Erlent

Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind

Agnar Már Másson skrifar
Xi Jinping, forseti Kína, tekur í höndina á Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Xi Jinping, forseti Kína, tekur í höndina á Donald Trump Bandaríkjaforseta. AP

Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót sérstakri „samskiptarás“ til að meðhöndla atvik er tengjast gervigreind og flýta fyrir vinnu við samskipti í hernaðarlegum neyðartilvikum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingum frá ríkjunum tveimur sem sendar voru út í dag í kjölfar þess að þriggja daga heimsókn Xi Jinping, forset Kína, til Washington lauk.

Bandaríkin og Kína samþykktu sömuleiðis að halda áfram samstarfi í viðskiptaráði um valin tvíhliða viðskiptamál og sagði Hvíta húsið í yfirlýsingu á laugardag að ráðið hefði hafið störf í þessari viku.

Engar stórfréttir urðu þó úr heimsókn Kínverjans, en AP greinir frá því að sumir sérfræðingar telji að mikilvæg skref hafi engu að síður verið tekin í átt að þéttara samstarfi ríkjanna, meðal annars með því að koma á fót vinnuhópum sem gætu komið í veg fyrir að deilur milli ríkjanna stigmagnist.

Xi lenti aftur í Peking í dag að sögn Xinhua en í heimsókninni virtist Donald Trump Bandaríkjaforseti einstaklega hlýlegur í garð Xi þrátt fyrir að viðskiptastríð milli landanna hefði stigmagnast verulega.

Forsetarnir samþykktu að undirrita viljayfirlýsingu um að efla samskipti í neyðartilvikum og koma í veg fyrir neyðarástand milli herja landanna tveggja, að því er utanríkisráðuneyti Kína greinir frá í yfirlýsingu.

Þar segir einnig að eins konar samskiptarás verði stofnuð fyrir atvik tengd gervigreind til að ræða tengda áhættu og ávinning og sérstakar viðræður um gervigreind verða haldnar í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×