Skoðun

Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkis­stjórnarinnar

Guðmundur D. Haraldsson og Sævar Finnbogason skrifa

Starfsemi og rekstur íslenskra banka þarfnast endurskoðunar. Stóru bankarnir þrír eru reknir á sömu forsendum og eru í einokunarstöðu gagnvart viðskiptavinum sínum. Á þessu má taka með nýju rekstrarformi og skapa þannig aukna samkeppni á milli bankanna. Í þessu fælist mikið og raunverulegt tækifæri fyrir ríkisstjórnina til að bæta hag viðskiptavina bankanna.

Allt frá hruni bankanna 2008 hefur íslenskur almenningur beðið eftir endurreisn og endurhugsun bankakerfisins. Síðan þá hafa allar ríkisstjórnir komið að því að endurreisa bankakerfið í óbreyttri mynd og selt það markaðsöflum. Afleiðingin af þessu fyrir almenning og fyrirtæki, er eins og varað var við:

  • Vaxtamunur íslenskra banka er hærri en í nágrannalöndunum og hefur lítið minnkað. Þetta veldur því að lántaka er dýrari á Íslandi en annars væri.
  • Þóknanir eru mun hærri fyrir notkun á greiðslumiðlun á Íslandi en í nágrannalöndunum. Þetta sama á við um viðskipti með erlendan gjaldeyri og greiðslukort erlendis. Bankarnir hækka álögur og gjaldskrár í takti.
  • Lækkun bankaskattsins fyrir nokkrum árum skilaði sér ekki til viðskiptavina bankanna.
  • Hagnaður bankanna er sum ár svipaður og sjávarútvegurinn skilar, og virðist ótengdur því hvernig samfélaginu farnast.

Bankarnir hafa hagrætt svo gríðarlega í eigin rekstri að hlutfallslegur kostnaður við rekstur þeirra er einn sá lægsti á Norðurlöndum. Þeir hafa enda innleitt mikla sjálfvirkni í starfsemi sína. En afraksturinn af þessari velgengni endar að mestu hjá fjarstöddum hluthöfum þeirra, sjóðum og stórfjárfestum. Afraksturinn endar líka að hluta hjá ríkinu, eiganda Landsbankans. Óhætt er að segja að almenningur borgi kostnaðinn af einkavæðingu bankanna með háum vaxtamun og þjónustugjöldum.

Framlag núverandi ríkisstjórnar í bankamálum hefur hingað til eingöngu falist í vilja til að hækka bankaskattinn á ný. Fjármálaráðherra hefur sagt að ákveðinn „ábati“ sé til staðar í fjármálakerfinu, sem stafi af verðbólgunni, og honum verði að „deila“. Ráðherrann játar þannig að einkavæðing bankakerfisins hafi ekki skilað því sem hún átti að skila samfélaginu: Hagstæðari vaxtamun og lægri þjónustugjöldum. Þvert á móti hefur ekki skapast virk samkeppni á þessum markaði. Samkeppnin hefði séð til þess að hagnaður bankanna yrði innan skikkanlegra marka, en í staðinn búum við við það að bankarnir hækka álögur og gjaldskrár í takti. Og þar sem bankar vita um nær allt sem gerist í hagkerfinu – í gegnum greiðslumiðlanir sínar og lánastarfsemina – vita þeir líka upp á hár hvernig þeir geta kreist fleiri krónur út úr hagkerfinu. Þetta er kallað að hafa tangarhald sem einokunarstaða gerir mögulega.

Bankaskattur er ekki leið til að stokka upp bankamarkaðinn vegna þess að bankarnir geta einfaldlega velt þeim kostnaði yfir á viðskiptavini sína. Þetta geta þeir í fákeppnisumhverfi einsleitra banka. Mun eðlilegri leið væri að endurskoða rekstrarform bankanna þannig að þeir þurfi að keppa sín á milli og stuðla þannig að lægri gjaldskrám, minni vaxtamun og betri þjónustu. Það er hlutverk fulltrúa almennings, stjórnmálamanna, að bregðast við þegar ljóst er að bankar landsins eru reknir á forsendum sem vinna gegn hag almennings og fulljóst að tilraunir með einkavæðingu bankanna hafa litlu skilað í bættum viðskiptakjörum almennings.

Heilbrigðara bankakerfi fæst með stofnun samfélagsbanka, eða þá umbreytingu Landsbankans í slíkan banka. Öflugur samfélagsbanki myndi veita hinum bönkunum samkeppni og aðhald með hágæðaþjónustu við viðskiptamenn sína. Tangarhald bankanna myndi rakna upp. Hagnaður samfélagsbanka yrði nýttur til að styrkja bankann í sessi til framtíðar með fjárfestingu og hluta hagnaðarins yrði skilað til viðskiptamanna hans þegar vel árar. Þannig eru samfélagsbankar í hnotskurn. Fyrirmyndir eru til í fjöldamörgum löndum, eins og Sparkasse í Þýskalandi og Nationwide í Bretlandi, svo dæmi séu tekin. Við þurfum þannig ekki að finna upp hjólið. Núna er kjörið tækifæri, þar sem einn ríkisstjórnarflokkana, Flokkur fólksins, hefur stutt stofnun slíks banka um árabil. Hví ekki að láta verkin tala?

Ríkjandi staða á íslenskum bankamarkaði er óheillavænleg og ekki í þágu almennings. Leiðin út úr öngstræti er stefnubreyting, ekki að halda áfram að gera nákvæmlega það sama.

Höfundar eru stjórnarmenn í Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði




Skoðun

Sjá meira


×