Eldri borgarar

Fréttamynd

„Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“

Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng hér á landi síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir of lítið hlutfall þeirra sem lenda í ástarsvikum leita sér hjálpar. Þolendur geti misst aleiguna og skuldsett sig um margar milljónir. 

Innlent
Fréttamynd

„Fólk bara skammast sín svo rosa­lega mikið“

Sakleysislegu daðri og samskiptum á stefnumótasíðunni Einkamál.is lauk með því að maður á áttræðisaldri missti aleigu sína í hendur svikara og sérsveitin var kölluð á heimili hans. Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng síðustu vikur samkvæmt Landsbankanum sem hvetur fólk til að varast grunsamleg samskipti á stefnumótaforritum.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta kemur okkur mjög á ó­vart“

Formaður Félags eldri borgara segir lögregluna hafa brugðist manni á áttræðisaldri sem leitaði ítrekað hjálpar vegna fjárkúgunar. Hann kallar eftir því að verkferlar verði endurskoðaðir. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara toppurinn á ís­jakanum“

Formaður Félags eldri borgara í Reykjavík segir mál sjötugs manns sem missti aleiguna til fjárkúgara einungis vera toppinn á ísjakanum. Nýr veruleiki blasi við eldri borgurum á Íslandi og ljóst sé að mikil þörf sé á sérstökum Umboðsmanni eldri borgara sem komi þeim til aðstoðar.

Innlent
Fréttamynd

Sjö­tugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara

Sjötugur maður sem nýlega opnaði sig um að hafa misst aleiguna til fjárkúgara hefur lifað í stöðugum ótta síðan kúgunin hófst. Vinur hans segir frá því að alls hafi hann greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir en þau hótuðu honum að ljúga upp á hann öllu illu og beita hann ofbeldi ef hann neitaði að borga.

Innlent
Fréttamynd

Svona berðu kennsl á fyrstu ein­kenni heila­bilunar

Umræða um heilabilun hefur aukist og hafa slíkir sjúkdómar áhrif á stóran hluta íslenskra fjölskyldna. Öldrunarlæknir segir það jákvæða þróun að samfélagið hafi öðlast meiri skilning á sjúkdómum á borð við Alzheimer á frekar skömmum tíma. Minnisvandamál séu langalgengasta fyrsta einkenni heilabilunar og þá yfirleitt skammtímaminnisskerðing.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægur á­fangi fyrir eldri öku­menn

Við þinglok 2026 náðist mikilvægur áfangi í réttindabaráttu eldra fólks þegar Alþingi samþykkti einróma frumvarp Nönnu M. Gunnlaugsdóttur og meðflutningsmanna hennar um breytingar á gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna.

Skoðun
Fréttamynd

Opna nýtt hjúkrunar­heimili með 90 rýmum í Reykja­nes­bæ

Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.

Innlent
Fréttamynd

„Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“

Kona á tíræðisaldri slasaðist í Grafarvogi þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstétt í hverfinu þar sem hún var á leið í klippingu. Sonur konunnar kallar eftir því að borgaryfirvöld bregðist strax við og geri við gangstéttina þar sem hafi orðið mörg slys.

Innlent
Fréttamynd

Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak

Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku.

Menning
Fréttamynd

Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn

Sífellt fleiri fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa látið til sín taka á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu. Tvær sjötugar konur segja miðilinn stórskemmtilegan þrátt fyrir að þær þykist ekkert kunna á hann. Þær skilji ekki hvernig fólk nenni að horfa á vitleysuna í þeim.

Lífið
Fréttamynd

Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum

Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð.

Innlent
Fréttamynd

Fögnuðu aldar­af­mæli með pompi og prakt

Það má segja að afmæli aldarinnar hafi gengið í garð í dag en fjölmiðlamaðurinn, náttúrufræðingurinn og goðsögnin David Attenborough fagnar í dag hundrað ára afmæli með veglegri veislu í Royal Albert Hall þar sem Íslendingar munu setja mark sitt á kvöldið. Einnig var blásið til veislu á hjúkrunarheimili Hrafnistu honum til heiðurs.

Lífið
Fréttamynd

Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára

Á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, TR. Einstaklingum sem þiggja slíkar greiðslur fjölgaði þannig um 2,5 prósent milli ára. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kemur fram í ársskýrslu TR fyrir árið 2025.

Innlent
Fréttamynd

Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu

Íslendingurinn Haraldur Sigvaldason, kallaður Halli, er meðal keppenda í dönsku raunveruleikaþáttunum Hotel Romantik sem fjalla um tuttugu eldri borgara í leit að ástinni. Strax í fyrsta þætti hreifst Halli af náttúrulækninum Jenu og í öðrum þætti yfirgaf hann stefnumót með annarri konu til að kyssa Jenu á munninn.

Lífið
Fréttamynd

Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna

Að útrýma biðlistum virðist vera vinsælt kosningaloforð þegar kemur að málefnum aldraðra. En sjaldan er talað um það hvernig við ætlum að fara að því að útrýma biðlistum og hvaða biðlistar það eru helst sem þarf að útrýma.

Skoðun
Fréttamynd

Virðing, virkni og góð lífs­gæði alla ævi

Eldra fólk er ómetanlegur hluti samfélagsins í Árborg. Þetta er hópur sem hefur byggt upp samfélagið okkar og lagt sitt af mörkum í gegnum árin. Því er mikilvægt að sveitarfélagið leggi áherslu á að þjónusta, umhverfi og tækifæri taki mið af þörfum eldri íbúa.

Skoðun
Fréttamynd

„Þessi snillingur er náttúru­lega ó­trú­legur“

Njarðvíkingurinn Hreinn Bergmann Óskarsson gerði sér lítið fyrir og fór átta mismunandi strætóferðir þriðjudaginn síðasta, þann 21. apríl. Þá fór hann meðal annars í læknisheimsókn og með heyrnartæki í viðgerð. Hreinn er lögblindur og með skerta heyrn eftir að hafa lent í slysi en lætur það ekki stoppa sig á nokkurn hátt. Dóttir hans birti á dögunum færslu þar sem hún reifar nýjustu ferðasögu pabba síns.

Innlent
Fréttamynd

Þjónustu­mið­stöð 60+ í Hvera­gerði

Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum bæjarins, sem við erum einkar stolt af.

Skoðun
Fréttamynd

Þörf eftir sér­tæku hús­næði fyrir yngri en 25 muni „fara veru­lega vaxandi“

Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. 

Innlent
Fréttamynd

Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er

Þegar ég heyrði af því fyrir nokkrum misserum síðan að íslensk heimildarmynd um daglegt líf á hjúkrunarheimili væri í bígerð, fylltist ég eftirvæntingu að sjá útkomuna.

Skoðun