Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Freyja Þórisdóttir skrifar 18. ágúst 2026 18:28 Marco Rubio tók við embætti 20. janúar 2025, eftir að hafa verið samþykktur einróma af öldungadeild Bandaríkjaþings sem 72. utanríkisráðherrann. Dómarinn Tomoko Akane hóf þriggja ára kjörtímabil sitt sem forseti Alþjóðssakamáladómstólsins árið 2024. AP/Getty Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt refsiaðgerðir gegn forseta og yfirlögfræðingi Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC). Dómstóllinn í Haag var stofnaður árið 2002 til að sækja til saka stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. Meðal þess sem felst í refsiaðgerðunum er að allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum verði frystar.
Greint er frá þessu í erlendum miðlum á borð við Reuters og breska ríkisútvarpið. Í umfjöllun Reuters um málið segir að skrefið sé þáttur í herferð ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta gegn dómstólnum. Útiloki þau frá bandaríska fjármálakerfinu Rubio hafi sagt í yfirlýsingu sinni vegna aðgerðanna að þær beindust að Tomoko Akane, japönskum dómara sem er forseti Alþjóðaglæpadómstólsins, og Abdoulaye Seye, yfirlögfræðingi og senegölskum ríkisborgara. Þær væru að tilskipun Trumps frá því í fyrra sem heimili refsiaðgerðir gegn dómstólnum. „Þessir einstaklingar hafa tekið beinan þátt í tilraunum Alþjóðaglæpadómstólsins til að rannsaka, handtaka, halda eða sækja til saka embættismenn ríkisstjórnar sem hefur ekki samþykkt lögsögu dómstólsins,“ er haft eftir Rubio. Í fyrra hafi bandarísk yfirvöld beitt aðra háttsetta innan dómstólsins refsiaðgerðum og þá vísað til handtökuskipana dómstólsins á hendur Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels, auk fyrri rannsóknar á bandarískum hermönnum í Afganistan. Sé að verja aðra frekar en sjálfan sig Refsiaðgerðirnar felast í því að frysta allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum og útiloka þá í raun frá bandaríska fjármálakerfinu, sem nánast allir alþjóðlegir bankar hafa náin tengsl við, er fram kemur í umfjöllun Reuters. Þrír dómarar við Alþjóðaglæpadómstólinn hafi stefnt Trump og ríkisstjórn hans í júní vegna refsiaðgerðanna og haldið því fram að aðgerðirnar væru ólöglegar. Trump hafi sjálfur sagt að herferðin hafi miðað að því að verja Netanyahu og aðra, frekar en sjálfan sig.
Dómsmál Holland Bandaríkin Ísrael Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira