Skoðun

Hver á­kveður hvort heyrnar­laus sjúk­lingur þarf túlk?

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar

Nýtt frumvarp um túlkaþjónustu hefur verið lagt fram á Alþingi, af Þar er lagt til að innheimta kostnað vegna túlkunar erlendra tungumála hjá einstaklingum sem hafa búið á Íslandi í þrjú ár eða lengur.

Það sem vekur sérstaklega athygli mína er að í greinargerð frumvarpsins er tekið skýrt fram að mikilvægt sé að greina erlend tungumál frá íslensku táknmáli.

Það er rétt og mikilvægt.

Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál. Samkvæmt lögum nr. 61/2011 er það fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Ríki og sveitarfélögum ber jafnframt að tryggja þeim sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli og málið er jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform.

En þegar kemur að heilbrigðisþjónustunni virðist myndin ekki jafn skýr.

Í 5. gr. laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 segir að sjúklingi sem notar táknmál skuli tryggð túlkun á upplýsingum um heilsufar og meðferð. Þar segir einnig að upplýsingarnar skuli veittar á þann hátt og við þau skilyrði að sjúklingurinn geti skilið þær.

Í reglugerð nr. 1145/2015 er orðalagið hins vegar annað. Þar segir að telji heilbrigðisstarfsmaður að sjúklingur sem notar táknmál þurfi aðstoð túlks, skuli kalla til túlk.

Þarna vaknar einföld en grundvallarspurning:

Hver á að ákveða hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf táknmálstúlk – sjúklingurinn sjálfur eða heilbrigðisstarfsmaðurinn?

Lögin segja að sjúklingi sem notar táknmál skuli tryggð túlkun. Reglugerðin virðist hins vegar fela heilbrigðisstarfsmanni að meta hvort túlkur sé nauðsynlegur.

Það er ekki aðeins orðalagsmunur. Þetta getur haft bein áhrif á rétt sjúklings til upplýsinga, þátttöku í eigin meðferð og möguleika hans til að veita upplýst samþykki.

Reglugerð á ekki að þrengja rétt sem lög veita nema skýr lagaheimild standi til þess. Þess vegna er eðlilegt að spyrja hvort fullnægjandi samræmi sé milli laganna og reglugerðarinnar.

Lög nr. 61/2011 gera þessa spurningu enn mikilvægari. Þar er íslenskt táknmál viðurkennt sem fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það og lagt bann við mismunun eftir því hvaða mál fólk notar.

Nýja frumvarpið á Alþingi tekur raunar sjálft skýra afstöðu til þessarar aðgreiningar. Þar er sérstaklega tekið fram að mikilvægt sé að greina erlend tungumál frá íslensku táknmáli og vísað til lögbundinnar stöðu táknmálsins.

Því skýtur nokkuð skökku við ef löggjafinn leggur áherslu á þessa aðgreiningu en reglugerð um túlkun í heilbrigðisþjónustu lætur það samt vera undir mati heilbrigðisstarfsmanns hvort táknmálstúlks sé þörf.

Málnefnd um íslenskt táknmál og Félag heyrnarlausra vöktu athygli heilbrigðisráðherra á þessu með bréfi 19. maí síðastliðinn. Þar var óskað eftir endurskoðun á reglugerðinni og verklagi varðandi túlkun fyrir sjúklinga sem nota íslenskt táknmál.

Samkvæmt formanni Málnefndar um íslenskt táknmál hefur ekkert efnislegt svar borist frá ráðuneytinu. Einu viðbrögðin hafa verið staðfesting á móttöku bréfsins.

Nú eru liðnir tæpir fimm mánuðir frá því bréfið var sent.

Því miður er það ekki í fyrsta sinn sem málefni sem varða íslenskt táknmál og réttindi táknmálsfólks virðast sitja lengi á hakanum hjá stjórnvöldum. Svör dragast, úrbætur bíða og á meðan þurfa táknmálsnotendur að lifa við óvissuna.

Maður fær óneitanlega þá tilfinningu að málefni íslensks táknmáls megi of oft bíða.

Í þessu máli er þó ekki verið að spyrja um smávægilegt verklagsatriði. Spurt er hvort reglugerð samræmist lögum og hver hafi í raun ákvörðunarvald um aðgang heyrnarlauss sjúklings að táknmálstúlki.

Slíkri spurningu ætti að svara skýrt og án óþarfa tafa – og ef misræmi reynist vera milli laga, reglugerðar og framkvæmdar þarf jafnframt að gera þær úrbætur sem nauðsynlegar eru til að tryggja rétt táknmálsfólks í reynd.

Þetta snýst ekki aðeins um túlkaþjónustu.

Þetta snýst um rétt sjúklings til að skilja upplýsingar um eigið heilsufar, geta tekið þátt í ákvörðunum um eigin meðferð og hafa sömu möguleika og aðrir til að veita upplýst samþykki.

Íslenskt táknmál er viðurkennt íslenskt mál.

Því ætti spurningin ekki að vera hvort heilbrigðisstarfsmaður telji að heyrnarlaus sjúklingur þurfi túlk.

Spurningin ætti að vera:

Hvernig tryggjum við að réttur sjúklings til samskipta á eigin máli sé virtur í framkvæmd?

Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Handhafi viðurkenningar Málnefnd um íslenskt táknmál 2025. Hefur mikla þekkingu á táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum, leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál og verkefnastjóri með IPMA D-vottun.




Skoðun

Sjá meira


×