Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Árni Sæberg skrifar 22. september 2026 10:13 Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald og Landsréttur hefur staðfest úrskurðinn. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins. Landsréttur kvað upp úrskurð í máli mannsins þann 14. september síðastliðinn en með honum var úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra staðfestur. Hófst vegna sjálfsvígstilraunar Í honum segir að í greinargerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sé atvikum málsins lýst sem svo að rannsókn þess hafi hafist aðfaranótt laugardagsins 29. ágúst. Það hafi fyrst komið inn á borð lögreglu vegna sjálfsvígstilraunar mannsins. Þegar lögreglan kom á vettvang hafi konan farið að tjá sig um áralangt ofbeldi sem hún hefði búið við síðan samband þeirra hófst. „Hún lýsir miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og stjórnun og kúgun. Hún lýsir því að sakborningur hafi ítrekað tekið hana hálstaki, stungið hana með hníf í bakið, lagt hafnaboltakylfu að hálsi hennar og ítrekað neytt hana til kynlífs með ofbeldi og án hennar samþykkis.“ Myndir af nauðgunum í símanum Í síma mannsins hafi fundist myndir þar sem hann er að stunda kynlíf með konunni og hún virðist vera sofandi. Hann hafi játað að hafa ítrekað neytt konuna til kynlífs með ofbeldi og hafa líka stundað kynlíf með henni þegar hún var sofandi. „Hann lýsir þeim tilvikum þannig að brotaþoli hafi sofnað eftir að þau hófu kynlífið og hann haldið áfram eftir að hún sofnaði. Brotaþoli vissi ekki af þessum tilvikum þegar gögn um þetta voru borin undir hana og varð fyrir áfalli við að sjá þessar myndir. Sakborningur viðurkennir að hafa með aflsmunum neytt brotaþola til kynlífs.“ Þá segir að hvorki maðurinn né konan geti tímasett tilvikin nákvæmlega en konan lýsi því yfir að þetta hafi gerst um það bil tvisvar í mánuði á sambúðartímanum en suma mánuði hafi slíkt ekki gerst. „Miðað við frásögn brotaþola eru tilvikin því mjög mörg.“ Maðurinn hafi játað þetta en segi tilvikin færri. Hann hafi einnig játað líkamsárásir, kyrkingar, hnífsstungu og fleira. Hann hefur einnig játað að hafa beitt konuna og börn þeirra mikilli stjórnun og kúgun. „Sakborningur hefur einnig ítrekað hótað að drepa sig, brotaþola og börnin.“ Sleppur ekki við gæsluvarðhald vegna andlegra veikinda Í úrskurði Landsréttar segir að maðurinn hafi krafist þess að gæsluvarðhaldsúrskurður héraðsdóms yrði felldur úr gildi og til vara að honum yrði gert að sæta vistun á sjúkrahúsi eða viðeigandi geðheilbrigðisstofnun í stað gæsluvarðhalds en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi yrði markaður skemmri tími. „Af hálfu varnaraðila hefur verið vísað til heilsufars hans. Fram er komið að hann dvaldi um tíma á geðdeild […] en hefur nú verið útskrifaður þaðan og situr í gæsluvarðhaldi. Samkvæmt 29. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga skulu fangar njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur,“ segir í niðurstöðu Landsréttar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent Fleiri fréttir Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Sjá meira
Landsréttur kvað upp úrskurð í máli mannsins þann 14. september síðastliðinn en með honum var úrskurður Héraðsdóms Norðurlands eystra staðfestur. Hófst vegna sjálfsvígstilraunar Í honum segir að í greinargerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sé atvikum málsins lýst sem svo að rannsókn þess hafi hafist aðfaranótt laugardagsins 29. ágúst. Það hafi fyrst komið inn á borð lögreglu vegna sjálfsvígstilraunar mannsins. Þegar lögreglan kom á vettvang hafi konan farið að tjá sig um áralangt ofbeldi sem hún hefði búið við síðan samband þeirra hófst. „Hún lýsir miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og stjórnun og kúgun. Hún lýsir því að sakborningur hafi ítrekað tekið hana hálstaki, stungið hana með hníf í bakið, lagt hafnaboltakylfu að hálsi hennar og ítrekað neytt hana til kynlífs með ofbeldi og án hennar samþykkis.“ Myndir af nauðgunum í símanum Í síma mannsins hafi fundist myndir þar sem hann er að stunda kynlíf með konunni og hún virðist vera sofandi. Hann hafi játað að hafa ítrekað neytt konuna til kynlífs með ofbeldi og hafa líka stundað kynlíf með henni þegar hún var sofandi. „Hann lýsir þeim tilvikum þannig að brotaþoli hafi sofnað eftir að þau hófu kynlífið og hann haldið áfram eftir að hún sofnaði. Brotaþoli vissi ekki af þessum tilvikum þegar gögn um þetta voru borin undir hana og varð fyrir áfalli við að sjá þessar myndir. Sakborningur viðurkennir að hafa með aflsmunum neytt brotaþola til kynlífs.“ Þá segir að hvorki maðurinn né konan geti tímasett tilvikin nákvæmlega en konan lýsi því yfir að þetta hafi gerst um það bil tvisvar í mánuði á sambúðartímanum en suma mánuði hafi slíkt ekki gerst. „Miðað við frásögn brotaþola eru tilvikin því mjög mörg.“ Maðurinn hafi játað þetta en segi tilvikin færri. Hann hafi einnig játað líkamsárásir, kyrkingar, hnífsstungu og fleira. Hann hefur einnig játað að hafa beitt konuna og börn þeirra mikilli stjórnun og kúgun. „Sakborningur hefur einnig ítrekað hótað að drepa sig, brotaþola og börnin.“ Sleppur ekki við gæsluvarðhald vegna andlegra veikinda Í úrskurði Landsréttar segir að maðurinn hafi krafist þess að gæsluvarðhaldsúrskurður héraðsdóms yrði felldur úr gildi og til vara að honum yrði gert að sæta vistun á sjúkrahúsi eða viðeigandi geðheilbrigðisstofnun í stað gæsluvarðhalds en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi yrði markaður skemmri tími. „Af hálfu varnaraðila hefur verið vísað til heilsufars hans. Fram er komið að hann dvaldi um tíma á geðdeild […] en hefur nú verið útskrifaður þaðan og situr í gæsluvarðhaldi. Samkvæmt 29. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga skulu fangar njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur,“ segir í niðurstöðu Landsréttar. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent Fleiri fréttir Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Sjá meira