Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar 18. október 2026 08:01 Ég átti gott spjall við Guð í draumi fyrir stuttu. Ég var eitthvað að dandalast í stjörnuprýddu draumalandinu, sem gæti hafa verið á tunglinu, þegar ég sá allt í einu mann með sítt, grátt hár og skegg svífa í lótusstellingu í myrkrinu beint fyrir framan mig. Ég stoppaði og virti hann fyrir mér. Hann var með lokuð augun en horfði samt beint á mig. Hann vaggaði rólega upp og niður og beið eftir að ég ávarpaði hann. É g: Guð? Guð: Já. Það er ég. É g: Vá hæ. Guð: Hæ. É g: Gaman að sjá þig hérna. Guð: Gaman að sjá þig. Ég staldraði aðeins við til að virða fyrir mér fegurð Guðs þar sem hann glóði í myrkrinu. Hann virtist gera það sama við mig. É g: Fyrst ég er nú með þig á línunni, mætti ég spyrja þig aðeins út í lífið og tilveruna? Guð: Já já. É g: Það fyrsta sem kemur upp hjá mér er: Af hverju er mannkynið í svona miklu stríði innanborðs? Hvaðan kemur allt þetta hatur og ofbeldi? Guð: Góð spurning. Það byrjaði allt fyrir um tíu þúsund árum þegar maðurinn fór að rækta sér dýr til þrælkunar og matar. Fyrstu stríð sögunnar spruttu úr deilum milli dýraeigenda. Þeir sem áttu flest dýr urðu valdamiklir og sólgnir í meiri völd. Yfirráðin yfir dýrunum smituðust yfir í yfirráð yfir mönnum. Síðan hefur þetta einfaldlega stigmagnast. Peningar voru fundnir upp til að einfalda kaup og sölu á þessum dýrum og síðar mannlegum þrælum. Og því meiri peningar sem eru í umferð, þeim mun fleiri stríð eru háð. É g: Ok vá. Það er magnað. Guð: Já, þetta er ekki flókið. Jesú, sonur minn, var einmitt krossfestur fyrir að mótmæla slátrun dýra og kaupum og sölum á þeim í heilögu hofi mínu. Þeir valdamiklu og gráðugu óttuðust um auðævi sín því Jesú var á góðri leið með að vekja mannkynið upp til vitundar um þetta svo að þeir krossfestu hann og endurskrifuðu sögu hans til að passa inn í áform sín um að græða meira á áframhaldandi yfirráði sínu yfir dýrum og mönnum. É g: Er það virkilega? Guð: Jamm. É g: Svo það eina sem við þurfum að gera til að koma á friði í heiminum er að breyta mataræðinu okkar? Hætta að drepa dýr? Guð: Já, þar liggur grunnurinn að öllum stærstu vandamálum mannkyns. É g: En hvað með gervigreind? Hvernig tengist hún dýraáti? Guð: Jú sko. Þegar þið hættið að rækta dýr til matar, þá hættiði líka að hafa yfirráð yfir þeim. Allt hagkerfi ykkar er byggt á þessu yfirráði og smitar út frá sér í allt annað sem þið gerið. Þegar gervigreindarþróun er ekki knúin áfram af græðgi og valdafíkn verður auðvelt að halda áhættunni í lágmarki með römmum og reglugerðum. É g: Hvað með hlýnun jarðar og önnur umhverfismál? Guð: Já, allt mun lagast mjög fljótt þegar þið hættið dýraafurðaframleiðslu. Skógar jarðar, sem eru nauðsynlegir til að viðhalda jafnvægi í andrúmsloftinu ykkar, eru felldir til að rýma fyrir beitilandi og ræktun dýrafóðurs. Dýraafurðaframleiðsla krefst margfalt meira landsvæðis en ræktun plantna til manneldis. Það myndi líka hægja á þeirri hröðu útrýmingu tegunda sem nú á sér stað, auk þess að auka vatnsframboð og loftgæði. Hættan á smitsjúkdómafaröldrum myndi svo gott sem hverfa. É g: Svo það sem þú ert að segja er að ef mannkynið yrði vegan, myndum við útrýma öllum okkar stærstu vandamálum og ógnum við tilvist mannkyns? Guð: Já. Þegar ykkur tekst að útrýma dýraafurðaframleiðslu, verður jörðin aftur að þeirri paradís sem hún gæti svo auðveldlega verið. Auðvitað verða vandamál, en stríð og græðgi, tækniframfaraógnin og umhverfisváin verða öll úr sögunni. Og kannski best af öllu: Þegar þið hættið að taka þátt í að kvelja öll þessi saklausu dýr mun samkennd ykkar aukast svo verulega að mannkynið mun taka stórt stökk í framþróun sinni. Samvitund ykkar mun þá skapa paradís þar sem allir geta upplifað það sem þið öll þráið: Endalaust samþykki, skilyrðislausa ást og kærleika. Frelsi til að tjá sig að fullu. Enginn ótti við útskúfun eða ofbeldi, því það verða orðin úreld hugtök. É g: Vá, það er geggjað! Ég er svo til í þetta! En af hverju ertu að segja mér þetta? Guð: Þú ert að segja þér þetta sjálfur. Þið hafið öll getuna til að tengjast inn á við og sjá sannleikann. Þú ert búinn að rækta þinn innri mann og tengjast þinni innri veröld. Þú leyfir fólki sem hefur tengst sínu innra lífi og fundið leiðir til að tjá þá reynslu að hafa áhrif á þig. Þú hefur breytt tíðninni þinni til að stilla raunveruleikann þinn á æðra tilverustig. Þú hefur fundið leið til að hlusta á innsæið og flæða með lífinu án þess að þvinga neitt. Þess vegna ert þú að segja sjálfum þér þetta. Því að hið sanna konungsríki er innra með okkur öllum. Þetta er einfaldlega það sem þú þurftir að segja sjálfum þér akkúrat á þessum tímapunkti. Í gegnum mig. Ég vaknaði með galopið hjarta og opnaði augun löturhægt um leið og ég dró djúpt inn andann. Ég lá á bakinu með alla útlimi útbreidda, eins og barn eða hvolpur sem treystir því fullkomlega að umhverfi hans sé skilningsríkt og kærleiksríkt. Ég brosti mínu breiðasta og andaði frá mér. Ég ákvað að vera opnari í dag. Leikglaðari. Minna í vörn. Minna alvarlegur. Sjá sjálfan mig í öllum í kringum mig. Vera fullkomlega hreinskilinn. Við sjálfan mig fyrst og fremst. Vera forvitnari. Kynnast sjálfum mér betur. Hvort sem það er í gegnum minn innri heim eða í gegnum aðra. Ég rifjaði upp augnablikið þegar ég ákvað að hætta stuðningi við dýraafurðaframleiðslu. Ég var 26 ára gamall og bjó í Englandi. Ég sá stutta heimildarmynd um sláturhús og það sem þar fór fram. Þá fann ég innra með mér að þetta var kolrangt. Að rækta dýr til þess eins að búa til þræla úr þeim og éta þau síðan. Ég vissi innst inni að þetta á engan rétt á sér. Við getum lifað fullkomlega heilsusamlega án þess að borða dýraafurðir. Án þess að halda dýraþræla og drepa þau á svo stórum skala að það eru næstum óskiljanlegar tölur. Um 90.000.000.000 landdýrum er slátrað árlega. 90 milljörðum. Og það er fyrir utan alla fiskana sem eru margfalt fleiri. Við höfum aðeins grófar áætlanir en þær benda til þess að um 1,1-2,2 billjónir villtra fiska séu veiddar árlega. Það eru 1.100-2.200 milljarðar einstaklinga. Guð í draumnum mínum hafði rétt fyrir sér. Auðvitað er þetta gígantíska dýraníð rót allra okkar stærstu vandamála og tilvistarógna. Komdu inn á við. Hittumst þar. Breytum jörðinni aftur í paradís. Innan frá. H ö fundur situr í stj ó rn Samtaka um dýravelferð á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun