Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar 2. nóvember 2026 13:00 Undanfarið hefur mikið verið rætt um börn og ungmenni með fjölþættan vanda. Um úrræðaleysi, kostnaðarsamar vistanir og ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Umræðan hefur að miklu leyti snúist um hvar eigi að vista þessi börn, hver eigi að greiða fyrir þjónustuna og hver eigi að reka úrræðin. En lítið fjallað um innihald sjálfrar þjónustunnar. En hvað með framtíð barnanna sjálfra? Í allri þessari umræðu er eitt hugtak sem ég sakna: Endurhæfing. Sem móðir barns með fjölþættan vanda þekki ég af eigin raun hversu erfitt getur verið að fá viðeigandi hjálp, heilbrigðisþjónustu og heildstæða aðstoð. Ég hef kynnst fjölmörgum hæfum og metnaðarfullum einstaklingum innan kerfisins allt frá skólanum, Barnavernd, Barna- og fjölskyldustofu og lögreglu, en jafnframt upplifað hversu illa þjónustukerfin vinna saman. Ítrekað þarf að fara í sömu gagnaöflun og mat, án þess að fyrri upplýsingar og niðurstöður nýtist sem skyldi. Það skortir samfellu, samhæfingu og skýra ábyrgð á því að þjónustan myndi eina heild. Hvar er endurhæfingin? Endurhæfing er markvisst og einstaklingsmiðað ferli sem miðar að því að efla færni, sjálfstæði, þátttöku og lífsgæði. Hún byggir á heildstæðu mati, skýrum markmiðum, þverfaglegri samvinnu og reglulegu mati á árangri. Hjá börnum með fjölþættan vanda getur endurhæfing meðal annars falist í þjálfun tilfinningastjórnunar, félagsfærni og samskipta. Hún getur byggst á sálfræðilegri meðferð, iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, læknismeðferð, fjölskylduvinnu og öðrum sérhæfðum aðferðum eftir þörfum hvers barns. Börn með fjölþættan vanda eru ekki einsleitur hópur. Að baki erfiðri hegðun geta legið taugaþroskaraskanir, geðrænir erfiðleikar, áföll, heilaskaði, fíknivandi eða samspil margra þátta. Þess vegna er nauðsynlegt að horfa lengra en á hegðunina sjálfa, greina undirliggjandi vanda og tryggja viðeigandi meðferð og endurhæfingu. Það er grundvallarmunur á því að veita barni örugga vistun og því að vinna markvisst að því að efla færni þess og framtíðarmöguleika. Hvort tveggja getur verið nauðsynlegt, en annað kemur ekki í stað hins. Hvar er heilbrigðiskerfið? Í umræðunni um börn með fjölþættan vanda er gjarnan horft til félagsþjónustu, barnaverndar og vistunarúrræða. En mörg þessara barna glíma jafnframt við umfangsmikinn heilbrigðisvanda sem kallar á sérhæfða þjónustu. Þau þurfa aðgang að viðeigandi greiningu, meðferð og endurhæfingu, óháð því hvort þau búa heima eða í sérhæfðu úrræði. Þjónustan þarf að vera samfelld og byggjast á samstarfi fagstétta sem hafa þekkingu á vanda hvers barns. Það er ekki ásættanlegt að börn með umfangsmiklar heilbrigðisþarfir fái ekki viðeigandi þjónustu vegna þess að vandi þeirra er flókinn, fellur á milli sérgreina eða birtist fyrst og fremst í erfiðri hegðun. Til að vel megi vera þarf raunverulega samhæfingu heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, barnaverndar og skólakerfis. Fyrri upplýsingar og niðurstöður þurfa að nýtast milli þjónustuaðila með viðeigandi heimildum og í samræmi við reglur um persónuvernd. Fjölskyldur eiga ekki að þurfa að hefja sömu gagnaöflun aftur og aftur eða bera sjálfar ábyrgð á að tengja kerfin saman. Milljarðar í þjónustu – en hvaða kröfur eru gerðar? Á undanförnum vikum hefur verið fjallað um mikinn kostnað vegna sérhæfðra vistunarúrræða fyrir börn með fjölþættan vanda. Slík þjónusta getur verið afar kostnaðarsöm og fjárhæðirnar vekja eðlilega spurningar. En kostnaðurinn einn og sér segir ekki alla söguna. Það sem skiptir mestu máli er hvaða þjónusta er veitt og hvaða árangri henni er ætlað að skila. Eru gerðar skýrar kröfur um þverfaglega mönnun, einstaklingsmiðaðar endurhæfingaráætlanir og reglulegt árangursmat? Hver metur hvort þjónustan sé í samræmi við þarfir barnsins? Hver ber ábyrgð á að breyta henni ef hún skilar ekki tilætluðum árangri? Þetta eru spurningar sem stjórnvöld þurfa að geta svarað. Opinber fjármögnun á sérhæfðri þjónustu þarf að byggjast á skýrum faglegum kröfum, skilgreindri ábyrgð og raunverulegri eftirfylgni. Það nægir ekki að tryggja vistunarrými ef óljóst er hvaða meðferð og endurhæfing á að fara þar fram. Nýr rekstraraðili leysir ekki vandann Áform um aukna ábyrgð ríkisins og uppbyggingu ríkisrekinna úrræða skapa tækifæri til að endurskoða þjónustuna frá grunni. En ríkisrekstur er ekki sjálfkrafa trygging fyrir betri þjónustu. Sömu faglegu kröfur verða að gilda um ríkisrekin og einkarekin úrræði. Það þarf að liggja fyrir hvaða meðferð og endurhæfing er veitt, hver ber faglega ábyrgð og hvernig árangur er metinn. Jafnframt þarf að tryggja sjálfstætt og virkt eftirlit, ekki aðeins með húsnæði, mönnun og rekstrarlegum skilyrðum heldur einnig með gæðum þjónustunnar, réttindum barnanna og því hvort unnið sé samkvæmt faglegum áætlunum. Slíkt eftirlit er sérstaklega mikilvægt þegar ríkið ber bæði ábyrgð á þjónustunni og rekur úrræðin. Það væri lítil framför að breyta rekstrarforminu án þess að breyta innihaldi þjónustunnar. Framtíðin verður að vera hluti af áætluninni Þegar barn þarf sérhæfða vistun er staðan oft orðin flókin og þörfin fyrir stuðning mikil. En vistunin sjálf má ekki verða endapunktur þjónustunnar. Frá upphafi þarf að liggja fyrir hvaða færni á að efla, hvaða markmið eru raunhæf og hvernig undirbúa eigi næstu skref í lífi barnsins. Endurhæfing skilar ekki öllum sömu niðurstöðu. Sum börn munu þurfa umfangsmikinn stuðning til lengri tíma. Árangur getur falist í aukinni sjálfstjórn, bættum samskiptum, minni vanlíðan eða aukinni getu til að takast á við daglegt líf. Þetta eru framfarir sem skipta máli og eiga að vera hluti af markmiðum þjónustunnar. Börn með fjölþættan vanda þurfa ekki aðeins félagsleg úrræði. Þau þurfa aðgang að heilbrigðisþjónustu, meðferð og endurhæfingu sem tekur mið af undirliggjandi vanda þeirra. Það er ekki nóg að ríkið taki yfir rekstur vistunarúrræða ef ábyrgð heilbrigðiskerfisins er áfram óljós. Við þurfum að horfa til þess hvað það kostar, bæði mannlega og fjárhagslega, þegar viðeigandi þjónusta kemur of seint eða skortir samfellu. Markviss meðferð, endurhæfing og snemmtækur stuðningur geta skipt sköpum fyrir framtíð einstaklings og dregið úr þörf fyrir umfangsmeiri þjónustu síðar. Við eigum að gera þá kröfu að hverju úrræði fylgi skýr fagleg sýn, einstaklingsmiðuð áætlun og raunverulegt eftirlit með gæðum og árangri. Við eigum ekki aðeins að spyrja hvað það kostar að hjálpa þessum börnum í dag, heldur líka hvað það getur kostað þau sjálf og samfélagið ef við gerum það ekki. Og umfram allt eigum við ekki eingöngu að spyrja hvar við ætlum að vista þessi börn. Við eigum að spyrja hvernig við ætlum að hjálpa þeim að eiga betra líf. Höfundur er móðir, hjúkrunarfræðingur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun