Skoðun

Ríkis­stjórnin sker niður þjónustu við börn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar

Árið 2021 samþykkti Alþingi farsældarlögin undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar fv. mennta- og barnamálaráðherra með stuðningi úr öllum flokkum. Loforðið var skýrt. Barn sem þarf stuðning á að halda, ber að fá hann snemma, á réttum stað og án þess að fjölskyldan þurfi að berjast við kerfið. Ríkisstjórnin ætlar nú að svíkja það loforð.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 fellur niður 1.100 milljóna króna árlegt framlag ríkisins til sveitarfélaga vegna laganna. Afleiðingarnar eru þegar komnar í ljós. Kópavogsbær segist þurfa að leggja niður stöðu ráðgjafa farsældar í leikskólum og þrjú stöðugildi í barna- og fjölskylduteymi. Bærinn varar við rofi í þjónustu og auknu álagi á barnavernd. Þetta gerist um allt land og þetta er pólitísk ákvörðun.

Ábyrgð felur í sér forgangsröðun

Framsókn vill ábyrgð í ríkisfjármálum. En ábyrgð felst ekki í því að senda reikninginn til barna. Hún felst í forgangsröðun og ríkisstjórnin hefur forgangsraðað rangt.

Það sparar ekkert að skera niður snemmtækan stuðning. Kostnaðinum er bara frestað og hann vex. Barn sem þar nauðsynlega hjálp í leikskóla getur því miður orðið að barni sem þarf barnavernd síðar. Að skera niður snemmtækan stuðning er eins og að slökkva á brunavarnarkerfinu til að spara rafmagn.

Rannsóknir sýna að því fyrr sem barn fær aðstoð, því líklegra er að hægt sé að koma með raunverulegan stuðning. Eitt af því sem einkennir finnska menntakerfið er nákvæmlega þetta, þ.e. markviss snemmtækur stuðningur. Þetta hefur skilað miklu fyrir finnska menntakerfið og er grunnurinn að þeirra árangri. Ég hef fylgst vel með þróunarverkefnum sem ganga út á snemmtækan stuðning og það er magnað að sjá árangurinn.

Peningarnir eru til

1,1 milljarður er innan við þúsundasti hluti útgjalda ríkisins. Það vantar ekki peninga, það vantar vilja. Hér má nefna að hægt er að setja þak á aðkeypta ráðgjöf og sérfræðiþjónustu ráðuneyta og stofnana. Ríkið eyðir háum fjárhæðum á hverju ári í skýrslur og ráðgjafa. Þann kostnað má lækka án þess að nokkur missi þjónustu.

Það á að tryggja lögbundið framlag til barna áður en fé er tekið frá fyrir óljós verkefni síðar.

Viðvörun innan úr stjórnarliðinu. Í vikunni sagði Jón Gnarr sig úr þingflokki Viðreisnar og nefndi sérstaklega ágreining um málefni barna. Þegar stjórnarþingmaður getur ekki lengur setið í eigin þingflokki vegna þessa málaflokks segir það allt sem segja þarf. Ríkisstjórnin hefur misst sjónar á málaflokki barna.

Við verðum að standa með börnum

Við leggjum til að framlagið verði tryggt í fjárlögum 2027 og fjármagnað með forgangsröðun, ekki nýjum lántökum. Framsókn byggði þetta kerfi í þverpólitískri sátt. Við munum ekki horfa þegjandi á að Farsæld barna verði rifið niður. Börn geta ekki beðið eftir betri tíð í ríkisfjármálum. Æska þeirra er núna.

Höfundur er formaður Framsóknar.




Skoðun

Sjá meira


×