Skoðun

Það á að vera gott að eldast á Ís­landi

Ólafur Þór Gunnarsson og Regína Ásvaldsdóttir skrifa

Íslenska þjóðin er að eldast hratt og það skiptir okkur öll gríðarlega miklu máli að þjónusta við eldra fólk þróist í takt við tímann og í samræmi við breyttar þarfir.

Á næstu tíu árum er spáð að fjölgun landmanna 80 ára og eldri verði 44 % samanborið við um 18 % í öðrum aldurshópum. Þessi ánægjulega þróun kallar á aukna þjónustuþörf í heilbrigðis- og velferðarkerfinu.

Gott að eldast aðgerðaáætlunin, sem var samþykkt á Alþingi 2023 með öllum greiddum atkvæðum, felur í sér 19 verkefni sem snúa að sameiningu þjónustu, virkni, miðlun upplýsinga, þróun og nýsköpun og húsnæðismálum.

Tuttugu og tvö sveitarfélög á sextán svæðum og sex heilbrigðisumdæmi taka þátt í verkefninu. Flest hafa stóraukið samstarf sín á milli með sameiginlegu verklagi félags- og heilbrigðisþjónustu við mati á þjónustuþörf eldra fólks í heimahúsum. Í sex sveitarfélögum hefur verið gengið skrefinu lengra og skrifað undir samning um samrekstur. Allar aðgerðirnar snúa að því að fólk geti lifað sjálfstæðu lífi sem lengst á eigin heimili. Tengt því markmiði hefur heimaendurhæfing verið aukin og plássum í dagdvölum fjölgað um 100 á þessu tímabili. Þá eru aðrar aðgerðir í verkefninu sem snúa meira að stafrænum lausnum, húsnæðismálum og lýðheilsu. Samhliða þessu er þörf á breyttu lagaumhverfi þjónustunnar, og hluti verkefnanna snýr að því.

Frá upphafi var gengið út frá því að samþætting þjónustu kynni að vera mismunandi eftir staðsetningu, og það hefur orðið raunin. Sums staðar eru það hjúkrunarheimilin á staðnum sem taka að sér að samþætta þjónustu í heilu sveitarfélagi, en annars staðar eru það heilbrigðisstofnanir sem halda utan um verkefnin. Í Reykjavík (þar sem samþætting þjónustu hafði hafist áður en Gott að eldast fór af stað) er það svo sveitarfélagið sem sér um skipulag þjónustunnar allrar.

Á morgun, þann 4.nóvember verður haldinn árlegur haustfundur Gott að eldast. Þar munu þjónustuveitendur og áhugafólk um þjónustu við eldra fólk koma saman, fræðast hvert af öðru og fara yfir hvernig gengur á hvaða stað.

Á fundinum munu einnig Ragnar Þór Ingólfsson félags-og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra kynna nýja vitundarvakningu. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um þær venjur sem við getum tamið okkur snemma til að auka líkurnar á góðum og skemmtilegum efri árum. Það er nefnilega svo margt í okkar höndum. Ef við sem einstaklingar, en líka sem samfélag, hugum að því að efla tengslin hvort við annað, stundum reglulega líkamlega hreyfingu og ræktum hugann, aukum við líkurnar á því að síðustu áratugirnir verði ánægjulegur og gefandi tími, sannkallaður gamansaldur!

Höfundar eru  Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og formaður verkefnisstjórnar Gott að eldast, og Regína Ásvaldsdóttir,  verkefnastjóri Gott að eldast




Skoðun

Sjá meira


×