Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir og Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifa 15. október 2026 20:32 Erfið reynsla í æsku getur haft víðtæk og langvarandi áhrif á líf einstaklinga. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem alast upp við ofbeldi, vanrækslu eða aðrar erfiðar eða óöruggar aðstæður eru í aukinni hættu á að glíma við geðrænan vanda, skert lífsgæði og félagslega erfiðleika síðar á ævinni. Þrátt fyrir aukna þekkingu á langtímaáhrifum erfiðrar reynslu í æsku er mikilvægt að beina sjónum ekki síður að því hvernig hægt er að fyrirbyggja slíkan vanda og tryggja að börn og ungmenni fái viðeigandi stuðning áður en erfiðleikarnir verða umfangsmeiri. Ný skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), sem kom út árið 2026, varpar ljósi á tengsl erfiðrar reynslu í æsku við heilsu og félagslega stöðu á fullorðinsárum. Skýrslan byggir á rannsókn sem náði til 26.741 einstaklinga á aldrinum 18–30 ára í 29 Evrópulöndum, þar á meðal Íslandi. Niðurstöðurnar eru umhugsunarverðar og vekja upp spurningar varðandi aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Meira en tveir þriðju þátttakenda greindu frá því að hafa upplifað að minnsta kosti eina tegund erfiðrar reynslu í æsku og rúmlega einn af hverjum fimm hafði upplifað fjórar eða fleiri. Slík reynsla getur meðal annars falist í ofbeldi, vanrækslu, vímuefnavanda á heimili eða því að verða vitni að heimilisofbeldi. Rannsóknin sýndi skýr tengsl milli fjölda slíkra reynsluþátta og verri geðheilsu, slakari lífsgæða, fjárhagserfiðleika, námserfiðleika og félagslegra erfiðleika á fullorðinsárum. Því fleiri tegundir erfiðrar reynslu sem þátttakendur höfðu upplifað, þeim mun meiri líkur voru á neikvæðum afleiðingum síðar á lífsleiðinni. Þegar þörfin er brýn en aðstoðin ekki sjálfgefin Ein athyglisverðasta niðurstaða skýrslunnar snýr að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Meðal þeirra þátttakenda sem höfðu upplifað fjórar eða fleiri tegundir erfiðrar reynslu í æsku töldu 76,3% sig hafa þurft á faglegri aðstoð að halda á síðustu 12 mánuðum. Til samanburðar var hlutfallið 36,7% meðal þeirra sem höfðu ekki upplifað slíka reynslu. Þeir sem höfðu upplifað meiri erfiðleika voru jafnframt líklegri til að telja sig ekki hafa fengið þann stuðning sem þeir þurftu. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að geðheilbrigðisþjónusta sé ekki eingöngu til staðar, heldur einnig aðgengileg þeim sem á henni þurfa að halda. Þar getur lágþröskuldaþjónusta gegnt mikilvægu hlutverki, en hún byggir á því að draga úr þeim hindrunum sem geta komið í veg fyrir að einstaklingar leiti sér aðstoðar. Hér á landi er Bergið Headspace dæmi um slíka þjónustu. Þar geta ungmenni á aldrinum 12–25 ára leitað sér gjaldfrjálsrar ráðgjafar án tilvísunar, greiningar eða þess að þurfa að skilgreina vanda sinn fyrir fram. Hugmyndafræðin byggir á því að mæta ungu fólki þar sem það er statt, á þeirra forsendum. Snemmtæk íhlutun snýst einmitt um að bregðast við erfiðleikum áður en þeir magnast. Ekki ætti að þurfa að bíða eftir því að vanlíðan hafi veruleg áhrif á skólagöngu, félagsleg tengsl eða daglegt líf áður en stuðningur stendur til boða. Mikilvægi tengsla og verndandi þátta Skýrslan dregur einnig fram mikilvægi seiglu og verndandi þátta í lífi barna og ungmenna. Rannsóknin sýndi jafnframt að það að hafa einhvern fullorðinn til að leita til og treysta á í æsku gat gegnt mikilvægu verndandi hlutverki. Þetta undirstrikar að erfið reynsla í æsku ákvarðar ekki framtíð einstaklinga. Í þessu samhengi skiptir máli að ungt fólk hafi aðgang að umhverfi þar sem það getur rætt líðan sína án ótta við fordóma eða að vandinn sé ekki talinn nægilega alvarlegur. Þjónusta á borð við Bergið getur skapað slíkt rými og veitt ungmennum tækifæri til að fá stuðning, efla bjargráð sín og takast á við áskoranir áður en þær verða yfirþyrmandi. Höfum við efni á að bíða? Niðurstöður WHO minna okkur á að erfið reynsla í æsku getur haft áhrif langt fram á fullorðinsár. Jafnframt sýna þær mikilvægi stuðnings og verndandi þátta sem geta dregið úr neikvæðum afleiðingum slíkrar reynslu. Snemmtæk íhlutun og aðgengileg þjónusta við börn og ungmenni er því ekki aðeins mikilvægt velferðarmál heldur einnig fjárfesting í framtíðinni. Með því að bregðast tímanlega við vanda má stuðla að bættum lífsgæðum einstaklinga og mögulega draga úr þörf fyrir umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrræði síðar. Því ætti spurningin ekki að vera hvort við höfum efni á að fjárfesta í snemmtækum stuðningi við ungmenni, heldur hvort við höfum efni á að bíða. Höfundar eru meistaranemar í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og starfsnemar í Berginu Headspace. Heimild: World Health Organization (2026). Adverse childhood experiences in the European Union, Iceland and Norway: characteristics, consequences and costs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun