, á ekki að lúta eða byggja á einhverjum óskalista sérhagsmunaaðila, áfengissalanna eins og frumvarpið gengur út á. Ríkjandi fyrirkomulag var unnið í breiðri samstöðu, það gengur bil beggja og er í verki ein af mikilvægustu stoðum þess sem við köllum íslenska forvarnarmódelið, sjá umfjöllun hér. Velferð barna og ungmenna er í öndvegi. Um þessa leið hefur hjá almenningi ríkt góð samstaða til margra ára.

Sem betur fer eru flest sem gera sér grein fyrir þessu samhengi og mikilvægi þess fyrirkomulags sem við erum með. Því sá árangur varð ekki til af sjálfu sér, heldur með markvissri stefnu og samstilltu átaki foreldrasamfélagsins, skólakerfisins, félagsmiðstöðva, íþróttahreyfingarinnar, velferðarsamtaka, fræðasamfélagsins, sveitarfélaga og stjórnvalda. Forvarnir snúast nefnilega ekki aðeins um meðferðarúrræði þegar vandinn er orðinn alvarlegur, heldur ekki síður um að móta umhverfi í allri tilveru barna og ungmenna sem dregur úr áhættu frá upphafi. Það er einmitt eitt af megineinkennum íslensku leiðarinnar.

Forvarnir, já takk …nema þegar áfengi á í hlut

Í þessu ljósi vekur það sérstaka athygli, og er í raun illskiljanlegt, að meðal flutningsmanna frumvarpsins, í þessari fjórtándu eða fimmtándu tilraun, eru þingmenn sem sjálfir hafa kallað eftir öflugri forvörnum, lýst alvarlegum áhyggjum af vímuefnaneyslu barna, fíknivanda ungmenna og skorti á úrræðum fyrir börn í erfiðleikum. Þingmenn sem í orði hafa tekið einarða afstöðu í lýðheilsu-, velferðar- og forvarnarmálum. Þingmaðurinn Valdimar Breiðfjörð Birgisson hefur kallað eftir öflugri forvörnum vegna vímuefnaneyslu barna. Þingkonan María Rut Kristinsdóttir hefur bent á að forvarnir og sterkt öryggisnet borgi sig margfalt. Þingkonan Sandra Sigurðardóttir hefur lagt áherslu á mikilvægi íþrótta- og æskulýðsstarfs sem forvarnartækis og þingkonan Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hefur lýst alvarlegri stöðu barna og ungmenna með fíknivanda, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Þessir þingmenn þurfa að svara því hvernig stuðningur þeirra við frumvarp sem vitað er að eykur aðgengi barna og ungmenna að áfengi samræmist þessum yfirlýstu áherslum viðkomandi. Ekki síst þegar Embætti landlæknis telur breytinguna munu draga úr virkni forvarna og auka drykkju ungmenna og WHO hefur lagt áherslu á að varðveita þau sölukerfi sem frumvarpið gengur þvert gegn, eins og þegar hefur verið minnst á. Það er ekki hægt að tala fyrir öflugum forvörnum gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna en styðja um leið breytingar á sölukerfinu sem helstu sérfræðistofnanir vara við vegna fyrirsjáanlegra neikvæðra áhrifa á velferð barna og ungmenna sem og lýðheilsu almennt.

Að lokum þetta

Í þessu ljósi er þetta frumvarp, eða réttara sagt óskalisti áfengisbransans í sinni fjórtándu eða fimmtándu útgáfu, sérkennilegt plagg. Það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort viðskiptahagsmunir áfengissala eigi að vega þyngra en sú lýðheilsustefna og sá árangur í forvörnum sem náðst hefur á undanförnum áratugum. Mér þykir það satt að segja dapurlegt að Alþingi skuli enn eina ferðina eyða dýrmætum tíma í mál af þessu tagi, þegar svo mörg brýn verkefni blasa við í velferðar- og forvarnarmálum barna og ungmenna.

Höfundur er félagsuppeldisfræðingur og formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum




Skoðun

Sjá meira


×