Skoðun

Er al­veg sama hvað Ís­land er dýrt?

Björn Ragnarsson skrifar

Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur nú verið lagt fram. Þar er að finna miklar skattahækkanir á ferðaþjónustu. Til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón sem hækkar verð í baðlón um 11,7% fari það beint út í verðlagið, sett verður á nýtt náttúru- og innviðagjald sem hækkar dagsferðir um Gullna hringinn um allt að 37,5% og svo á að hækka kílómetragjald um 15,9%. Þessum sköttum ásamt hækkun olíuverðs, gríðarlega háu vaxtastigi og launahækkunum þurfum við sem störfum í ferðaþjónustu að koma út í verðlagið til okkar viðskiptavina. Á sama tíma hefur íslenska krónan verið að styrkjast gagnvart evru sem hækkar enn frekar kostnað ferðamanna við Íslandsferðina. Þá er ótalið hversu flókið innviðagjaldið verður í framkvæmd, þar sem gjaldtakan nær aðeins til afmarkaðra svæða, bílastæðagjöld eru innheimt sums staðar en ekki annars staðar og eftirlitsmenn eiga að elta ferðamenn til að innheimta gjaldið.

Við öll þekkjum það að hvort sem við erum að kaupa okkur bíl, heimili, endurnýja stofuna eða að fara í frí þá setjum við okkur ramma um hvað við ætlum að eyða miklum fjármunum. Flest erum við farin að nýta gervigreindina til að aðstoða okkur við hinar ýmsu ákvarðanir og ef maður spyr hana t.d. að því hvert hún mælir með því að maður fari til að njóta náttúru og norðurljósa þá erum við oftast listuð á eftir Finnlandi og Noregi.

Kostnaður við Íslandsferð hefur hækkað í evrum um 15% frá síðasta ári ef maður skoðar verðþróun á flugi, gistingu, olíuverði og öðrum kostnaði. Ef þessar hækkanir á sköttum ganga eftir mun það valda enn frekari hækkunum á Íslandsferðum. Við breytum því ekki að ferðamenn þurfa að fljúga töluverða leið til að koma til Íslands og ferðamenn velja að ferðast um landið og keyra þ.a.l. mikið.

Seðlabankinn spáir lækkun verðbólgu á næsta ári en það breytir ekki þeirri staðreynd að hækkunarþörf greinarinnar er enn til staðar og nýir skattar þurfa að fara út í verðlagið. Ég hef því verulegar áhyggjur af því að þessar snörpu hækkanir á Íslandi muni hafa töluverð áhrif á eftirspurn eftir Íslandsferð. Flestir sem hafa verið að spá í fjölda ferðamanna hafa verið mjög varkárir og spá lítilli fjölgun eða smá fækkun ferðamanna. Samkvæmt spá Ferðamálastofu, sem birt er í skýrslu OECD, er gert ráð fyrir lítilsháttar fækkun erlendra ferðamanna til Íslands bæði árin 2027 og 2028. Áætlað er að íslensk ferðaþjónusta skili um 200 milljörðum króna í skatta og gjöld til hins opinbera. Tiltölulega hófleg fækkun getur því haft veruleg áhrif á tekjur þjóðarbúsins og hins opinbera. Ef ferðamönnum fækkaði um samtals 3% og tekjur hins opinbera drægjust saman um 6 milljarða króna af þeim sökum, væri tekjutapið eitt og sér á pari við þær tekjur sem stjórnvöld hyggjast afla með nýjum innviðagjöldum. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að gjaldtaka hins opinbera grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.

Samtök ferðaþjónustunnar vöktu nýverið athygli á þessu með því að auglýsa “Stækkum kökuna” en það er einmitt sú vegferð sem við viljum fara með stjórnvöldum. Á

undanförnum árum hefur verið mikið fjárfest í íslenskri ferðaþjónustu, ný baðlón opnuð, ný hótel byggð, ný afþreying opnuð og dreifing ferðamanna um landið haldið áfram að aukast með hagsmuni landsbyggðarinnar að leiðarljósi.

Það er ekki alveg sama hvað Ísland er dýrt. Skemmtiferðaskipum hefur á þessu ári fækkað um 14% eftir að innviðagjöld voru lögð á farþega þeirra og hefur enn ekki tekist að snúa þeirri þróun við þrátt fyrir að núverandi ríkisstjórn hafi lækkað gjöldin. Ég vona því innilega að ríkisstjórnin hlusti á aðvaranir fjölmargra áður en þessar stóru ákvarðanir um enn meiri skattheimtu verði samþykktar. Það eru hagsmunir allra landsmanna að hér starfi öflug og samkeppnishæf ferðaþjónusta og þannig stækkum við kökuna saman.

Höfundur er forstjóri Icelandia.




Skoðun

Sjá meira


×