Kim fór til Kína Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, ferðaðist til Kína yfir nýopnaða brú á milli landanna tveggja. Þetta er fyrsta utanlandsferð Kim sem vitað er af í yfir ár. Erlent 24.10.2026 11:16
Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Aukið samstarf Rússlands, Kína, Íran og Norður-Kóreu hefur reynst ríkjunum vel en kannski sérstaklega Norður-Kóreu. Her ríkisins hefur fengið fjölda nýrra vopna á undanförnum árum og hafa forsvarsmenn hans lært af reynslu Rússa í Úkraínu. Ákveðið vopnakapphlaup á sér nú stað á Kóreuskaga þar sem spennan þykir mjög mikil þessa dagana. Erlent 23.10.2026 23:28
Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Fellibylurinn Champi gerir íbúum Austur-Asíu lífið leitt. Einn er látinn á Taívan og Japanir hafa aflýst hundruðum flugferða vegna byljarins. Erlent 23.10.2026 07:39
Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. Erlent 5. október 2026 06:33
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Donald Trump spurði Xi Jinping hvort hann hefði áhuga á því að kaupa bandarísk vopn og hergögn. Þessari spurningu varpaði Trump fram á fundi forsetanna í Washington DC í síðustu viku og var markmiðið að réttlæta yfirstandandi vopnasölu til Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til. Erlent 28. september 2026 11:10
Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót sérstakri „samskiptarás“ til að meðhöndla atvik er tengjast gervigreind og flýta fyrir vinnu við samskipti í hernaðarlegum neyðartilvikum. Erlent 26. september 2026 13:53
Sex ára stúlka setti heimsmet Lian Yunzhi, sex ára stúlka frá Kína, hefur sett nýtt heimsmet kvenna í að leysa Rubik's Cube. Hún æfir sig í nokkrar klukkustundir á hverjum degi. Erlent 26. september 2026 10:03
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Xi Jinping lýkur ferð sinni til Bandaríkjanna með ferð í Skjalasafn Bandaríkjanna þar sem Donald Trump ætlar að sýna honum frelsisyfirlýsinguna frægu frá 1776 og réttindaskrá Bandaríkjanna. Bæði þessi skjöl marka grunnstoðir bandarísks lýðræðis. Trump lýsti þeim sem einhverjum mestu fjársjóðum Bandaríkjanna, áður en hann ætlaði að sýna þau leiðtoga öflugasta kommúnistaríkis heims. Erlent 25. september 2026 15:00
„Höfum aldrei átt betra samband“ Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð Xi Jinping, forseta Kína, til veglegrar kvöldverðarveislu í Hvíta húsinu í gær þar sem báðir leiðtogar lofuðu nýtt og betra samband ríkjanna. Á sama tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan hlið Hvíta hússins og voru nokkrir þeirra handteknir. Erlent 25. september 2026 06:33
Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Taívan og mannréttindi marka rauðar línur fyrir ráðamenn í Kína, hvað varðar viðræður Donalds Trump og Xi Jinping í Washington DC í dag. Sendiherra Kína í Bandaríkjunum segir að Bandaríkjamenn eigi að hætta að reyna að skapa átyllur eins og þjóðaröryggismál, efnahagslegt ójafnvægi og þrælkunarvinnu til að reyna að halda aftur af framrás Kína. Erlent 23. september 2026 09:15
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert. Erlent 22. september 2026 23:30
„Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Forsætisráðherra Danmerkur gefur ekkert upp um innihald samkomulags við Bandaríkin um framtíð Grænlands en segir samkomulagið engu að síður gott. Sérfræðingar við háskóla í Kína setja samkomulagið í samhengi við komandi þingkosningar í Bandaríkjunum og fyrirhugaða heimsókn forseta Kína til Bandaríkjanna síðar í vikunni. Erlent 20. september 2026 13:06
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann muni stofna „gervigreindarsveit“ og skipa „gervigreindarkeisara“ í náinni framtíð. Hann segir gervigreindina vera næstu iðnbyltingu og þvertekur fyrir það að ríkisstjórn sín muni hindra eða hefta vöxt hennar. Þau muni fylgjast grannt með þeim sem kunni að nýta tæknina í óæskilegum tilgangi og refsa þeim. Erlent 19. september 2026 22:04
Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi. Erlent 18. september 2026 10:01
Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan. Erlent 17. september 2026 07:52
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni. Lífið 17. september 2026 07:02
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi forstjóra gervigreindarfyrirtækisins Anthropic eftir að hann kallaði eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar á heimsvísu. Gengi hlutabréfa hefur hríðfallið, sér í lagi eftir að aðrir forstjórar tóku undir ákallið. Kjósendur virðast ekki ánægðir með hvernig Trump hefur höndlað málið. Viðskipti erlent 14. september 2026 19:02
Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, hitti í dag Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegamálaráðherra þar sem þau ræddu um ferðamennsku, fisk og viðskipti auk „beins“ flugs milli Kína og Íslands sem á að hefajst 26. október. Innlent 10. september 2026 21:09
Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Að minnsta kosti tuttugu manns eru sagðir hafa farist þegar eldur kviknaði í flutningaskipi sem liggur í höfn í Quindao í Kína í dag. Forseti Kína segir leitar- og björgunarstörf hafin en fimm er enn saknað. Erlent 10. september 2026 10:43
Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. Innlent 4. september 2026 14:00
Af TikTok á skjáinn Skólinn eru nýir örþættir frá Sketsagerðinni, sem hefur notið vinsælda fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, sem hefja göngu sína á Sýn+ þann 15. september. Þættirnir verða þrjátíu talsins, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd og verða þeir sýndir yfir þrjátíu daga tímabil. Bíó og sjónvarp 4. september 2026 12:12
Kínverskar stórstjörnur í haldi yfirvalda vegna rannsóknar um spillingu Kínverska badmintonsambandið hefur verið það sterkasta í íþróttinni síðustu ár. Zhang Jun, forseti sambandsins, og Xia Xuanze, varaforseti sambandsins sem er einnig landsliðsþjálfari með áherslu á einliðaleik, eru í haldi kínverskra yfirvalda vegna spillingar. Sport 4. september 2026 11:02
Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Tveimur mönnum hefur verið bjargað lifandi úr vatnsaflsvirkjunargöngum í Nepal, níu dögum eftir að mannskæð skyndiflóð grófu virkjunarmannvirki í djúpa leðju. Talið er að hundruð verkamanna hafi lokast inni í kjölfar flóðanna. Flóðið varð í kjölfar þess að jökull hrundi saman á landamærum Nepal og Tíbet, sem er undir stjórn Kína. Erlent 4. september 2026 06:28
Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Manntjón í Nepal vegna gríðarlegra flóða við landamærin að Tíbet er komið í 987 samkvæmt almannavarnayfirvöldum landsins. Erlent 1. september 2026 07:52