Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 07:16 Fyrir nokkru sat ég á bekk í Bedford-Stuyvesant hverfinu í Brooklyn og beið eftir strætó. Við gatnamótin starfaði gangbrautarvörður, svört kona á miðjum aldri sem vakti athygli mína því hún talaði bókstaflega við hverja einustu manneskju sem átti leið hjá. Hún heilsaði öllum með nafni, spurði krakka á leið úr skólanum hvernig foreldrar þeirra höfðu það, hvernig amma þeirra væri að jafna sig eftir aðgerðina, hvernig gengi í skólanum, hvað þau hefðu gert skemmtilegt um helgina - svo stöðvaði hún umferðina og hélt áfram að spjalla við fólkið meðan hún gætti öryggi þess yfir gangbrautina. Foreldrar spurðu hana hvernig börnum þeirra liði í skólanum, hvort hún hefði tekið eftir einhverjum leiðindum í vinkonuhópi dóttur þeirra, spurði hvernig maðurinn hennar hefði það o.s.frv. Starfslýsing þessa gangbrautarvarðar er eflaust einföld; að gæta að öryggi skólabarna yfir götuna. En það er ógerningur að meta raunverulegt framlag hennar til samfélagsins. Þessi manneskja lætur börnum á leið í skólann líða vel, tengir fólk af mörgum kynslóðum, dreifir hlýju um nærumhverfi sitt og lætur samborgurum sínum finnast þeir vera mikilvægur hluti af stærri heild. Í mínum bókum er þetta mikilvægasti starfsmaður hverfisins, en jafnframt örugglega sá lægst launaðasti. En meira að segja í New York, borg sem afi minn kallaði gjarnan ‘nornaketil alheims-auðvaldsins’, virðist vera skilningur á mikilvægi svona starfa. Ég velti því nú fyrir mér hvernig þetta starf myndi koma út í “tölulegum samanburði” við önnur störf, svo vísað sé beint í orðfæri meirihluta Menningarráðs Reykjavíkur í tillögum þeirra um hagræðingu í rekstri bókasafna. Í sömu tillögu er farið fram á að meta “kostnað við hvern gest og hvert útlán,” en hvaða matskvarða gætum við notað á þennan gangbrautarvörð? Hversu tekjuskapandi er starf hennar? Hversu arðbær er hver vegfarandi sem hún kemur öruggum yfir götuna? Mætti e.t.v. fækka gangbrautum hverfisins og beina öllum vegfarendum yfir eina? Og helst bara tvisvar á dag, svo hægt væri að skera niður starfshlutfall hennar niður í tvo klukkutíma á dag í stað sex? Það er vafalaust hægt að telja krónurnar sem sparast við þá “hagræðingu”, en hvert yrði tapið fyrir hverfið og íbúa þess? Er hægt að mæla það? Gagnslaus mælitæki Tónlistarmaðurinn David Byrne hefur velt fyrir sér hættunni sem felst í svona blindri trú á tölulegar mælieiningar, og hvað tapast þegar við hrösum inn í þá rökvillu: “...það gefur ekki rétta mynd af raunverulegu mikilvægi hlutar, t.d. hljómplötu, bókar, kvikmyndar eða fræðikenningar, að mæla gildi hans og áhrif í tölfræðilegum mælieiningum eins og fjölda tilvitnana, sölutölum, umsögnum, áhorfi eða verðlaunum. Ég þekki það úr tónlist að plata sem nýtur ekki mikilla vinsælda getur haft mjög víðtæk og langvarandi áhrif. Hið sama getur átt við um fræðigreinar, en þegar mikilvægið er mælt í fjölda tilvitnana getur það haft keðjuverkandi áhrif sem skekkja starfsferil fræðimanna og rannsóknastefnu stofnana, þar á meðal ráðningar, uppsagnir, stöðuhækkanir og styrkveitingar. Það sem tapast þegar svona rangir skammtíma-mælikvarðar eru notaðir getur verið mjög verðmætt, og haft víðtæk og djúp áhrif.” Tungutakið sem núverandi borgarstjórn notar í aðgerðum sínum sem snúa að listum, menningu og mannlífi, afhjúpar skýrt þessa gölluðu tölfræðilegu nálgun; öll rök þeirra vísa til skammtíma krónutölu-sparnaðar en aldrei er minnst á langtíma markmið. Hvergi í þversagnakenndu hugtaka-salati borgarstjórnar kemur fram hvaða framtíðarsýn hún hefur fyrir Reykjavík. Í hvers konar samfélagi vill borgarstjórn að börnin okkar alist upp í?Hvernig mannlíf vilja þau að einkenni borgina eftir 5, 10, 20 eða 50 ár?Hvaða hlutverk telur borgarstjórn að listir og menning hafi í því mannlífi?Og umfram allt, hvernig stuðla aðgerðir þeirra nú að uppbyggingu þess samfélags? Upp úr skítnum vaxa blómin Árið 2010 var Gufunesið eins og leikmynd í svart/hvítri glæpamynd frá fimmta áratugnum. Gamalt iðnaðarsvæði þar sem hrörlegar skemmur fullar af brotajárni stóðu innan um stórar yfirgefnar steinbyggingar sem áður hýstu Áburðaverksmiðju Ríkisins. Eftir sprengingu í verksmiðjunni árið 2001 stóðu byggingarnar auðar og grotnuðu niður eins og legsteinar í yfirstærð. Íslenska Gámafélagið leigði nú allt svæðið af Reykjavíkurborg og stundaði endurvinnslu í nokkrum skemmum yfir daginn, en stór hjörð villikatta átti svæðið á nóttunni og hélt rottu-stofninum í skefjum. Hrörleg bryggja stóð kjagandi út í hafið niðri við fjöru sem var full af rusli úr hrundum byggingum. Inn í þessa sviðsmynd fór fyrsta listafólkið að koma sér fyrir í Gufunesinu. Gámafélaginu fannst hvimleitt að sjá allar þessar byggingar í eigu Reykjavíkurborgar í hraðri niðurníðslu, og bauð framtakssömu fólki úr skapandi greinum að leigja hluta þeirra, ef þau treystu sér til að leggja í þá vinnu og kostnað sem þurfti til að gera rýmin nægilega vistleg fyrir vinnustofur. Næstu 16 ár fjölgaði leigjendum í þessum rýmum, þau lögðu á sig gríðarlegan kostnað og vinnu við að koma byggingunum í nothæft horf, þar til fimm byggingar iðuðu af listalífi og alls kyns frumkvöðlastarfsemi. Nú er Gufunesið eftirsóknarverð íbúðabyggð sem Reykjavíkurborg lýsir sjálf sem hverfi “fyrir skapandi iðnað, frumkvöðlastarfsemi, menningu og atburði á sviði tónlistar, kvikmynda, lista, hönnunar og tísku, ásamt sprotafyrirtækjum…” Inn í þessa sviðsmynd steig núverandi meirihluti í Reykjavík og sagði upp leigusamningum við frumbyggja hverfisins, ásamt 14 öðrum leigusamningum fólks í skapandi greinum víðsvegar um borgina. Uppsagnirnar voru ekki aðeins gerðar án nokkurs samráðs við fólkið sem blásið hefur lífi í hverfið, heldur án þess að svara ítrekuðum beiðnum okkar í Listhúsinu í Gufunesi um fundi og samtal um framtíð byggingarinnar. Að baki þessum gjörningi liggur hættulegt vanmat á framlagi skapandi greina og hvernig þær næra og tengja samfélag okkar. Grasrót, hvað er það? Vistfræðingurinn Suzanne Simard er sennilega þekktust fyrir uppgötvanir sínar á hlutverki sveppagróðurs og rótarkerfa í jarðvegi heilbrigðra skóga. Net sem gerir gróðrinum ofanjarðar kleift að eiga í samskiptum sín á milli, skiptast á vökva og næringarefnum eftir þörfum og senda skilaboð milli plantna um ógnir eins og sjúkdóma eða breytingar á veðurfari. Ferlið gengur þvert á tegundir, ólíkar tegundir styðja hvora aðra með það sameiginlega markmið að stuðla að heilbrigði skógarins í heild. Þetta lífríki er að mestu leyti ósýnilegt, enda neðanjarðar, en er samt forsenda lífsins ofanjarðar - tré og annar gróður þrífst ekki nema fyrir þetta sjálf-spottna net. Grasrót lista- og menningarstarfs sinnir nákvæmlega þessu hlutverki í menningarlífi samfélaga. Skapandi ferli og frumkvöðlastarf er sjálfsprottinn villigarður og það þarf að hlúa að því lífi þar sem það sprettur náttúrulega upp, það er ekki hægt að beisla það eða stýra. Stjórnvöldum er gjarnt á að vanmeta þetta ferli, því þau skortir skilning á jarðveginum sem sköpunarkraftur sprettur úr og hverjar forsendurnar eru fyrir heilbrigði hans. Dæmi um sjálfsprottið grasrótarstarf sem hefur gefið menningarlífi Reykjavíkur ómælanlega mikið til baka er viðburðarýmið Mengi við Óðinsgötu. Það var stofnað fyrir 13 árum af fólki sem gerði sér fulla grein fyrir því að efnahagslega myndi þetta aldrei ganga upp, en hafði ríkan skilning á þeim menningarlega ávexti sem svona starfsemi skilar, og sárvantaði í Reykjavík. Skúli Sverrisson, tónlistarmaður og einn stofnanda Mengis, lýsti hlutverki þessa grasrótarstarfs vel í Víðsjá fyrir nokkru: „Á sama tíma og ég flyt til Íslands þá er Bjarni Gaukur og Elísabet Jónsdóttir, konan hans, akkúrat að flytja frá Hollandi og við einhvern veginn hófum samtal um menningu á Íslandi. Stofnun Mengis tengdist í raun og veru því sem ég hafði kynnst í New York og mér fannst vera mjög áhugavert, og ég í raun og veru skildi ekki fyllilega fyrr en ég varð partur af því: Að öll þessi tónlist sem kemur frá þessari stóru borg gerist inni í pínulitlum rýmum, einhver hópur af fólki í sjálfboðavinnu sem heldur þeim gangandi og, þú veist, er stöðugri baráttu við einhverja leigusala og svo framvegis. En einhvern veginn breytir þetta landslaginu í þessum stóru borgum, þessir litlu staðir, vegna þess að þar eiga sér stað tilraunir og fólk kynnist, sem er gífurlega mikilvægt.“ Það er sem betur fer enn gróskumikið menningarlíf á Íslandi, vegna útsjónarsemi og þrjósku listafólks sem vinnur stóran hluta sinnar vinnu launalaust. Kjörnir fulltrúar þurfa að læra að nýta skriðþungann sem þetta fólk skapar og styðja við þá orku sem felst í þeirra frumkvæði. Þannig nýtast kraftar þeirra best, og þannig nýtast fjármunir hins opinbera best. Með fjöldauppsögnum á leigusamningum skapandi rýma er núverandi borgarstjórn að plægja upp mikið af sjálfsprottnu menningarlífi sem hefur vaxið upp úr grasrótinni undanfarin 15-20 ár. Engin raunveruleg verðmæti sparast með þessu, því það er dýrt að endurbyggja í sífellu eftir vanhugsuð niðurrif hins opinbera - dýrt hinu alvitra fjármagni og dýrt sköpunarkrafti og menningarkapítali. Því mikil er fátækt þess sem mælir virði sitt í krónum. Höfundur er ljósmyndari og rekur hljóðver í Listhúsinu í Gufunesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun