Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar 15. október 2026 09:17 Í tilefni að því að Arctic Circle, Hringborð norðurslóða, fór fram í síðustu viku langar mig að draga enn og aftur athygli að þessu mikilvæga svæði. Norðurslóðir eru að mínu mati eitt af mikilvægustu svæðum heims m.a. þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum og alþjóðasamvinnu. Hagsmunir Íslands samkvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur samþykkt um málefni norðurslóða eru skýrir: það er að tryggja frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun á svæðinu og að við berum virðingu fyrir alþjóðalögum og réttindum þeirra sem þar búa. Á norðurslóðum sjást áhrif loftslagsbreytinga betur en víða annars staðar. Bráðnun íss, breytingar á lífríki og aukin umsvif manna kalla á öflugt alþjóðlegt samstarf. Í því samhengi er rétt að vekja athygli á að Ísland leggur mikla áherslu á mikilvægi vísindarannsókna á svæðinu, náttúruvernd og ábyrga nýtingu auðlinda. En verndun umhverfisins er ekki aðeins loftslagsmál heldur einnig grundvallaratriði í langtímaöryggi svæðisins. Áherslan á öryggis- og varnamál á svæðinu hefur aukist. Aukin spenna í alþjóðamálum og hernaðarlegir hagsmunir stórvelda hafa m.a. aukið umræðu um að efla þurfi viðbúnað, eftirlit, leit og björgun og vernd mikilvægra innviða á norðurslóðum. Ísland byggir öryggi sitt á alþjóðasamstarfi, meðal annars innan NATO og við leggjum mikla áherslu á að norðurslóðir verði áfram svæði friðar, samtals og samvinnu. Arctic Circle-ráðstefnan, Hringborð norðurslóða, í Hörpu í síðustu viku undirstrikaði einmitt þessi tengsl. Þar var fjallað um loftslagsvánna, vaxandi alþjóðlega spennu og mikilvægi þess að rödd frumbyggja heyrist í ákvörðunum um framtíð svæðisins. Þekking þeirra, menning og réttindi verða að vera órjúfanlegur hluti af allri stefnumótun. Eins og ég hef áður nefnt í ræðum og greinum þá verður framtíð norðurslóða að mínu mati best tryggð með samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð. Höfundur er þingmaður Viðreisnar og formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar um málefni norðurslóða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eiríkur Björn Björgvinsson Norðurslóðir Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Í tilefni að því að Arctic Circle, Hringborð norðurslóða, fór fram í síðustu viku langar mig að draga enn og aftur athygli að þessu mikilvæga svæði. Norðurslóðir eru að mínu mati eitt af mikilvægustu svæðum heims m.a. þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum og alþjóðasamvinnu. Hagsmunir Íslands samkvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur samþykkt um málefni norðurslóða eru skýrir: það er að tryggja frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun á svæðinu og að við berum virðingu fyrir alþjóðalögum og réttindum þeirra sem þar búa. Á norðurslóðum sjást áhrif loftslagsbreytinga betur en víða annars staðar. Bráðnun íss, breytingar á lífríki og aukin umsvif manna kalla á öflugt alþjóðlegt samstarf. Í því samhengi er rétt að vekja athygli á að Ísland leggur mikla áherslu á mikilvægi vísindarannsókna á svæðinu, náttúruvernd og ábyrga nýtingu auðlinda. En verndun umhverfisins er ekki aðeins loftslagsmál heldur einnig grundvallaratriði í langtímaöryggi svæðisins. Áherslan á öryggis- og varnamál á svæðinu hefur aukist. Aukin spenna í alþjóðamálum og hernaðarlegir hagsmunir stórvelda hafa m.a. aukið umræðu um að efla þurfi viðbúnað, eftirlit, leit og björgun og vernd mikilvægra innviða á norðurslóðum. Ísland byggir öryggi sitt á alþjóðasamstarfi, meðal annars innan NATO og við leggjum mikla áherslu á að norðurslóðir verði áfram svæði friðar, samtals og samvinnu. Arctic Circle-ráðstefnan, Hringborð norðurslóða, í Hörpu í síðustu viku undirstrikaði einmitt þessi tengsl. Þar var fjallað um loftslagsvánna, vaxandi alþjóðlega spennu og mikilvægi þess að rödd frumbyggja heyrist í ákvörðunum um framtíð svæðisins. Þekking þeirra, menning og réttindi verða að vera órjúfanlegur hluti af allri stefnumótun. Eins og ég hef áður nefnt í ræðum og greinum þá verður framtíð norðurslóða að mínu mati best tryggð með samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð. Höfundur er þingmaður Viðreisnar og formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar um málefni norðurslóða.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun