Skoðun

Þegar undan­tekningarnar verða að stefnu

Gunnar Ármannsson skrifar

Ég hef stundum velt því fyrir mér hversu margar undantekningar stjórnmálastefna þolir áður en hún hættir að vera stefna og verður fyrst og fremst lýsing á því sem menn hefðu viljað gera ef aðstæður hefðu verið aðrar. Það er auðvelt að vera fylgjandi frelsi einstaklingsins, hóflegri skattheimtu og takmörkuðu ríkisvaldi þegar rætt er um þessi hugtök almennt. Á það reynir fyrst þegar taka þarf ákvörðun sem hefur áhrif á tekjur ríkissjóðs, fyrirætlanir ráðherra eða friðinn í ríkisstjórn.

Þetta finnst mér eiga sérstakt erindi við Sjálfstæðisflokkinn. Sá flokkur hefur lengi sótt réttlætingu sína og stuðning til hugmynda um athafnafrelsi, einkaframtak, eignarrétt og ábyrgð einstaklingsins. Það eru verðmætar hugmyndir og eiga að mínu mati fullt erindi við samtímann. En einmitt þess vegna verður að vera hægt að ræða hvort þær ráði nægilega miklu um ákvarðanir flokksins þegar hann fer með völd. Góð stefnuskrá svarar ekki þeirri spurningu ein og sér.

Ég hef takmarkaðan áhuga á því að flokka fólk eftir því hvort það sé innst inni nógu sannfært um eigin stjórnmálastefnu. Menn geta verið einlægir í skoðunum sínum og samt tekið ákvarðanir sem samræmast þeim illa. Þeir geta líka haft málefnalegar ástæður fyrir einstökum ákvörðunum þótt heildarniðurstaðan verði önnur en sú sem þeir ætluðu að stefna að. Það er sú niðurstaða sem mér finnst ástæða til að skoða.

Stjórnmálaflokkur þarf nefnilega ekki að hafna grundvallarstefnu sinni með formlegum hætti til þess að fjarlægjast hana. Breytingin getur orðið smám saman, með ákvörðunum sem hver um sig er skýrð með sérstökum aðstæðum. Hækka þarf skatt vegna stöðu ríkissjóðs. Draga þarf úr endurgreiðslu vegna þenslu. Koma þarf á nýju eftirliti vegna tiltekins vanda. Veita þarf stjórnvöldum auknar heimildir til þess að tryggja skilvirkni. Og stundum þarf einfaldlega að fallast á kröfu samstarfsflokks þannig að ríkisstjórnin geti haldið áfram störfum.

Hver þessara skýringa getur verið skiljanleg. En saman vekja þær aðra spurningu: Hvert leiða allar þessar ákvarðanir?

Í skrifum mínum um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði hef ég reynt að beina athyglinni að upphaflegum tilgangi endurgreiðslunnar og því hvernig rökin fyrir henni og skerðingu hennar hafa breyst. Þar finnst mér skipta máli að menn geri sér grein fyrir því hvaða sjónarmið lágu að baki ráðstöfuninni í upphafi og taki síðan afstöðu til þess hvort þau eigi enn við. Það nægir ekki að ný fjárhagsleg eða efnahagsleg markmið komi til sögunnar og eldri rökin hverfi hljóðlega úr umræðunni.

Þarna reynir á dálítið sem mér finnst oft vanta í stjórnmálaumræðuna. Þegar ríkið telur sig þurfa auknar tekjur eða vill hafa áhrif á hegðun fólks verður sú þörf gjarnan sjálfur útgangspunkturinn. Réttur fólks til þess að ráðstafa eigin fjármunum verður þá eitt af mörgum atriðum sem taka má tillit til, eftir því sem svigrúm leyfir. En ef frelsi einstaklingsins á að vera grundvallaratriði í stjórnmálastefnu hlýtur það að hafa sjálfstætt vægi þegar ákvörðunin er tekin. Það getur ekki alltaf beðið þar til búið er að fullnægja öllum öðrum markmiðum.

Svipuð spurning hefur verið mér hugleikin í skrifum um erfðafjárskatt. Þar má vissulega ræða tekjuþörf hins opinbera, jöfnuð og ólíka stöðu fólks. En einnig þarf að ræða ráðstöfunarrétt þess sem hefur aflað verðmæta og vill láta þau renna til sinna nánustu. Hvar liggja mörk skattheimtunnar og á hvaða rökum byggjast þau? Ef svarið ræðst fyrst og fremst af því hversu miklar tekjur ríkið telur sig þurfa hverju sinni verður erfitt að sjá hvaða takmarkandi hlutverki eignarrétturinn á að gegna.

Þetta merkir auðvitað ekki að skattar eigi engan rétt á sér eða að opinber útgjöld séu almennt óþörf. Við þurfum sameiginlega þjónustu og verðum að standa undir kostnaði við hana. En viðurkenning á því leysir stjórnmálamenn ekki undan því að réttlæta einstaka skatta og útgjöld. Útgjaldaþörf verður heldur ekki óháð þeim ákvörðunum sem skapa hana. Það verður að vera hægt að ræða hvort ríkið eigi að taka að sér verkefni áður en þörfin fyrir að fjármagna það er lögð til grundvallar sem óhjákvæmileg staðreynd.

Ég geri mér líka fulla grein fyrir því að stjórnmál eru málamiðlanir. Enginn flokkur getur búist við því að fá öllu sínu framgengt í samstarfi við aðra og kjósendur geta ekki með sanngirni krafist þess. Stjórnmálastefna sem tekur ekkert mið af aðstæðum og gefur ekkert svigrúm til samkomulags getur orðið harla gagnslítil í framkvæmd. En af því leiðir ekki að tilvísun til málamiðlana nægi til að réttlæta hverja þá niðurstöðu sem verður ofan á.

Þetta á auðvitað við um fleiri flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Í grein sinni „Við erum rétt að byrja“, sem birtist 3. nóvember, leggur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, áherslu á að ríkisstjórnarsamstarfi fylgi málamiðlanir. Jafnframt segir hún að árangurinn eigi að mælast í því hvort lífið verði betra fyrir fólkið í landinu, meðal annars hvort ungt fólk geti eignast heimili og fyrirtæki vaxið og skapað verðmæti. Þetta eru réttmæt viðmið. En þá þarf líka að vera hægt að meta einstakar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar út frá þeim.

Ef markmiðið er að auðvelda ungu fólki að eignast heimili verður að spyrja hvernig ákvarðanir sem hafa áhrif á byggingarkostnað samræmist því. Þar eiga spurningarnar um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarvinnu beint erindi. Það getur verið ágreiningur um áhrif hennar og vægi annarra sjónarmiða, en þá þarf að ræða þau efnislega. Almenn yfirlýsing um bætt kjör ungs fólks svarar ekki spurningunni um hvort tiltekin ráðstöfun auðveldi því eða torveldi að eignast húsnæði.

Sama á við um ábyrgð í ríkisfjármálum. Hallalaus rekstur ríkissjóðs segir ekki einn og sér til um hvort stefna um hóflegar álögur og takmörkuð umsvif ríkisins hafi náð fram að ganga. Til þess þarf einnig að skoða hvernig jafnvæginu er náð, hvort það byggist á auknum álögum, aðhaldi í útgjöldum, breyttri forgangsröðun eða tekjuvexti vegna aukinna umsvifa í atvinnulífinu. Fyrir þann sem greiðir skattana skiptir sú leið máli, rétt eins og fyrir þann sem reiðir sig á þjónustuna sem af þeim er fjármögnuð.

Þegar formaður Viðreisnar leggur áherslu á kjark til að taka erfiðar ákvarðanir er því ástæða til að staldra við. Það getur þurft kjark til að taka óvinsæla ákvörðun, en óvinsældir hennar segja ekkert um hvort hún sé rétt. Það getur líka þurft kjark til að hafna nýjum útgjöldum, draga úr verkefnum ríkisins eða standa gegn kröfu um auknar álögur. Við þurfum að geta metið rökin fyrir ákvörðuninni án þess að ágreiningur um hana verði afgreiddur sem skortur á vilja til að breyta hlutunum.

Mér finnst einnig skipta máli að greina á milli þess að sætta sig við ákvörðun vegna þess að annað hafi fengist í staðinn og þess að verja hana sem sjálfstætt framfaramál. Í fyrra tilvikinu eiga kjósendur rétt á skýringu á því hverju var fórnað og hvað fékkst á móti. Í því síðara eiga þeir rétt á rökstuðningi fyrir því hvernig ákvörðunin samræmist þeirri stefnu sem þeim var boðuð. Ef flokkur tekur að verja tilslakanir sínar með sömu rökum og hann hefði áður gagnrýnt er eðlilegt að spurt sé hvort stefnan hafi breyst.

Það verður þess vegna að sjást hverju flokkur fær áorkað með þátttöku sinni í ríkisstjórn. Hvaða breytingar verða vegna hans sem ella hefðu ekki orðið? Hvaða álögum er afstýrt, hvaða frelsi er aukið og hvaða verkefni eru látin í hendur einstaklinga og fyrirtækja vegna þess að hann telur þau betur komin þar? Og eru einhver mörk sem hann er ekki tilbúinn að fara yfir?

Árangur stjórnmálaflokks getur auðvitað líka falist í því sem hann kemur í veg fyrir. En ef það er meginhluti ávinningsins af stjórnarþátttökunni þurfa kjósendur að geta áttað sig á því hver sá ávinningur er.

Ef hvert frávik frá stefnunni er skýrt með nauðsyn samstarfsins, en erfiðara reynist að benda á áþreifanlegan árangur í samræmi við stefnuna, er eðlilegt að kjósendur fari að spyrja hverju samstarfið hafi þá átt að þjóna. Stjórnarseta getur verið leið til þess að koma stefnu í framkvæmd. Gildi hennar hlýtur að ráðast af því hvað menn gera við völdin.

Þess vegna finnst mér umræðan um framtíð Sjálfstæðisflokksins þurfa að snúast um ákvarðanir, forgangsröðun og ábyrgð. Sama krafa á við um Viðreisn og aðra flokka sem sækja stuðning til hugmynda um frelsi og ábyrgð. Það þarf að vera hægt að spyrja hvort þeir hafi sætt sig við of mikið, látið of margt óátalið eða vanist því að réttlæta niðurstöður sem þeir hefðu sjálfir gagnrýnt úr stjórnarandstöðu. Slíkar spurningar fela ekki í sér dóm um persónulegan heiðarleika þeirra sem komu að ákvörðununum. Þær eru eðlilegur hluti af því að taka stjórnmálastefnu alvarlega.

Ég held að hugmyndir um frelsi, eignarrétt og takmörk ríkisvaldsins hafi síður en svo runnið sitt skeið. En trúverðugleiki þeirra sem boða þær verður ekki endurnýjaður með því einu að tala af meiri sannfæringu um mikilvægi þeirra. Hann byggist á því að fólk sjái þær hafa áhrif þegar raunverulegir hagsmunir togast á og ákvörðunin er erfið.

Grundvallarstefna þarf að geta ráðið úrslitum um ákvörðun, jafnvel þegar önnur niðurstaða væri þægilegri. Annars er hætt við að menn geti að lokum skýrt hverja einustu undantekningu, en eigi æ erfiðara með að sýna hvar stefnan sjálf réð för.

Höfundur er lögmaður.




Skoðun

Sjá meira


×