Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar 9. september 2026 09:30 Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári. Það markmið eitt og sér er gott og gilt, og skiptir svo sannarlega máli, aftur á móti er alls ekki sama hvaða leið er farin að því að skila hallalausum fjárlögum. Sú leið sem ríkisstjórnin kýs nú ótrauð að feta vekur ugg svo vægt sé til orða tekið enda birtast í frumvarpinu skattahækkanir ofan á skattahækkanir. Skattasleggja ríkisstjórnarinnar Þar sem enginn virðist vera óhultur fyrir skattasleggju ríkisstjórnarinnar, sérstaklega ekki ferðaþjónustan. Stærsta einstaka útflutningsatvinnugrein þjóðarbúsins sem á nú að bera hitann og þungann af fyrirhuguðum skattahækkunum stjórnarinnar. Ríkisstjórnin ætlar sér að taka upp svokallað auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands og hækka virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum úr 11% þrepinu í 24%. Þar að auki ætlar hún sér í þá nýbreytni að færa gistináttaskatt og innviðagjald á farþega skemmtiferðaskipa undir hækkun krónutölugjalda á milli ára. Gistináttaskattur og innviðagjald munu því hækka um 5,2% á næsta ári og ekki verður annað séð en að þessi íþyngjandi breyting sé komin til að vera hjá þessari ríkisstjórn. Þá eru aðrir skattar og gjöld sem ríkisstjórnin ætlar sér líka að hækka sem eru hér ónefndir en hafa svo sannarlega einnig áhrif á þjónustu við ferðamenn. Vert er hins vegar að nefna kílómetragjaldið sérstaklega, þar sem ríkisstjórnin leggur til að það skuli hækkað um 15,9%. Það er ekki eitt, það er allt, þegar kemur að hækkun skatta og gjalda á ferðaþjónustuna. Skaðinn verður mestur á landsbyggðinni Allt eiga þessir skattar það sameiginlegt að snerta ferðaþjónustuna beint eða óbeint og að vera í raun landsbyggðarskattar. Nær öll baðlón landsins eru stödd utan höfuðborgarsvæðisins og þær náttúruperlur sem munu verða fyrir barðinu á nýrri gjaldtöku sömuleiðis. Baðlón eru sérstaklega mikilvægir seglar úti á landi enda eru mörg þeirra staðsett á svæðum þar sem framboð annarrar afþreyingar er takmarkað. Þau laða ferðamenn að og gera það að verkum að oft og tíðum kjósa þeir að dvelja lengur og gista nálægt þeim. Þar að auki eru gestir baðlóna að stórum hluta Íslendingar og heimamenn. Þessari uppbyggingu teflir ríkisstjórnin nú í tvísýnu og öllum þeim störfum sem starfsemi baðlóna skapar hringinn í kringum landið. Ríkisstjórnin ætlar sér hins vegar ekki aðeins að hækka skatta og gjöld á þá afþreyingu og gistingu sem fyrir er og hefur byggst upp um allt land heldur einnig að auka álögur og hækka kostnaðinn við að ferðast til þeirra. Staðreyndin er sú að um 64% ferðamanna velja bílaleigubíl sem sinn aðalferðamáta hér á landi og hækkun kílómetragjaldsins getur hæglega leitt til þess að þeir kjósi að stytta ferðalagið sitt og leigja bíl í færri daga en ella. Komur skemmtiferðaskipa eru svo ekki síður mikilvægar fyrir minni hafnir og smærri samfélög landsins en árleg hækkun innviðagjaldsins mun ekki vera til þess fallin að fjölga þeim. Sitt sýnist hverjum en ljóst er að ríkisstjórnin hefur hent ferðaþjónustunni fyrir rútu hallalausra fjárlaga og skaðinn mun verða mestur á landsbyggðinni. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksin og situr í fjárlaganefnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njáll Trausti Friðbertsson Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar