Innlent

Tveir á slysa­deild með reyk­eitrun eftir bruna á hóteli

Lovísa Arnardóttir skrifar
Slökkvilið hefur verið kallað út.
Slökkvilið hefur verið kallað út. Vísir/Vilhelm

Einn var handtekinn í nótt vegna bruna á hóteli í miðbænum. Í dagbók lögreglu kemur fram að viðbragð hafi verið mikið hjá bæði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Maðurinn hafi verið handtekinn skömmu síðar.

Á vef RÚV kemur fram að tveir hafi verið fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun og að allt tiltækt lið slökkviliðs hafi verið kallað á vettvang um klukkan hálf eitt í nótt.

Hótelið er á Laugavegi 16, í hjarta Hótels Skjaldbreiðar, en í sama húsi er fataverslunin Andrá og kemur fram í frétt RÚV að líklega séu skemmdir þar líka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×