Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar 16. október 2026 12:17 Sjúkdómsgreiningin liggur fyrir: Alzheimer. Læknirinn hefur útskýrt sjúkdóminn, ávísað lyfjum og bókað endurkomu. Móðir þín gengur út á bílaplanið við hlið þér og fyrir framan ykkur blasir óvissan við. Hvað tekur nú við? Þjónustan er til. Minnismóttakan, heilsugæslan, dagþjálfun og Heilahjálp. En það er ekki sjálfgefið að fjölskyldan rati á milli úrræðanna eða að einhver haldi utan um heildina. Of oft líða ár áður en fjölskyldan fær raunverulegan stuðning, og þá er álagið orðið mikið. Þetta á að breytast. Samkvæmt nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda á að koma á starfi heilabilunarráðgjafa í öllum heilbrigðisumdæmum landsins fyrir lok árs 2027. Heilabilunarráðgjafinn á að vera fastur tengiliður fjölskyldunnar: sá sem fylgir henni eftir, metur þarfirnar þegar sjúkdómurinn þróast og tengir saman þjónustu sem í dag er tvístruð. Þangað til er gott ráð að spyrja á heilsugæslunni hvort fjölskyldan geti fengið fastan tengilið. Þetta er löngu tímabært. En það vekur spurningu sem lítið hefur verið rædd: hvaða eiginleika þarf góður heilabilunarráðgjafi að hafa? Gráðan eða manneskjan? Danir hafa reynslu af þessu starfi til margra ára. Þar hafa heilabilunarráðgjafar ólíka grunnmenntun, flestir úr heilbrigðisgreinum en einnig úr félags- og uppeldisgreinum, og hafa bætt við sig sérþekkingu á heilabilun. Þegar þeir voru sjálfir spurðir hvað skipti mestu í starfinu lögðu þeir jafnmikla áherslu á persónulega eiginleika og fagþekkingu. Þeir nefndu samkennd, forvitni og hæfni til að hlusta, ró og þolinmæði, víðsýni, og hæfileikann til að sjá nýjar leiðir þegar þær gömlu duga ekki. Ástæðan er einföld. Starfið stendur og fellur með trausti. Heilabilunarráðgjafinn kemur inn á heimili fólks á erfiðasta tímabili lífs þess. Hann þarf að ná til einstaklings sem skilur ekki alltaf hvað er að gerast og maka sem er að bugast en vill ekki viðurkenna það. Hann þarf að halda ró sinni þegar fjölskyldan er ósammála um næstu skref. Þekkingu má kenna, en viðhorfið verður að koma innan frá. Það sem erfitt er að mæla Menntun og starfsleyfi eru eðlilegur upphafspunktur í ráðningum, en viðhorf og hæfni til að byggja upp traust koma ekki fram á prófskírteini. Fyrir fjölskylduna skipta þau þó öllu. Góður heilabilunarráðgjafi gefur sér tíma, talar við þann sem greindist en ekki bara um hann, og tekur eftir því þegar makinn er farinn að þreytast. Tækifæri sem kemur ekki aftur Talið er að á milli fimm og sjö þúsund Íslendingar séu með heilabilun og að flestir búi heima. Sá hópur stækkar ár frá ári. Það dugar því ekki að starf heilabilunarráðgjafa sé til á pappírnum í hverju heilbrigðisumdæmi. Þekking heilabilunarráðgjafa þarf að ná þangað sem fólkið er: á heilsugæsluna, inn í heimaþjónustuna, í dagþjálfun og á hjúkrunarheimilin, jafnt á landsbyggðinni sem á höfuðborgarsvæðinu. Sjaldan gefst tækifæri til að móta nýtt starf frá grunni. Það tækifæri er núna. Ef vel tekst til getur heilabilunarráðgjafinn orðið jafn sjálfsagður hluti af þjónustunni og ljósmóðirin er í mæðravernd. Fjölskyldan á bílaplaninu þarf hvort tveggja. Höfundur er í sérnámi í heilabilunarráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Sjúkdómsgreiningin liggur fyrir: Alzheimer. Læknirinn hefur útskýrt sjúkdóminn, ávísað lyfjum og bókað endurkomu. Móðir þín gengur út á bílaplanið við hlið þér og fyrir framan ykkur blasir óvissan við. Hvað tekur nú við? Þjónustan er til. Minnismóttakan, heilsugæslan, dagþjálfun og Heilahjálp. En það er ekki sjálfgefið að fjölskyldan rati á milli úrræðanna eða að einhver haldi utan um heildina. Of oft líða ár áður en fjölskyldan fær raunverulegan stuðning, og þá er álagið orðið mikið. Þetta á að breytast. Samkvæmt nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda á að koma á starfi heilabilunarráðgjafa í öllum heilbrigðisumdæmum landsins fyrir lok árs 2027. Heilabilunarráðgjafinn á að vera fastur tengiliður fjölskyldunnar: sá sem fylgir henni eftir, metur þarfirnar þegar sjúkdómurinn þróast og tengir saman þjónustu sem í dag er tvístruð. Þangað til er gott ráð að spyrja á heilsugæslunni hvort fjölskyldan geti fengið fastan tengilið. Þetta er löngu tímabært. En það vekur spurningu sem lítið hefur verið rædd: hvaða eiginleika þarf góður heilabilunarráðgjafi að hafa? Gráðan eða manneskjan? Danir hafa reynslu af þessu starfi til margra ára. Þar hafa heilabilunarráðgjafar ólíka grunnmenntun, flestir úr heilbrigðisgreinum en einnig úr félags- og uppeldisgreinum, og hafa bætt við sig sérþekkingu á heilabilun. Þegar þeir voru sjálfir spurðir hvað skipti mestu í starfinu lögðu þeir jafnmikla áherslu á persónulega eiginleika og fagþekkingu. Þeir nefndu samkennd, forvitni og hæfni til að hlusta, ró og þolinmæði, víðsýni, og hæfileikann til að sjá nýjar leiðir þegar þær gömlu duga ekki. Ástæðan er einföld. Starfið stendur og fellur með trausti. Heilabilunarráðgjafinn kemur inn á heimili fólks á erfiðasta tímabili lífs þess. Hann þarf að ná til einstaklings sem skilur ekki alltaf hvað er að gerast og maka sem er að bugast en vill ekki viðurkenna það. Hann þarf að halda ró sinni þegar fjölskyldan er ósammála um næstu skref. Þekkingu má kenna, en viðhorfið verður að koma innan frá. Það sem erfitt er að mæla Menntun og starfsleyfi eru eðlilegur upphafspunktur í ráðningum, en viðhorf og hæfni til að byggja upp traust koma ekki fram á prófskírteini. Fyrir fjölskylduna skipta þau þó öllu. Góður heilabilunarráðgjafi gefur sér tíma, talar við þann sem greindist en ekki bara um hann, og tekur eftir því þegar makinn er farinn að þreytast. Tækifæri sem kemur ekki aftur Talið er að á milli fimm og sjö þúsund Íslendingar séu með heilabilun og að flestir búi heima. Sá hópur stækkar ár frá ári. Það dugar því ekki að starf heilabilunarráðgjafa sé til á pappírnum í hverju heilbrigðisumdæmi. Þekking heilabilunarráðgjafa þarf að ná þangað sem fólkið er: á heilsugæsluna, inn í heimaþjónustuna, í dagþjálfun og á hjúkrunarheimilin, jafnt á landsbyggðinni sem á höfuðborgarsvæðinu. Sjaldan gefst tækifæri til að móta nýtt starf frá grunni. Það tækifæri er núna. Ef vel tekst til getur heilabilunarráðgjafinn orðið jafn sjálfsagður hluti af þjónustunni og ljósmóðirin er í mæðravernd. Fjölskyldan á bílaplaninu þarf hvort tveggja. Höfundur er í sérnámi í heilabilunarráðgjöf.
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun